Bergmál - 01.03.1947, Blaðsíða 25
1947
BergmÁl
höfðu vakið athygli brezkra og franskra njósnara og henni höfðu því
verið gefnar gætur seinustu mánuðina. Tilviljunin sem varð þess vald-
andi, að franskur njósnari sá hana ræða við þýzkan herforingja í
Operunni í Cologne, afhjúpaði hana, svo nú var hún skoðuð sem njósn-
ari. En þýzka gagnnjósnarstarfsemin var einnig komin af stað og brezki
verzlunarerindrekinn, sem varaði hana við að fara aftur til Frakklands
var raunverulega þýzkur njósnari.
Þegar til Spánar kom sneri hún sér til þýzka sendiráðsins. Hún
spurði eftir Walter Wilhelm Canaris, manninum, sem hún ennþá elsk-
aði. En elskhugi hennar varð ekkert ánægður við samfundi þeirra. Hér
hafði hún ekkert að gera. Hennar staður var París. En hún reyndi að
leiða honum fyrir sjónir hvað skeð hefði, en hann greip fram í fyrir
henni og fór að dylgja með ástarævintýri hennar í París.
Að lokum sættust þau á að vera saman í viku. Þau voru samt ekki
hamnigjusöm og áður en vikan var liðin hafði Canaris nýjar fréttir að
færa. Honum höfðu borizt nýjar skipanir. Þær voru skorinorðar og
ákveðnar. Starf hennar í París hafði verið svo þýðingarmikið, að það
varð að halda áfram. Hún varð að fara aftur til Parísar, „mag es kosten
es will“, það var sama hvað það kostaði.
Hún bað Canaris heitt og innilega um að losa sig við að fara, því
Mata Hari vissi, að efehún færi, myndi hún aldrei sjá hann framar. Hún
hafði hugboð um örlög sín, en það var ekki undankomu auðið. Þýzkur
njósnari átti engan griðastað.
Það fór líka eins og hún hafði búizt við. Mata Hari var tekin föst
af frönsku lögreglunni og skotin í árslok 1917. En það voru samt ekki
Frakkarnir sem raunverulega voru valdir að dauða hennar, heldur var
það Canaris sjálfur. Þegar hann sendi hana í seinustu ferð hennar til
Parísar, þá lét hann þýzku leyniþjónusjuna í Amsterdam vita um dvalar-
stað hennar. Til að senda tilkynningar notaði hann venjulega dulmáls-
skeyti, en þá stóð svo á að lyklinum að dulmálinu hafði verið breytt,
vegna þess að frönsku leyniþjónustunni hafði tekizt að uppgötva lykil-
inn. Canaris lét því senda Mata Hari skeyti á því dulmáli, sem Frakkar
skyldu. Svikin heppnuðust. Frakkar náðu í skeytið og það urðu endalok
Mata Hari.
Byltingin brauzt út í Þýzkalandi. Keisarinn fór, en hershöfðingjarnir
- 23 -