Bergmál - 01.03.1947, Page 5
Hún heillaði karlmenn með
töframætti sínum og lét þá tilbiðja sig.
Cleopatra
Caeser var nýkominn til Aelxandria, eftir að hafa unnið frægan sigur
við Pompey. Hann settist að í konungshöllinni og hélt áfram að greiða
úr stjórnmálaflækju Egyptalands. Auletes konungr var dauður, og börnin
hans tvö, Ptolemy og Cleopatra, voru að berjast um völdin í landinu.
Þegar Caeser köm var Oleopatra í útlegð. Bróður hennar og fylgis-
mönnum hans hafði tekizt að hrekja hana til Sýrlands. Hinn fjórtán
.ára Ptolemy virtist hafa náð örugglega til veldissprotans, með hinum
litlu gráðugu höndum sínum.
Þannig var málum ríkisins komið seinni hluta ársins 48 f. k.
Rlukkan var um það bil sjö að kvöldi. Caesar sat á hallarsvölunum og
horfði á hið iðandi líf við höfnina. Allt í einu komst ókyrrð á um-
ferðina um hallargötuna. Þjónn kom þjótandi upp á svalirnar til Caesers.
„Herra! Ferðamaður var rétt í þessu að koma frá Levant. Hann hefir
meðferðis pinkil með dýrmætum vefnaði, sem hann vill fá að sýna yður“.
„Hvar er hann?“
„Vörðurinn við hliðið vildi ekki hleypa honum inn, herra“.
Caeser, verndari listanna, varð áfjáður í að sjá þennan vefnað. Þarna
gæti verið um góða gjöf að ræða -til að senda Calpurniu eiginkonu hans.
„Segið vörðunum, að láta þennan mann koma á minn fund undir eins“,
sagði hann.
Ferðalangurinn var leiddur með pinkil sinn á bakinu inn til Caesers.
„Mig langar til að sýna yður dálítið, herra, og þér munuð aldrei hafa
séð neitt svipað áður“. Hann lagði pinkilinn varlega á gólfið og byrjaði
að vefja utan af honum. Hann brosti að undrunarsvipnum á andliti
Caesars. „Hafði ég ekki á réttu að standa herra?“
En Caesar var orðlaus, því út úr pinklinum hljóp Cleopatra dóttir
egypska konungsins, með flaksandi hár og skínandi eins og skólastelpa.
3