Víkurfréttir - 02.10.2024, Page 9
kirkjunnar en eftir að dóttir mín
hafði kynnst starfi Hvítasunnu-
kirkjunnar og fékk mig til að prófa
að koma á samkomu, þá fann ég
að ég var komin heim. Það er alveg
sami boðskapur í kirkjunum, sami
Guð, sami Jesú og sama Biblían,
svo í raun trúum við því sama en
segja má að Hvítasunnukirkjan
tali meira um heilagan anda og
kirkjan heitir þessu nafni, Hvíta-
sunnukirkja, því Jesús úthellti
heilögum anda á hvítasunnudegi.
Það heillaði mig á sínum tíma að fá
að heyra meira um heilagan anda
og að geta sjálf tekið ákvörðun
um skírn í vatni. Biblían talar um
tvenns konar skírn, þ.e. skírn í
vatni og skírn í heilögum anda. Ég
skírðist í heilögum anda og tók nið-
urdýfingaskírn eins og tíðkast hjá
okkur og líður mjög vel með það.
Fljótlega eftir það var ég komin vel
inn í starf kirkjunnar og í stjórn.
Ég hef alltaf tekið virkan þátt í fé-
lagsstarfi, hvort sem það viðkemur
trú, kirkju eða bæjarmálum, og
eftir breytingar hjá Hvítasunnu-
kirkjunni hér á Akureyri var leitað
var til mín um að taka við forstöðu
og eftir að hafa leitað Guðs var ég
vissi um að það var það rétta í stöð-
unni og hef sinnt því hlutverki frá
árinu 2019 með góðum stuðningi
eiginmannsins.“
AbC hjálparstarf
Frá því að Jóhanna var ung og
heyrði frá kristniboðum í KFUK
af hjálparstarfi í Afríku, dreymdi
hana alltaf um að geta látið gott
af sér leiða þar. Hún og Haraldur
fóru á Alfa-námskeið árið 2009 en
fyrir þá sem ekki vita þá er Alfa-
námskeið kennsla um Guð og
kristna trú. Á námskeiðinu voru
allir spurðir hvað þau hafi langað
að verða þegar þau yrðu stór og
hvað þau væru að gera í dag. Jó-
hanna sagði frá þessum draumi
sínum um hjálparstarf í Afríku og
starfaði dags daglega við bókhald.
Á leiðinni heim af námskeiðinu
spurði Haraldur konu sína nánar
út í þennan draum.
„Ég sagði Hadda að þetta væri
gamall draumur en hann yrði ekki
að veruleika úr þessu. Haddi hélt
nú ekki: „Ef Guð ætlar þér að fara
til Afríku þá opnar hann þér leiðina
þangað,“ sagði hann. Við báðum
fyrir þessu þetta kvöld og það var
ekki að sökum að spyrja, tveimur
vikum seinna kom hópur nemenda
úr Bíblíuskóla í Reykjavík í heim-
sókn og við buðum þeim heim til
okkar í mat eftir að hafa átt stund
með þeim í kirkjunni. Þau voru á
leiðinni til Afríku eftir áramótin og
við matarborðið spyr ein stúlkn-
anna mig af hverju ég komi ekki
bara með þeim til Afríku. Andlitið
datt næstum af mér og ég spurði
hvort ég gæti komið með og það
var slegið þarna á staðnum. Þessi
kvöldstund var haustið 2010 og
í janúar 2011 fór ég með þeim
til Kongó. Þremur árum síðar sá
maðurinn minn auglýstan Biblíu-
skóla í Fljótshlíðinni, innifalin
var ferð til Búrkína Fasó í Afríku
og hvatti hann mig til að skrá
mig. Ég sagðist vera til í að fara
í Biblíuskólann en sagði honum
að ég væri ekki tilbúin til að fara
aftur án hans til Afríku og vildi
fá hann með mér. Þetta var ekki
draumurinn hans og hann sagðist
ekki ætla fara. Þá sagði ég honum
að þar með væri ég ekki heldur
að fara. Sumir gætu haldið fram
að þar með hefði ég stillt honum
upp við vegg en þetta var einfalt í
mínum huga, ég var ekki að fara að
starfa ein í hjálparstarfi í Afríku.
Sannfæringakraftur minn var
greinilega nægur og hann sagðist
vera til í að fara þessa einu ferð
en þar sá hann fljótlega að þarna
gæti reynsla hans og þekking sem
pípulagningameistari heldur betur
komið að góðum notum.“
búrkína Fasó
Búrkína Fasó er eitt fátækasta
ríki heims. Það er í Vestur-Afríku,
íbúar þess eru 22,6 milljónir og
ólæsi er með því hæsta sem gerist
í heiminum. Landið var nýlenda
Frakka en fékk sjálfstæði árið
1960 og í dag ríkir þar herstjórn.
Í landinu eru töluð rúmlega sjötíu
tungumál, franska varð opinbert
mál á nýlendutímanum en hana
tala eingöngu menntaðir íbúar.
ABC barnahjálp hefur rekið
skólann Ecole ABC de Bobo í
borginni Bobo-Dioulasso, sem
er næststærsta borg landsins en
þar búa nú um ein og hálf milljón
íbúa. Skólinn var stofnaður árið
2008 af hjónunum Hinriki Þor-
steinssyni og Guðný Ragnhildi
Jónasdóttur, að beiðni Guðrúnar
Margrétar Pálsdóttur sem stofnaði
ABC barnahjálp á Íslandi. Jóhanna
og Haraldur tóku svo við rekstri
skólans í fyrra.
„Skólinn er rekinn í góðu sam-
starfi við öflugt foreldrafélag og
þar starfa góðir kennarar sem hafa
einn af öðrum verið að bæta við
menntun sína. Þegar skólinn var
stofnaður í upphafi voru 98 börn
skráð í skólann. Við erum að taka á
móti nýjum börnum þessa dagana,
60 fjögurra ára gömul börn auk
153 eldri barna og eftir það verða
börnin orðin rúmlega 1.200, frá
fjögurra ára aldri upp í háskóla,“
segir Jóhanna.
borað eftir vatni í Afríku
Ekki nóg með að hjónin reki
barnaskóla á staðnum, Haraldur
hefur nýtt reynslu sína og kunnáttu
sem pípulagningarmaður.
„Það virtist vera frekar stutt
niður á grunnvatn þarna svo Haddi
sá að það væri góður möguleiki að
ná í vatn og dreifa því á ræktunar-
svæðin. Hann fylltist eldmóði fyrir
verkefninu og frá þessari fyrstu
ferð í febrúar árið 2015 er hann
núna búinn að fara margar ferðir
til Búrkína Fasó og ferðirnar eiga
eftir að verða fleiri, við erum bara
rétt byrjuð. Landið er auðugt af
vatni, það er þarna skammt undir
yfirborðinu en það skorti á þekk-
ingu til að sækja það og heima-
menn höfðu heldur ekki tækni
né fjármagn til þess. Við hófumst
handa við að leggja áveitu- og
neysluvatnslagnir og skapa þannig
betri hreinlætisaðstöðu fyrir skóla-
börnin og tækifæri á að koma upp
ræktunarlandi sem gefur af sér allt
árið. Vatnsveituverkefnið skiptir
mjög miklu málið fyrir samfélagið,
enda þætti mörgum Íslendingum
furðulegt að hafa ekki aðgang að
vatni svo mánuðum skipti. Það
breytir öllu varðandi skólastarfið,
bæði varðandi hreinlæti og ræktun
á mat, að geta haft aðgang að vatni
alla daga og allan sólarhringinn,“
sagði Jóhanna að lokum en ítarlega
viðtal við hana mun birtast á vef
Víkurfrétta, www.vf.is
Þegar skólinn var
stofnaður í upphafi voru
98 börn skráð í skólann.
Við erum að taka á móti
nýjum börnum þessa
dagana, 60 fjögurra ára
gömul börn auk 153 eldri
barna og eftir það verða
börnin orðin rúmlega
1.200, frá fjögurra ára
aldri upp í háskóla ...
Jóhanna eignaðist nöfnu úti í búrkína Fasó.
Hér er hún með fallegu stúlkunni sem var
nefnd í höfuðið á henni og fékk nafnið
Johanna Judith. Myndir/Adam ásgeir óskarsson
Jóhanna og Haraldur eru úti í búrkína Fasó þessa dagana. Hérna eru þau ásamt samstarfsfólki, við hlið Jóhönnu er Þórey
edda Vilhelmsdóttir sem fór með núna í fyrsta sinn, Haraldur Pálsson, eiginmaður Jóhönnu, og Adam ásgeir óskarsson,
fyrrverandi tölvukennari við Verkmenntaskólann á Akureyri. Í heildina verða þau úti í fimm vikur í þessari ferð.
Það breytir öllu varðandi
skólastarfið, bæði varðandi
hreinlæti og ræktun á mat, að geta
haft aðgang að vatni alla daga og
allan sólarhringinn. Haraldur “
Haraldur hefur nýtt reynslu sína og kunnáttu sem
pípulagningarmaður til að bora eftir vaxtni en stutt er
niður á grunnvatn á svæðinu. Hér er hann að fylla á einn af
nokkrum vatnstönkum við framhaldsskólann, sem inniheldur
drykkjarvatn og vatn til handþvotta til að auka hreinlæti.
Starfsmaður AbC skólans sækir
vatn við heimili sitt í brunn sem er
sameiginlegur með nágrönnunum
í einu af hverfunum.
VÍKurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 9