Mosfellingur - 19.12.2024, Qupperneq 10

Mosfellingur - 19.12.2024, Qupperneq 10
 - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ10 Í íþróttamiðstöðinni á Kjalarnesi er nýuppgerður íþróttasalur UMFK, sem einstaklingar og hópar geta leigt eftir að dagskrá félagsins er lokið. Vantar þig íþróttasal fyrir hópinn þinn? Salurinn býður upp á aðstöðu fyrir fjölbreytta íþróttaiðkun - m.a. er þar glæsileg körfuboltaaðstaða þar sem hægt að æfa/keppa á einum stórum (löglegum) velli eða tveimur litlum. Verð fyrir fasta tíma í viku: 6.000 kr. klst. Verð fyrir sérstaka viðburði eins og hópefli, mót, afmæli o.fl. 8.000 kr. klst. handbolti fótbolti badminton tennis brennibolti nánari upplýsingar veitir María í síma 6995724 eða senda póst á salurumfk@gmail.com Súperformhópurinn, undir leiðsögn Bertu Þórhalladóttur, tók höndum saman til að styrkja gott málefni með góðgerðaræfingu sem fram fór í World Class þann 14. desem- ber. Þátttakendur greiddu 3.000 krónur fyrir að taka þátt og rann allur ágóði óskiptur til sumarbúða Reykjadals fyrir fötluð börn og ungmenni. Æfingin fór fram úr öllum væntingum með frábærri mætingu og mikilli orku í salnum. Hópurinn safnaði 155.000 kr. til styrktar Reykjadal og er það ljóst að sam- staða, gleði og hreyfing geta skapað töfra sem skipta máli. Súperformhópurinn skoraði ekki aðeins á sjálfan sig heldur einnig á vini og vanda- menn að taka þátt, með það að markmiði að sameinast fyrir góðan málstað. Þetta er skýrt dæmi um hvernig samvinna, hreyfing og kærleikur geta sameinast í þágu góðs málefnis. „Við þökkum öllum sem mættu og studdu verkefnið og hvetjum alla til að taka þátt í að láta gott af sér leiða – hvort sem það er með því að hreyfa sig, gefa af sér eða hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Gleðilega hátíð!“ Ágóði til Reykjadals • Samvinna, hreyfing og kærleikur Súperform stóð fyrir góðgerðaræfingu flottur hópur í world class Jólatrjáasala í Hamrahlíðarskógi • Opið alla helgina Jólaskógurinn opnaður björn, valdimar og aðstoðarsveinarnir Skógurinn í Hamrahlíð var opnaður form- lega þann 8. desember en það stendur Skógræktarfélag Mosfellsbæjar fyrir sinni árlegu jólatrjáasölu. Álafosskórinn söng, Einar Friðgeir þandi nikkuna og boðið var upp á skógarkaffi. Einar. Jólasveinar komu í heimsókn og aðstoðuðu við að fella tréið en það gerði Valdimar Birgisson sem setið hefur í bæj- arstjórn Mosfellsbæjar að undanförnu. Á myndinni má sjá afraksturinn og Björn Traustason formann skógræktarfélagsins. Skógurinn er opinn um helgina kl. 10- 17 og síðasti söludagur fer fram á Þorláks- messu kl. 10-16. MOSFELLINGUR Hvað er að frétta? Sendu okkur línu... mosfellingur@mosfellingur.is www.fastmos.is Sími: 586 8080 Örugg og góð þjónusta

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.