Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 9

Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 9
Hann daðraði við kvensjúklinga sína og sagðist „skilja" \>á — og sendi svo eiginmönnum þeirra reikninga fyrir rón- dýra læknishjólp. — „ARTHUR — Arthur! Kaffið þitt, góði minn.“ Þegar Lynd læknir heyrði rödd konu sinnar, andvarpaði hann gremjulega. Átti hann aldrei að lifa einn einasta morg- un, án þess að heyra hana kalla nákvæm- lega þessi sömu orð á nákvæmlega sömu mínútu? Það var blátt áfram óþolandi. „Heyrirðu, Arthur? Kaffið.“ Hann starði framan í sjálfan sig í stóra baðherbergisspeglinum. — Frítt, reglulegt andlit, ofurlítið grátt við gagnaugun. Á- berandi aðlaðandi andlit — jafnvel þótt gremjusvipur væri á því. „Já, ég kem strax.“ Á borðinu stóð hinn óhjákvæmanlegi kaffibolli. Ernily tvísté hjá arninum eins og stofustúlka nýkomin í vistina. Fullkomin í- mynd húsmóðurlegrar umhyggjusemi. Hann beið andartak — svo kom það. „Svafstu vel, góði minn?“ Varð hún ætíð að spyrja um það sama? Gat hún aldrei talað um efni, sem skyn- samar konur ræddu um — bækur, leikrit, stjórnmál, eitthvað, sem hún hefði lesið um í blöðunum — bara eitthvað. .. .? Nei, hvernig átti hún að geta það. Þrátt SKEMMTISÖGUR 7

x

Skemmtisögur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.