Bergmál - 01.03.1947, Side 55

Bergmál - 01.03.1947, Side 55
1947 Bergmál því að vera að nauða á honum með spurningum, sem hann álítur lítils virði, hefur hún gert samvizku hans ónæma fyrir því, þó að hann beiti blekkingum. 2. Notarðu þín elskandi augu til að hnýsast í bréf, símskeyti, reikn- inga eða annað, sem ekki er áritað til þín? Flestar eiginkonur gera það. Og flestir eiginmenn hreyfa ekki andmælum. En trúið mér, 'það er þeirra uppáhalds nöldursefni. En hann fullvissaði þig um, að sér væri alveg sama — þú befir fullt leyfi er það ekki? Það er nú gott og blessað. En hugsaðu þig nú vel um, hvernig þú fórst að því að fá leyfið. Sveikstu það svo elskulega út úr honum. Vertu þá svo elskuleg að sleppa því aftur þegjandi og hljóðalaust. Það kann að vera, að hann hafi ekki orð á þessari nýju stillingu þinni. En hvaða sálfræðingur sem er, myndi geta sagt þér,- að það byrjaði að hafa áhrif á hug hans þér í vil, gegn hverjum grunsemd- arauga um að hjónabandið græfi undan persónulegu sjálfstæði hans. Venjan (að hnýsast í bréf manns- ins) á oftast rætur sínar að rekja til samkomulags um „engin leyndar- mál“, en sú stefna er venjulega runnin undan rifjum konunnar, að hjón megi engu leyna hvort annað. I sumu tilliti gera karlmenn miklu hærri kröfur til drengskapar og var- færni í orðum, en konur. Eg varð vör við þetta nokkrum mánuðum eftir, að ég giftist. Eg var að ólundast yfir því við Bob, að svo virtist, sem allir í bænum vissu um yfirvofandi skilnað vissra hjóna, nema ég. Og það kom nú í Ijós, að þessi splunkunýi eiginmaður minn, hafði heyrt það fyrstur allra beint frá öðrum aðal aðilanum. Bob þagði stundarkorn, síðan tók hann slitna bók úr bókaskápnum okkar. „Göfuglyndur, ungur Englending- ur sir Philip Sidney, skrifaði einu sinni smágrein, elskart mín“, sagði hann þýðlega: „Það sem er mitt, jafnvel líf mitt, er og hennar, sem ég elska. En leyndarmál vina minna eru ekki mín“. Ég skildi það. Og ég skildi mun betur, einmitt vegna litlu vís.unnar, hvað viðvíkur sameignum, og ým- islegum misgerðum, frömdum í nafni ástarinnar. 3. Ertu að skipta þér af því, sem er hans eigin eign? Nei ekki af gamla slitna hattinum eða skónum, sem eru til skammar, en sem hann hefur svo mikið dálæti á, Þeir eru andstyggilegir. Það er satt. En hann á þá. Og, sem góðum félaga sæmir, hendir þú góðlátlegt gaman að þess- ari áhöfn tryggð, sem hann hefur bundið við þá. Það sem ég á við eru óáþreifanlegar eignir hans:

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.