Mosfellingur - 19.12.2024, Page 6

Mosfellingur - 19.12.2024, Page 6
 - Bæjarblað í 22 ár6 Aðventutónleikar í kirkjunni í kvöld Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna fara fram í Lágafells- kirkju í kvöld, 19. desember kl. 20. Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna hafa verið sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar í rúma tvo áratugi. Flutt verður aðventu- og jólatónlist í bland við annað. Um er að ræða hátíðlega og notalega stund í fallegu umhverfi. Miðasala fer fram í kirkjunni og er aðgangseyrir 3.000 kr. en 1.500 fyrir eldri borgara. Salt fyrir íbúa í boði á fjórum stöðum Starfsfólk þjónustustöðvar hefur í gegnum tíðina boðið íbúum að sækja sand og salt við húsnæði sitt að Völuteig 15. Nú hafa þau bætt við kistum með salti á þremur stöðum í bænum. Staðsetningarnar eru sem hér segir: - við biðskýli í Vefarastræti - við Helgafellsskóla - við grenndarstöð Vogatungu - við grenndarstöð Bogatanga Nauðsynlegt er að hafa meðferðis poka eða ílát undir saltið. Fimmtudaginn 5. desember var haldinn opinn íbúafundur um Farsældartún sem áður hét Skálatún. Fjölmargir íbúar hafa sýnt umræðunni um Farsældartún áhuga enda er farsæld barna og ungmenna málefni sem snertir alla. Markmið fundarins var að upplýsa íbúa og aðra hags- munaaðila um þá starfsemi sem er í mótun í Farsældartúni og framtíðarsýn svæðisins og sóttu tæplega 100 manns fundinn. Góðar umræður mynduðust og voru fundargestir al- mennt sammála um að Farsældartún verði mikil lyftistöng fyrir Mosfellsbæ þar sem fjölmargir sérfræðingar koma til með að starfa og veita ráðgjöf á svæðinu auk þess sem Mosfellsbær setji gott fordæmi fyrir önnur sveitarfélög með því að hafa farsæld barna og ungmenna að leiðarljósi. Samningur við mennta- og barnamálaráðuneytið Á fundinum kynnti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar samninginn sem gerður var við mennta- og barnamálaráðuneytið um starfsemi og skipulag í Farsæld- artúni. Sóley Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfseignar- stofnunarinnar Farsældartúns fór yfir fyrirhugaða starfsemi og framtíðarsýn. Fulltrúar hönnunarteymis, Silja Traustadóttir frá Eflu og Magnea Guðmundsdóttir frá T Stiku fóru yfir skipulag um uppbyggingu sem er í mótun í Farsældartúni. Að lokum kynnti Ólöf Á. Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu þá starfsemi sem er áætluð í Farsældartúni til framtíðar litið og starfsemi nýja heimilisins sem verður í bráðabirgðahús- næði í Blönduhlíð. Fjölbreytt þjónusta á svæðinu Farsældartún á að byggjast upp með áherslu á hlýlegt og fallegt umhverfi fyrir þá þjónustu sem þar verður veitt af hálfu opinberra aðila, félagasamtaka og einkaaðila. Í deiliskipulagi Farsældartúns verður gert ráð fyrir nýbygg- ingum sem verða sérhannaðar fyrir þá þjónustu sem þar á að veita en í Farsældartúni munu börn, ungmenni og fjölskyldur sækja fjölbreytta þjónustu, meðferðarúrræði og tímabundna búsetu og eða vistun. Einnig er gert ráð fyrir þjónustubyggingum fyrir skrif- stofur Ráðgjafa- og greiningarstöðvar, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu. Ekki er gert ráð fyrir að Stuðlar í heild sinni flytji í Farsældartún, eins og hefur komið fram í opinberri umræðu. Vel sóttur íbúafundur um Farsældartún málefni sem snertir alla MOSFELLINGUR kemur næst út 9. janúar mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.