Hrafnista - 01.12.1948, Page 40

Hrafnista - 01.12.1948, Page 40
#© 22 HRAFNISTA höndum og ég í stóru tánni einni saman. Ég bar ekki virðingu fyrir neinu í þessum heimi öðru en afli — og mamma var alveg kraftalaus, það var ég sannfærð um. Innst inni, einhvers staðar, hafði ég einhverja hugmynd um, að mamma mín væri eitthvað dá- samlegt, fíngert og gott, en enn átti hún eftir að sýna mér það. „Jæja, hvað ætlarðu þá að segja við móður þína eftir öll þessi ár?“ spurði pabbi. Ég tók mál af henni allt frá kili til siglutopps. Og svo gat ég loksins stunið upp: „Ætlarðu að lofa mér að hafa máfinn minn og kettlingana hérna um borð?“ „Vitanlega“, svaraði mamma hlæjandi. „Þú mátt hafa þá héma bak við húsið. Eftir að þetta samkomulag hafði verið gert, hætti ég að yera eins tortryggin og ég var í byrjun. En ég get ekki sagt, að ég hafi orðið hissa eða hrædd þegar ég kom inn í stofurnar. Ég man það eitt, að mér fannst allt vera smávægilegt og innilokað og það bætti ekki úr skák að systkini mín flykktust um mig og gláptu á mig eins og augun ætluðu út úr þeim. Já, mér fanst eins og þau álitu, að ég væri eitthvað útlent dýr, en ekki systir þeirra. „Jóhanna, þú verður víst að skpta um föt áður en við borðum“, sagði mamma. „Við verðum að borða klukkan 12 af því að gestirnir koma þá, en við höfum menn í fæði“. „Ég hef ekkert annað dót en það sem ég er í“, svaraði ég og rödd mín, sem hafði vanizt því að reyna að yfirgnæfa hávaðann á hafinu, gall í stof- unni frá gólfi til lofts. „Hrópaðu ekki svona, telpa“, sagði mamma með áminningarhreim í röddinni, en ég leit steinhissa á hana. Mamma hafði leigt nokkrum mönnum herbergi í húsinu og þeir höfðu einnig fæði hjá henni. Þetta hafði hún orðið að gera til þess að fá peninga til heimilisútgjalda. „Þetta eru prófessorar frá háskólanum, Jóhanna mín, og þú mátt si'tja til borðs með þeim, ef þig langar til“. „Eru það karlmenn?“ spurði ég, og þegar mamma hafði svarað játandi, hélt éig áfram: „Ég get nefni- lega alls ekki þolað kvenfólk nálægt mér“. Þá gekk systir mín burt úr stofunni. Hún var nefnilega mjög vel upp alin dama og það var alveg auðséð að henni mislíkaði útlit mitt, fram- koma mín og orðbragð. Um leið og við settumst til borðs, var ég kynnt fyrir leigjendunum. Þeir fóru strax að spyrja mig um allt milli himins og jarðar og mér fannst að þeir væru ágætir karlar, sem gott yrði að lynda við. En svo sprakk fyrsta bomban allt í einu. „Já, en... en ætlarðu í raun og veru að halda því fram að þú hafir með eigin augum séð bam fæðast?“ spurði einn þeirra alveg steinhissa. Hann var prófessor í hagfræði. „Vitanlega. Þér skuiuð ekki halda að hún hafi hætt skothríðinni, þó að ég væri viðstödd“, svaraði ég móðguð af því að mér skildist það allt í einu að þeir héldu að ég sæti þarna og væri að segja þeim lygasögur. Hvern fjárann vissu þessir vesalingar eiginlega um sjómannslífið? Svo héldum við áfram að rabba saman, en dálít- ið seinna, þegar ég var að segja þéim frá öðru merkilegu í Suðurhöfum, sprakk önnur bomban. „Nei, þú skalt ekki reyna að telja mér trú um að í hinum siðaða heimi okkar eigi sér enn stað þrælaverzlun", sagði einn prófessorinn. Hann var kominn við aldur og hafði mikið vangaskegg og til þess að undirstrika þýðingu orða sinna sló hann bylmingshögg 1 borðið.

x

Hrafnista

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hrafnista
https://timarit.is/publication/1980

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.