Bergmál - 01.03.1947, Blaðsíða 27
1947
BergmÁl
að taka þann kostinn að draga sig í hlé frá hinum raunverulegu störfum
sínum heima í Þýzkalandi um hríS. Þýzka flotastjórnin sendi hann til
Spánar, þar sem þýzka leyniþjónustan og hernðarandinn starfaði í fullu
fjöri. Hann leit þar eftir byggingu þýzkra kafbáta í Echeveria skipasmíða-
stöðvunum. Samkvæmt Versalasamningum máttu Þjóðverjar þó ekki eiga
neina kafbáta. Byggingu þeirra átti líka að halda stranglega leyndri.
A Spáni varð hann fljótt handgenginn hinum þekkta vopnakonungi
þar, Juan March. Þeir smíðuðu vopn fyrir þýzka herinn og geymdu þau
á Spáni. Samband Juan March við Canaris kom að goðu haldi í spönsku
borgarastyrjöldinni. Menn minnast þess ef til vill, að framan af borgara-
styrjöldinni þurftu Þjóðverjar ekki að styðja Franco opinberlega, því þeir
höfðu þá þegar skapað sér þýðingarmikla aðstöðu á Spáni og áttu þar
vopn í stórum stíl.
Starfsemi Canaris á Spáni var þýÖingarmikil fyrir njósnir þýzka flot-
ans. Hann kom upp njósnakerfi gegn brezkum og ítölskum skipum, sem
varð Þjóðverjum til ómetanlegs gagns.
Árið 1929 kynnti Franz von Papen Canaris fyrir Hermanni Göring,
en Papen var hásbóndi Canaris í Bandaríkjunum í fyrri heimsstyrjöld-
inni. Canaris og Göring áttu margt sameiginlegt. Þeir höfðu svipað
hugarfar og voru báðir prússneskir herforingjar. Þeir fengu líka dálæti
hvor á öðrum strax frá því að þeir kynntust fyrst. Þeir höfðu báðir tekið
þátt í uppeisninni í bjórkjallaranum í Munchen. Canaris sagði Göring,
að hann, Canaris, gæti ef til vill notað eitthvað af upplýsingum þýzku
leyniþjónustunnar í þjónustu Hitlers-hreyfingarinnar. Leist Göring strax
vel á þá ráðagerð. Canaris var einmitt rétti maðurinn til að stofna og
skipuleggja leynistarfsemi fyrir Nasiztaflokkinn, sem var í hröðum vexti.
Hann hafði sýnt það í fyrri heimsstyrjöldinni, að hann var góður lærisveinn
Walters Nicolai, þáverandi yfirmanns þýzku leyniþjónustunnar. Hann
hafði líka mikla þekkingu á sjóhernum og það sem meira var. Upp-
lýsingar þær sem hann gat gefið voru líka prýðileg markaðsvara. Fastista-
ríkið á Italíu myndi áreiðanlega vera reiðubúið til að kaupa upplýsingar
hans og það gæti orðið fjárhag flokksins mikill styrkur.
Fyrsta verkið, sem Canaris leysti af hendi fyrir Hitler í hinu nýja
embætti var að safna persónulegum upplýsingum um þýzka liðsforingja.
Hitler pantaði hjá honum skrá yfir stjórnmálaskoðanir þeirra, fjárhags-
ástæður og skapferli.
25