Bergmál - 01.03.1947, Page 67

Bergmál - 01.03.1947, Page 67
Kostaboð til fastra áskrifenda Tímaritið BergmÁl hefir ákveðið að hjóða þeitn væntanlegum kaupendum, sem að fenginni reynzlu við lestur þessa fyrsta heftis, vilja gerast fastir áskrifendur ritsins, alveg sérstök kostakjör. Þeir sem horga fyrirfram næstu 12 hefti ritsins og senda andvirðið 60 krónur (5 kr. heftið) til afgreiðslu ritsins, Bókaútgáfu Guðjóns Ó. Guðjónssonar Hallveigarstíg 6 A, pósthólf 726, fá ókeypis eina beztu hók sem út kom á seinasta ári, og sem ein sér kostar nærri því nefnda upphæð. Er það hókin Kabloona, hvíti maðurinn, eftir franska greifann Gontran de Poncins, sem varð heimsfrægur fyrir þessa ágætu hók sína. Er hún ferðasaga greifans til nyrztu eski- móabyggða Ameríku og lýsir lifnaðarhátium og lífsviðhorfum hinna frumstæðu manna alveg sérstaklega vel. Höfundurinn fór þessa för skömmu fyrir seinni heimsstyrjöldina. Flýði hann út á ísbreið- urnar frá maðksmoginni menningu og hjargaði með þeirri för trú sinni á lífið og gildi tilverunnar. Lýsir bókin þessum viðhorfum á meistaralegan hátt. Bókin hefir verið þýdd á fjölmörg tungumál og hefir hvarvetna átt hinum mestu vinsældum að fagna, enda fer saman í bókinni hrífandi frásögn, skemmtilegt og nýstárlegt efni. Islenzka þýðingin er eftir Loft Guðmundsson leikritaskáld. Kabloona er 280 bls. að stærð í stóru hroti, prýdd fjölda ágætra mynda. Utanáskriftin er: Tímaritið Bergmál, Pósthólf 726, Reykjavtk.

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.