Mosfellingur - 19.12.2024, Qupperneq 6
- Bæjarblað í 22 ár6
Aðventutónleikar
í kirkjunni í kvöld
Aðventutónleikar Diddúar og
drengjanna fara fram í Lágafells-
kirkju í kvöld, 19. desember kl.
20. Aðventutónleikar Diddúar og
drengjanna hafa verið sérstakur
tónlistarviðburður í menningarlífi
Mosfellsbæjar í rúma tvo áratugi.
Flutt verður aðventu- og jólatónlist
í bland við annað. Um er að ræða
hátíðlega og notalega stund í fallegu
umhverfi. Miðasala fer fram í
kirkjunni og er aðgangseyrir 3.000
kr. en 1.500 fyrir eldri borgara.
Salt fyrir íbúa í boði
á fjórum stöðum
Starfsfólk þjónustustöðvar hefur
í gegnum tíðina boðið íbúum að
sækja sand og salt við húsnæði sitt
að Völuteig 15. Nú hafa þau bætt við
kistum með salti á þremur stöðum í
bænum. Staðsetningarnar eru sem
hér segir:
- við biðskýli í Vefarastræti
- við Helgafellsskóla
- við grenndarstöð Vogatungu
- við grenndarstöð Bogatanga
Nauðsynlegt er að hafa meðferðis
poka eða ílát undir saltið.
Fimmtudaginn 5. desember var haldinn opinn íbúafundur
um Farsældartún sem áður hét Skálatún. Fjölmargir íbúar
hafa sýnt umræðunni um Farsældartún áhuga enda er
farsæld barna og ungmenna málefni sem snertir alla.
Markmið fundarins var að upplýsa íbúa og aðra hags-
munaaðila um þá starfsemi sem er í mótun í Farsældartúni
og framtíðarsýn svæðisins og sóttu tæplega 100 manns
fundinn.
Góðar umræður mynduðust og voru fundargestir al-
mennt sammála um að Farsældartún verði mikil lyftistöng
fyrir Mosfellsbæ þar sem fjölmargir sérfræðingar koma
til með að starfa og veita ráðgjöf á svæðinu auk þess sem
Mosfellsbær setji gott fordæmi fyrir önnur sveitarfélög með
því að hafa farsæld barna og ungmenna að leiðarljósi.
Samningur við mennta- og barnamálaráðuneytið
Á fundinum kynnti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
Mosfellsbæjar samninginn sem gerður var við mennta- og
barnamálaráðuneytið um starfsemi og skipulag í Farsæld-
artúni. Sóley Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfseignar-
stofnunarinnar Farsældartúns fór yfir fyrirhugaða starfsemi
og framtíðarsýn.
Fulltrúar hönnunarteymis, Silja Traustadóttir frá Eflu og
Magnea Guðmundsdóttir frá T Stiku fóru yfir skipulag um
uppbyggingu sem er í mótun í Farsældartúni. Að lokum
kynnti Ólöf Á. Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu
þá starfsemi sem er áætluð í Farsældartúni til framtíðar litið
og starfsemi nýja heimilisins sem verður í bráðabirgðahús-
næði í Blönduhlíð.
Fjölbreytt þjónusta á svæðinu
Farsældartún á að byggjast upp með áherslu á hlýlegt
og fallegt umhverfi fyrir þá þjónustu sem þar verður veitt
af hálfu opinberra aðila, félagasamtaka og einkaaðila. Í
deiliskipulagi Farsældartúns verður gert ráð fyrir nýbygg-
ingum sem verða sérhannaðar fyrir þá þjónustu sem þar
á að veita en í Farsældartúni munu börn, ungmenni og
fjölskyldur sækja fjölbreytta þjónustu, meðferðarúrræði
og tímabundna búsetu og eða vistun.
Einnig er gert ráð fyrir þjónustubyggingum fyrir skrif-
stofur Ráðgjafa- og greiningarstöðvar, Miðstöð menntunar
og skólaþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu. Ekki er gert
ráð fyrir að Stuðlar í heild sinni flytji í Farsældartún, eins
og hefur komið fram í opinberri umræðu.
Vel sóttur íbúafundur um Farsældartún
málefni sem snertir alla
MOSFELLINGUR
kemur næst út
9. janúar
mosfellingur@mosfellingur.is