Mosfellingur - 19.12.2024, Blaðsíða 2
Í þá gömlu góðu ...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti MosfelliNgur keMur út 9. jaNúar
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út mánaðarlega.
Nú veljum við bráðlega Mosfelling
ársins í 20. sinn. Skemmtileg
hefð sem við byrjuðum á fyrir
tveimur áratugum
síðan. Hópurinn
sem hlotið hefur
nafnbótina er orðinn
mjög myndarlegur.
Hægt er að senda
inn tilnefningar í
gegnum síðuna
okkar, www.
mosfellingur.is.
Við hvetjum
ykkur til að
leggja höfuðið
í bleyti og hafa
áhrif á valið. Gjarnan má fylgja með
rökstuðningur fyrir tilnefningunni.
Í fyrsta blaði næsta árs munum við
svo heiðra viðkomandi. Mosfellingur
kemur út fimmtudaginn 9. janúar.
Nú eru jólin í næstu viku og
hvetjum við ykkur til að versla
í heimabyggð eins og hægt er. Þið
vitið t.d. að jólatrén kaupum við hjá
Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar og
flugeldana hjá björgunarsveitinni
okkar, Kyndli, svo eitthvað sé nefnt.
Að lokum óskum við ykkur gleði-
legra jóla og njótið samveru með
ykkar besta fólki yfir hátíðarnar.
Valið 20. skipti
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
6 - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ2
Jólin koma
Héðan og þaðan
Þessi fallega mynd og texti var á forsíðu
Mosfellings þann 19. desember árið 2002.
Ritstjórinn Karl Tómasson tók myndina.
Undir myndinni stendur:
Það er eins gott að vanda sig þegar
maður tekur við pakka frá jólasveininum,
þetta eru svo skrítnir karlar. Það ríkti
sannkölluð jólastemning hjá börnum og
starfsfólki Reykjakots á jólaballinu þeirra
á þriðjudaginn.
Ekki dró nú úr stemningunni þegar
Askasleikir kom í heimsókn, dansaði með
þeim í kringum jólatréð og færði svo öllum
gjöf að lokum.