Mosfellingur - 19.12.2024, Side 49

Mosfellingur - 19.12.2024, Side 49
www.mosfellingur.is - 49 Það hljómar kannski ankannalega en stefnan meirihluta Framsókn- ar, Samfylkingar og Viðreisnar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar virðist einmitt vera þessi. Meirihlutinn samþykkti í haust uppfærslu á samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Að mati okkar í Vinum Mosfellsbæjar fel- ur uppfærslan í sér óljósan ávinning fyrir íbúa bæjarins þegar horft er til næstu ára eða áratugar, en á sama tíma allveruleg fjárframlög til verkefnisins. Þessi sami meirihluti felldi nú á dögum tillögur okkar Vina Mosfellsbæjar í tengsl- um við gerð fjárhagsásætlun bæjarins 2025 til 2028, sem miðuðu að því að Mosfellsbær tæki forystu í að efla almenningssamgöng- ur sem raunhæfan valkost. Strax. Breytingar á rótgrónum venjum og hugarfari taka langan tíma og því ekki til neins að bíða ef tryggja á að þær gríðar- legu fjárfestingar sem Borgarlínan kallar á skili fullum ávinningi þegar þeim lýkur. Liður í því er að byrja án tafar að ala upp nýja kynslóð samgöngunotenda sem lítur á almenningssamgöngur sem eðlilegan hlut af tilverunni en ekki sem eitthvað fyrir þá sem ekki hafa aldur til eða efni á að nota einkabílinn. Innanbæjarstrætó er hugtak sem margoft hefur skotið upp kollinum í umræðu um samgöngur hér í bæ, hvort sem er á samfé- lagsmiðlum, á opnum íbúafundum, í ung- mennaráði – eða jafnvel í tengslum við endurskoðun umhverfis- og loftlagsstefnu Mosfellsbæjar. Inn- anbæjarstrætó sem tengdi betur hverfi bæjarins, nýttist yngri veg- farendum til að komast til og frá skóla, æfingum og frístundum – og drægi þá úr þessu endalausa skutli sem einkennir bæinn okkar í dag. Hægt væri jafnvel að hafa slíkan strætó frían fyrir grunnskólanemendur, til ýta enn frekar undir notkun. Þessi innanbæjarstrætó myndi jafnframt fæða hraðari strætó farþegum sem halda áfram út fyrir bæjarmörkin. En það er jú ljóst að lítill tilgangur væri fyrir innanbæj- arstrætó að dóla sér um hálfan Mosfellsbæ á eftir vagni númer 15. Þess í stað væri hægt að breyta leið númer 15, sem tryggir skjótari tengingu við Reykjavík og önnur svæði með því að aka stystu leiðina um Vesturlandsveg. Tillögurnar okkar snerust um þetta. Bæjarfulltrúar Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar greiddu atkvæði gegn þeim. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. Öll viljum við jú hreyfa okkur meira, borða hollara mat, efla almenningssam- göngur … en bara seinna, ekki núna … Michele Rebora Fulltrúi Vina Mosfellsbæjar í umhverfisnefnd Bætum almenningssam- göngur! En ekki núna … Mosfellsbær mos.is/utivist Vetrarþjónusta við göngustíga um jól og áramót Um hátíðarnar verður vetrarþjónusta göngustíga bæjarins samkvæmt venju en sérstök áhersla verður lögð á þá göngustíga sem liggja um Varmársvæði og að Ævintýragarðinum. Því verða göngustígarnir sem liggja að frisbígolfvelli og hjólabraut vel greiðfærir og leiksvæðin kjörinn vettvangur fyrir útivist og hreyfingu. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þjónustuna, njóta útiveru, samveru og bregða á leik. Lýðheilsa ...fylgstu med okkur www.facebook.com/mosfellingur

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.