Mosfellingur - 19.12.2024, Síða 40

Mosfellingur - 19.12.2024, Síða 40
 - Fréttir úr bæjarlífinu40 Laus störf í Mosfellsbæ Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins: www.mos.is/storf Nú þegar jól og áramót nálgast eru margir uppteknir við að skipuleggja hvernig hátíðardagarnir eigi að vera eins og t.d. hvað eigi að vera í matinn, hverjir verði hvar og með hverjum. Þá er gott að muna að þessir hátíð- isdagar eru kærkomið tækifæri fyrir fjölskyldur til að treysta böndin, njóta samverunnar og skapa þannig góðan grunn til að byrja nýtt ár á. Njótum samvista Það er alla jafna mikið að gera hjá öll- um í desember og fólk mikið á ferðinni. Þá er svo mikilvægt að muna að njóta samvista með börnunum okkar. Það eru til ótal margar hugmyndir um hvað er hægt að gera saman og það besta er að þær eru oftast einfaldar í framkvæmd og kosta lítið sem ekkert. Hvernig væri að fara t.d. út í göngutúr með gott nesti og kakó á brúsa? Hægt er að skella sér á skíði og/eða skauta, heimsækja ættingja eða vini, fara í sund, lesa saman við kertaljós, vera með kvöldvöku sem börnin skipuleggja og svo mætti lengi telja. Það er um að gera að virkja þau til að koma með skemmtilegar hugmyndir og skipuleggja þær, börn eru yfirleitt ótrú- lega hugmyndarík. Sköpum minningar Samverustundir fjölskyldna eru af- skaplega dýrmætar og sýna allar kann- anir að börn og ungmenni vilja svo gjarnan verja meiri tíma með foreldrum sínum. Verum samstíga um að gera jólin og áramótin að hátíðarstundum þar sem öll fjölskyldan skemmtir sér saman. Með því sjáum við til þess að börnin okkar eigi góðar, jákvæðar og dýrmætar minningar frá þessum tímamótum. Það er einlæg ósk okkar að öll geti not- ið hátíðanna með frið og gleði í hjarta. Það sem skiptir börnin okkar mestu máli er einfaldlega góð og kærleiksrík samvera í faðmi fjölskyldunnar.  ForvarnarhópurMosfellsbæjar Samvera er besta forvörnin Fræðslu- og Frístundasvið MosFellsbæjar skóla hornið Íslenskar værðarvoðir og púðaver frá Ístex sendu inn þína tilnefningu www.mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.