Skemmtisögur - 01.07.1949, Qupperneq 31

Skemmtisögur - 01.07.1949, Qupperneq 31
ir þú að rainnsta kosti tvo bíla ...“ Hann talaði af hinni mestu stillingu. Hún lagði frá sér ferðatösku, sem hún hélt á í hendinni. „Þú hefur á réttu að standa. Það var heimskulegt af mér. Nei, ég get ekkert tek- ið með mér. Ekkert ...“ Og hún leit með hryggðarsvip um herbergið. „Allt í lagi, Leila, láttu það eiga sig. Þjóf- urinn, eða þjófarnir, fá heiðurinn af því.“ „Þú tekur þessu svo rólega, William.“ „Við verðum að standa saman, Leila.“ „Og þessi fimmtíu þúsund — getur þú skaffað þau á morgun?“ Hann yppti öxlum. „Já, ef nauðsyn kref- ur, þá get ég alltaf útvegað peninga." Rödd hennar varð nú rnjög ákveðin. „Það er nauðsynlegt. Ég verð að komast af stað, áður en eitthvað hræðilegt kemur fyrir. Ef lögreglan kæmist á snoðir um, hvað gerzt hefur hér, og tæki mig fasta, þá ...“ „Hvað þá, Leila ...?“ „Þá rnyndi ég neyðast til þess að segja, að þú hafir verið vitni að því sem skeði. Og nafn þitt ... já, það myndi verða hræði- legt fyrir hina nafnkunnu fjölskyldu þína, ef það vitnaðist, að þú hafir verið riðinn við svona hneykslismál. Það gæti einnig hugsast, að þú yrðir grunaður um að hafa hleypt banaskotinu af.“ Augnaráð hans var rólegt sem áður, og framkoma hans öll jafn örugg og ótrufluð. „Já, auðvitað, ég skil það. Og þegar þú liefur móttekið þessi fimmtíu þúsund, þá hverfur þú úr þessum heimi, ég meina þess- um heimshluta. Hvert ætlar þú að fara?“ Svarið kom samstundis. „Til Suður-Ameríku, til Brasilíu, til Matto Brosso. Þar getur maður gersamlega horfið, hefi ég heyrt.“ Hann lagði aðra höndina á liandlegg hennar. „Það lítur næstum svo út, sem þú hafir vænzt þessarra málaloka." Hún varð skömmustuleg á svipinn. „Af manni eins og honum ... getur mað- ur búist við því versta. Þig grunar ekki, hvað ég hefi orðið að ganga í gegnum." Hann leit á úrið sitt. „Ef þú kærir þig um að koma þessari íjærverusönnun í kring, held ég að það sé bezt að þú flýtir þér dálítið. Gerðu allt klárt hérna inni, ég skal sjá um að ganga svo frá að utan, að enginn sjái að hingað hafi nokkur komið, ókunnugur, meina ég.“ „Og hvað svo?“ spurði hún. „Hvaða leið eigum við að fara út úr húsinu, án þess að nokkur sjái okkur?“ „Eldhúsmegin, held ég. Nerna þú viljir heldur fara niður eldvarnastigann.“ Hún greip fram í fyrir honum, alveg laf- hrædd. „Af þriðju hæð! Það er ómögulegt. Ég get það ekki!“ „Ekki heldur þótt um lífið sé að tefla?" „Nei, ekki heldur þótt um lífið sé að tefla. En farðu nú bara að gera þær ráðstaf- anir, sem þér sýnist lielzt viðeigandi. Ég skal vera fljót að taka mig til. Og svo verð ég að fá þessa fimmtíu þúsund dollara. Þér er vel Ijóst, hvað það hefur að segja." Hann brosti afar tvíræðu brosi. „Það hef ég þegar gert mér ljóst.“ Hann gekk inn í stofuna, þar sem harm- leikurinn hafði átt sér stað, og beygði sig niður yfir skrokkinn sem lá á gólfteppinu. Stewens lá óhreyfður í sömu óhreyfanlegu stellingunum. Því næst gekk Warfield að dyrunum og hlustaði. Það eina, sem heyrð- ist, var niðurinn í lyftunni, er nú var á leið upp. Hann gekk fram og aftur í nokkr- ar mínútur, eins og hann væri óráðinn í hvað gera skyldi, síðan sneri hann sér að myrta manninum, tók eitthvað upp úr vasa sínurn og lét það falla á gólfið ... Nú heyrði hann rödd Leilu, utan úr gang- inum. „Þá er ég tilbúin, William. Kemur þú?“ SKEMMTISÖGUR 29

x

Skemmtisögur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.