Hrafnista - 01.12.1948, Síða 48

Hrafnista - 01.12.1948, Síða 48
ao HRAFNISTA verið byggð á ströndinni svo að sjómenn, sem nótt skall á úti á hafi, fengju leiðarmerki til að lenda eftir. Áttavitar voru auðvitað óþekktir, og þó að mögulegt sé að sigla eftir stjörnunum, er ailt ann- að mál að leita lendingarstaðar með slíkri aðferð. Þess vegna voru ljós byggð á aðdjúpum ströndum eða við hafnarmynni, þar sem skip gætu lent. En vitinn, sem byggður var 805 í Bordeaux, hafði gagnstæðan tilgang. Hann markaði stað, sem átti að forðast, og vitar gegna nærri eingöngu því hlut- verki nú á dögum. Ef rif liggur nærri skipaleið, verður viti að varða það. Ef sandbakki er falinn fyrir skipi, sem hætt er við að strandi á honum, verður að merkja hann með ljósi. Ef ógn stafar af eyju, af því að snarpir straumar renna meðfram ströndum hennar, þarf ljós til að gefa farmanninum bendingu um, hvar hættan liggur falin. Og vitar eru ekki aðeins gagn- legir að næturlagi. Á daginn eru þeir ágæt merki handa farmanninum til þess að miða stöðu sína við. í þoku væla þokulúðrar þeirra eins og útburð- ir og senda aðvaranir langt inn í mistursmökkinn, svo að sjómennirnir megi heyra og vita, að þeir eru nserri landi. Hvert ljós starfar út af fyrir sig. Eitt leiftrar reglulega, eitt óreglulega, eitt er rautt og hvítt, eitt aðeins rautt. Önnur ljós geisla stöðugt, en hvert fyrir sig er auðþekkt, þekkist eins og vina- legt andlit. Ef til vill ^r strönd Frakklands bezt lýst í heim- inum. Það er ábyggilega erfitt að ímynda sér nokkra strönd með fullkomnara lýsingarkerfi. Ég hef siglt meðfram strönd Britaníu að næturlagi, hræddur við strauma og storma, sem oft næða um hinn veðrasama Biscayflóa. En ljós vitanna fylla mann fljótt öryggi og draga úr hættunum á klett- óttri ströndinni, gera auðvelt um stöðumiðun, nema í þoku. Því að Frakkar hafa sett vita sína þannig niður, að þegar skip siglir með ströndinni, sér það að minnsta kosti tvo vita í senn. Þarna er hægt að taka krossmiðun á nærri hverju augnabliki, og gætinn farmaður þarf sjaldan að bera kvíðboga út af stöðu sinni á þessum slóðum. Ushantey, klettótt eyja rétt út undan strönd Finisterre, var lengi grafreitur skipa, en nú gnæfir hár viti upp úr brim- froðunni og varar skipin við að sigla tæpt. Áður fyrr urðu allir vitar að hafa stöðuga verði, og hinir þýðingarmestu hafa þá enn í dag, en tækni nútímans fjölgar sífellt sjálfvirkum vitum. Þeir leiftra nákvæmlega með reglulegu millibili. Þeir kveikja ljósin í rökkurbyrjun og slökkva þau í dögun. Sumir þeyta lúðra í þoku. Öðru hvoru þarf þó að heimsækja þá til að endurnýja hin sjálfvirku verkfæri eða hlaða þau með eldsneyti. Og ekki eru öll varðljós sett upp í vita. Margir staðir þurfa aðra tilhögun, og ljósaskip hafa verið teiknuð og byggð til þess að gegna hlutverki vita, þar sem ekki var hægt að byggja þá. Þeim sem ferðast yfir Atlantshafið er einna kunnugast ljósskipið í Ambrosesundi (Ambrose Channel Lightship), sem veltur og heggur við akk- eri utan við hafnarmynnið í New York. En fræg- asta ljósskipið á strönd Ameríku liggur yið Dem- antsrif (Diamond Shoal), þann illræmda stað rétt út af Hatterashöfða. Nokkrum sinnum hefur stjórn- in ætlað að byggja vita á þessu rifi, en sjórinn hef- ur alltaf komið í verkið eða ónýtt það. Á Höfðan- um er viti, en Rifið teygist um það bil níu mílur út af höfðanum, og það er þessi hættulegi sand- bakki sem ljósskipið varðar. Fjóra og hálfa mílu út af bakkanum liggur ljósskipið við akkeri, þar sem er eitthvert versta stormabæli veraldarinnar. Hérna rikkir þetta litla skip í akkerið sitt, lamið stórsjóum, togað af stríðum straumum, yeðrað af ofsavindum. Ljósskipin tákna fleira en hættur. Oft gera þau sama gagn og strandeldrarnir 1 gamla daga, að lýsa bátum, sem hafði seinkað, við að lenda. Þó eru þau sem þessu gegna, oftast látin liggja við akkerið fyrir utan hafnarmynnin og merkja inn- siglingaleið fyrir skip sem koma af hafi. Þannig gegna þau svipaðri skyldu og ljósduflin gera, sem á síðari árum hafa verið notuð til margra hluta, en ljósskipin eru samt miklu auðkennilegri, og varða betur innsiglingu. Dufl eru til margs notuð og eru af ýmsri lögun og stærð, merkja hættusvæði, kafbátagirðingar, sokkin skip, bráðabirgðagirðingar. Sum eru notuð til að festa skipum í höfnum, sum hafa bjöllur eða flautur til að gefa aðvaranir, sem bera ljós. Til- raunir hafa verið gerðar til að samræma lögun og merkingar dufla í öllum löndum, en mörg lönd hafa enn sín eigin snið, og skipstjórar eða yfir- menn skipa í heimsókn í framandi höfnum þarf að kynnast lögun dufla þar í landi. Stundum eru dufl ekki annað en háar trésteng- ur málaðar, sem liggja við akkeri á grunni, meira eða minna lóðréttar. Á hinn bóginn geta dufl verið geysimikil stál- smíði, margar smálestir að þyngd, fjörutíu fet frá toppi til botns, tíu fet í þvermál, með flókinn út-

x

Hrafnista

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hrafnista
https://timarit.is/publication/1980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.