Mosfellingur - 19.12.2024, Síða 12
- Fréttir úr bæjarlífinu12
Um 200 gestir hættu sér út í vetrarkuldann
til að heyra rithöfunda lesa úr nýútkomnum
bókum sínum á árlegu Bókmenntahlað-
borði Bókasafns Mosfellsbæjar fimmtu-
daginn 28. nóvember.
Áður en dagskrá hófst léku Sigurjón
Alexandersson og Ævar Örn Sigurðsson
ljúfa jazztóna á gítar og bassa við góðar
undirtektir.
Að vanda var létt stemning og fjörugar
umræður, sem meðal annars snérust um
mörk skáldskapar og veruleika.
Þeir höfundar sem lásu úr verkum sínum
að þessu sinni voru Bjarki Bjarnason með
bók sína Gröf minninganna, Jón Kalman
Stefánsson sem las úr Himintungl yfir
heimsins ystu brún, Kristín Svava Tómas-
dóttir önnur tveggja höfunda bókarinnar
Duna: Saga kvikmyndargerðarkonu las úr
bókinni sem fjallar um Guðnýju Halldórs-
dóttur kvikmyndagerðarkonu og Ragnhild-
ur Þrastardóttir las úr Eyju, sem er hennar
fyrsta skáldsaga.
Katrín Jakobsdóttir leiddi umræður af
stakri prýði að þessu sinni, en hún stýrði
Bókmenntahlaðborðinu í fjölda ára.
Katrín Jakobsdóttir snéri aftur sem stjórnandi kvöldsins
Vel heppnað
Bókmenntakvöld
Bjarki, kristín svava, katrín,
jón kalman og ragnhildur
starfsfólk Bókasafnsins á vaktinni
þétt setið í salnum
mikið hlegið lagt við hlustir
Áramóta-
brenna á
gamlársdag
Breytt tímasetning
Kveikt verður í brennunni kl. 16:30
Á gamlársdag verður áramótabrenna haldin
neðan Holtahverfs við Leirvoginn.
Á sama stað og árleg þrettándabrenna.
Mosfellsbær stendur fyrir brennunni í samstarf
við meistaraflokk karla hjá handknattleiksdeild
Aftureldingar en kveikt verður í brennunni kl. 16:30
að þessu sinni. Er það fyrr en verið hefur,
og er breytingin gerð til að svara óskum
fjölskyldna með börn.
Öll meðferð skotelda á svæðinu er bönnuð
Afturelding
handknattleksdeild