Mosfellingur - 19.12.2024, Blaðsíða 36

Mosfellingur - 19.12.2024, Blaðsíða 36
Team Rynkeby er góðgerðarverkefni sem hófst í Danmörku árið 2002 þegar nokkrir starfsmenn danska safaframleiðandans Rynkeby Foods ákváðu að hjóla frá Dan- mörku til Parísar. Fyrirtækið var aðalstyrktaraðili ferðar- innar, en einnig fengust styrkir frá öðrum fyrirtækjum. Það gekk mjög vel að safna styrkjum, það vel að það varð afgangur og var hann gefinn deild krabbameinssjúkra barna á háskólasjúkrahúsinu í Odense. Team Rynkeby hefur síðan þá stækkað ár frá ári. Þátttakendur hjólaárið 2023-2024 voru um 2.500 hjólarar og aðstoðarfólk í 63 liðum frá 9 löndum. Ísland hefur tekið þátt frá árinu 2017. Öll liðin hjóla til styrktar börnum með alvarlega sjúkdóma, hvert í sínu landi. Ís- lenska liðið safnar nú fyrir Umhyggju, félag langveikra barna. Fyrstu árin var safnað fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB) en það félag nýtur áfram stuðnings Rynkeby í gegnum Umhyggju. Hver og einn hjólar 1.300 kílómetra Nýtt lið er valið að hausti og búið er að velja liðið fyrir 2024-25. Íslenska liðið í ár samanstendur af yfir 40 hjólurum og 8 manna aðstoðarhóp sem kallaðir eru um- hyggjuliðar. Án umhyggjuliðanna kemst liðið ekki langt en það eru alltaf tveir bílar sem fylgja hópnum og sjá um að hafa mat og kaffi til- búið og eins ef eitthvað kemur upp á. Liðið fer með allan mat út og eru það fyrirtæki hér heima sem hafa gefið liðinu þær vörur. Það er ómetanlegt eins og allir þeir styrkir sem fyrirtæki hafa lagt í söfnunina. Liðsmenn greiða sjálfir allan sinn kostn- að (hjól, búnað, ferðir, fatnað, gistingu o.fl.). Ekki er um keppni að ræða heldur hjólar hvert lið saman alla leið. Íslenska liðið mun hjóla af stað 5. júlí frá Kolding í Danmörku til Parísar. Öll liðin hittast svo í París 12. júlí. Hver og einn hjólar um 1.300 km á átta dögum þannig að liðsmenn þurfa að leggja sig alla fram við æfingar yfir veturinn til að vera í stakk búnir að takast á við þetta verkefni. Undirbúningur hafinn fyrir næsta sumar Gaman er að segja frá því að í liðinu í fyrra voru fjórir Mosfellingar sem hjóluðu frá Danmörku til Parísar. Þetta eru þau Börkur Reykjalín Brynjarsson sem hefur tekið þátt þrisvar sinnum, Ragnar Hjörleifs- son sem hefur tekið þátt tvisvar sinnum og hjónin Lárus Arnar Sölvason sem hefur tekið þátt tvisvar sinnum og Louisa Sif Mønster sem hefur tekið þátt einu sinni. Tvö síðarnefndu ætla að taka þátt aftur í ár. Auk þeirra bættust í hópinn hjónin Úlfar Þórðarson sem ætlar að hjóla og Salóme H. Gunnarsdóttir umhyggjuliði. Lárus tekur núna þátt í þriðja skipti og Louisa í annað skipti. Við erum sammála um að það sem drífur okkur áfram er ómet- anlegur vinskapur, hvatning liðsfélaga, sameiginleg markmið og ólýsanlega góð tilfinning að láta gott af sér leiða. Við erum með persónulega reynslu af því að vera foreldrar langveiks barns, en dóttir okkar, Júlía Rut, greindist með bráðahvít- blæði árið 2017 og útskrifaðist 2020. Ferðin í sumar var mjög krefjandi vegna veðurs því af átta dögum rigndi í fimm. Það getur tekið á að hjóla langar vegalengdir í rigningu en þá er gott að rifja upp hvers vegna við erum að þessu. Við hjólum því við getum það og allt gert til þess að safna fyrir Umhyggju. Æfingar fyrir næsta tímabil eru hafnar og vinnan við að safna styrkjum komin á fullt. 32 milljónir afhentar Umhyggju Þann 28. september síðastliðinn afhenti Team Rynkeby lið 2024 söfnunarfé til Um- hyggju að upphæð 31.945.738, en þetta er stærsta einstaklingssöfnun landsins. Við afhendinguna kom fram að söfnun- arféð verður m.a. nýtt í þágu rannsókna og í almenna þjónustu sem félagið veitir langveikum börnum og aðstandendum þeirra. Að lokum viljum við hvetja Mosfellinga og fyrirtæki í bæjarfélaginu að kynna sér verkefnið sem hægt er að gera á www. teamrynkeby.is og á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Styrkja börn með alvarlega sjúkdóma • Louisa Sif skrifar um góðgerðarverkefnið Fjórir Mosfellingar taka þátt í Team Rynkeby verkefninu Safna peningum í hverju landi fyrir sig, fyrir börn með alvarlega sjúkdóma Koma þátttakendum í það gott form að þeir geti hjólað um 1.300 km leið Hafa gaman af og að styðja hvert annað í þessu krefjandi en mjög svo gefandi verkefni. markmið team rynkeby Börkur, Lárus, Louisa og JakoB afraksturinn afhentur umhyggJu við effeiL turninn umhyggJuLiðar í frönsku þema ragnar og framkvæmda- stJóri team rinkeBy Barnabókahöfundurinn Huginn Þór Grétarsson skrifar og gefur út nýstárlegar bækur í ár. Bæk- urnar heita Skrímsli sem bíta og Nammitröllið. Huginn skrifar, hannar mynd- irnar og brúðurnar á bókunum. Bækurnar eru semsagt með litlum brúðum sem krakkar (og fullorðnir) geta leikið með, með því að setja hönd inn í brúðuna, og látið tala, syngja og taka þátt í sögustundinni. Brúðubækurnar er svo hægt að nota til að segja nýjar sögur. Skrímsli sem bíta er um níu kostugleg skrímsli, sem ýmist vilja bíta í putta eða nebba á lesandanum, eða syngja svo skelfilega að börnin fá verk í eyrun. Nammitröllið er svo bók sem byggir á vinsælli bók Nammigrís- inn, einnig eftir Hugin, en er aðlöguð að þessu nýja formi. Tröllið hámar í sig nam- mi og fær illt í magann og þarf að fara til tannlæknis. Það lærir sína lexíu og borðar hollan og góðan mat upp frá þeim degi. Auk brúðubókanna skrifaði Huginn sjö nýjar léttlestrarbækur, endursagði Animal Farm eftir George Orwell og þýddi nokkrar bækur yfir á íslensku. Mánudaginn 2. desember var sannkölluð jólastemning í Kvíslarskóla. Foreldrar voru boðnir velkomnir í skólann og boðið var upp á kakó og piparkökur. Mikill metnaður er lagður í árlegar jóla- hurðaskreytingar. Dómnefndin átti erfitt starf fyrir höndum en komst að því að eft- irfarandi bekkir ættu fallegustu hurðirnar í ár: 1.sæti 9. MLH, 2. sæti 10. ES og í þriðja sæti lenti 10. HMH. Frumlegasta hurða- skreytingin var í höndum 8. EJÚ. - Fréttir úr bæjarlífinu36 Skrímsli sem bíta og Nammitröllið • Óðinsauga gefur út Huginn gefur út nýstár- legar bækur fyrir jólin Árleg hurðaskreytinga- keppni í Kvíslarskóla huginn þór grétarsson metnaður9. mLh8. eJÚ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.