Mosfellingur - 19.12.2024, Qupperneq 36
Team Rynkeby er góðgerðarverkefni sem
hófst í Danmörku árið 2002 þegar nokkrir
starfsmenn danska safaframleiðandans
Rynkeby Foods ákváðu að hjóla frá Dan-
mörku til Parísar.
Fyrirtækið var aðalstyrktaraðili ferðar-
innar, en einnig fengust styrkir frá öðrum
fyrirtækjum. Það gekk mjög vel að safna
styrkjum, það vel að það varð afgangur og
var hann gefinn deild krabbameinssjúkra
barna á háskólasjúkrahúsinu í Odense.
Team Rynkeby hefur síðan þá stækkað ár
frá ári. Þátttakendur hjólaárið 2023-2024
voru um 2.500 hjólarar og aðstoðarfólk í 63
liðum frá 9 löndum. Ísland hefur tekið þátt
frá árinu 2017.
Öll liðin hjóla til styrktar börnum með
alvarlega sjúkdóma, hvert í sínu landi. Ís-
lenska liðið safnar nú fyrir Umhyggju, félag
langveikra barna. Fyrstu árin var safnað
fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
(SKB) en það félag nýtur áfram stuðnings
Rynkeby í gegnum Umhyggju.
Hver og einn hjólar 1.300 kílómetra
Nýtt lið er valið að hausti og búið er að
velja liðið fyrir 2024-25. Íslenska liðið í
ár samanstendur af yfir 40 hjólurum og 8
manna aðstoðarhóp sem kallaðir eru um-
hyggjuliðar.
Án umhyggjuliðanna kemst liðið ekki
langt en það eru alltaf tveir bílar sem fylgja
hópnum og sjá um að hafa mat og kaffi til-
búið og eins ef eitthvað kemur upp á. Liðið
fer með allan mat út og eru það fyrirtæki
hér heima sem hafa gefið liðinu þær vörur.
Það er ómetanlegt eins og allir þeir styrkir
sem fyrirtæki hafa lagt í söfnunina.
Liðsmenn greiða sjálfir allan sinn kostn-
að (hjól, búnað, ferðir, fatnað, gistingu
o.fl.). Ekki er um keppni að ræða heldur
hjólar hvert lið saman alla leið.
Íslenska liðið mun hjóla af stað 5. júlí frá
Kolding í Danmörku til Parísar. Öll liðin
hittast svo í París 12. júlí. Hver og einn
hjólar um 1.300 km á átta dögum þannig
að liðsmenn þurfa að leggja sig alla fram
við æfingar yfir veturinn til að vera í stakk
búnir að takast á við þetta verkefni.
Undirbúningur hafinn fyrir næsta sumar
Gaman er að segja frá því að í liðinu í
fyrra voru fjórir Mosfellingar sem hjóluðu
frá Danmörku til Parísar. Þetta eru þau
Börkur Reykjalín Brynjarsson sem hefur
tekið þátt þrisvar sinnum, Ragnar Hjörleifs-
son sem hefur tekið þátt tvisvar sinnum og
hjónin Lárus Arnar Sölvason sem hefur
tekið þátt tvisvar sinnum og Louisa Sif
Mønster sem hefur tekið þátt einu sinni.
Tvö síðarnefndu ætla að taka þátt aftur í
ár. Auk þeirra bættust í hópinn hjónin Úlfar
Þórðarson sem ætlar að hjóla og Salóme H.
Gunnarsdóttir umhyggjuliði.
Lárus tekur núna þátt í þriðja skipti og
Louisa í annað skipti. Við erum sammála
um að það sem drífur okkur áfram er ómet-
anlegur vinskapur, hvatning liðsfélaga,
sameiginleg markmið og ólýsanlega góð
tilfinning að láta gott af sér leiða.
Við erum með persónulega reynslu af því
að vera foreldrar langveiks barns, en dóttir
okkar, Júlía Rut, greindist með bráðahvít-
blæði árið 2017 og útskrifaðist 2020. Ferðin
í sumar var mjög krefjandi vegna veðurs því
af átta dögum rigndi í fimm. Það getur tekið
á að hjóla langar vegalengdir í rigningu en
þá er gott að rifja upp hvers vegna við erum
að þessu. Við hjólum því við getum það og
allt gert til þess að safna fyrir Umhyggju.
Æfingar fyrir næsta tímabil eru hafnar og
vinnan við að safna styrkjum komin á fullt.
32 milljónir afhentar Umhyggju
Þann 28. september síðastliðinn afhenti
Team Rynkeby lið 2024 söfnunarfé til Um-
hyggju að upphæð 31.945.738, en þetta er
stærsta einstaklingssöfnun landsins.
Við afhendinguna kom fram að söfnun-
arféð verður m.a. nýtt í þágu rannsókna
og í almenna þjónustu sem félagið veitir
langveikum börnum og aðstandendum
þeirra.
Að lokum viljum við hvetja Mosfellinga
og fyrirtæki í bæjarfélaginu að kynna sér
verkefnið sem hægt er að gera á www.
teamrynkeby.is og á samfélagsmiðlunum
Facebook og Instagram.
Styrkja börn með alvarlega sjúkdóma • Louisa Sif skrifar um góðgerðarverkefnið
Fjórir Mosfellingar taka þátt
í Team Rynkeby verkefninu
Safna peningum í hverju landi fyrir sig,
fyrir börn með alvarlega sjúkdóma
Koma þátttakendum í það gott form
að þeir geti hjólað um 1.300 km leið
Hafa gaman af og að styðja hvert
annað í þessu krefjandi en mjög
svo gefandi verkefni.
markmið team rynkeby
Börkur, Lárus, Louisa og JakoB afraksturinn afhentur umhyggJu
við effeiL turninn
umhyggJuLiðar í frönsku þema
ragnar og framkvæmda-
stJóri team rinkeBy
Barnabókahöfundurinn Huginn
Þór Grétarsson skrifar og gefur
út nýstárlegar bækur í ár. Bæk-
urnar heita Skrímsli sem bíta og
Nammitröllið.
Huginn skrifar, hannar mynd-
irnar og brúðurnar á bókunum.
Bækurnar eru semsagt með
litlum brúðum sem krakkar (og
fullorðnir) geta leikið með, með
því að setja hönd inn í brúðuna,
og látið tala, syngja og taka þátt í
sögustundinni. Brúðubækurnar
er svo hægt að nota til að segja
nýjar sögur.
Skrímsli sem bíta er um níu
kostugleg skrímsli, sem ýmist
vilja bíta í putta eða nebba á
lesandanum, eða syngja svo skelfilega að
börnin fá verk í eyrun. Nammitröllið er svo
bók sem byggir á vinsælli bók Nammigrís-
inn, einnig eftir Hugin, en er aðlöguð að
þessu nýja formi. Tröllið hámar í sig nam-
mi og fær illt í magann og þarf að fara til
tannlæknis. Það lærir sína lexíu og borðar
hollan og góðan mat upp frá þeim degi.
Auk brúðubókanna skrifaði Huginn sjö
nýjar léttlestrarbækur, endursagði Animal
Farm eftir George Orwell og þýddi nokkrar
bækur yfir á íslensku.
Mánudaginn 2. desember var sannkölluð
jólastemning í Kvíslarskóla. Foreldrar voru
boðnir velkomnir í skólann og boðið var
upp á kakó og piparkökur.
Mikill metnaður er lagður í árlegar jóla-
hurðaskreytingar. Dómnefndin átti erfitt
starf fyrir höndum en komst að því að eft-
irfarandi bekkir ættu fallegustu hurðirnar
í ár:
1.sæti 9. MLH, 2. sæti 10. ES og í þriðja
sæti lenti 10. HMH. Frumlegasta hurða-
skreytingin var í höndum 8. EJÚ.
- Fréttir úr bæjarlífinu36
Skrímsli sem bíta og Nammitröllið • Óðinsauga gefur út
Huginn gefur út nýstár-
legar bækur fyrir jólin
Árleg hurðaskreytinga-
keppni í Kvíslarskóla huginn þór grétarsson
metnaður9. mLh8. eJÚ