Mosfellingur - 19.12.2024, Qupperneq 50
Heilsumolar gaua
- Aðsendar greinar50
Hljóðlátir leiðtogar
Þórir Hergeirsson er besti þjálfari
Íslands, fyrr og síðar. Hann varð
Evrópumeistari um síðustu helgi
með lið sínu Noregi. Hann varð með
sigrinum um helgina sigursælasti
þjálfari í sögu handboltans. Það
sem einkennir hann öðru fremur
er hversu góð manneskja hann er.
Það sýndi sig vel í viðtölum eftir
úrslitaleikinn, bæði við hans eigin
leikmenn og enn meir í viðtali við
þjálfara danska landsliðsins, Jesper
Jensen, sem nánast táraðist á
blaðamannafundi eftir leik í þakkar-
og kveðjuræðu sinni um Þóri.
Ég hef fylgst með Þóri lengi, horft
og lesið mörg viðtöl við hann
og það er akkúrat þetta sem skín í
gegn. Hann skilur fólk, tengir við
það og nálgast það sem manneskjur,
hvort sem það eru leikmenn hans,
þjálfarar eða aðrir sem hann á í
samskiptum við. Hann trúir á gildi
og mælir með því að þjálfarar byrji
snemma að vinna með þau. Búi til
einfaldar, en skýrar samskiptareglur
sem ýti undir að krökkum líði vel á
æfingum og hlakki til að mæta.
Draumar skipta líka máli
samkvæmt Þóri, stórir draumar
eru hvetjandi og við eigum ekki að
draga úr þeim. Þórir ber sér lítið á
brjóst sjálfur, hann lætur verkin tala
og hefur öðlast miklau virðingu í
íþróttaheiminum fyrir það.
Annar hljóðlátur leiðtogi sem ég
hef fylgst með undanfarið er
Nuno Espírito Santo, knattspyrnu-
stjóri Nottingham Forest. Eitt af því
sem hann á sameiginlegt með Þóri
er að trúa á allan leikmannahópinn,
ekki bara byrjunarliðið eins og sumir
þjálfarar. Nuno gerir 4-5 skiptingar í
hverjum leik og það á sinn þátt í að
Forest er í dag í fjórða sæti í erfiðustu
deildarkeppni í heimi. Við getum
yfirfært þetta yfir á
lífið – höldum fast í
gildin okkar og förum
eftir þeim, þorum að
láta okkur dreyma og
trúum á fólkið sem
við stýrum, kennum,
leiðbeinum eða
vinnum með.
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Meirihluti Framsóknar, Samfylk-
ingar og Viðreisnar hefur samþykkt
fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir
árið 2025. Áætlunin er vel unnin af
starfsfólki Mosfellsbæjar og fram-
setning á gögnum skýr og vel sett
fram.
Það er margt gott í áætluninni,
og í mörgum tilfellum er ágæt sam-
staða í bæjarstjórn um hvaða verkefni eigi
að setja í vinnslu í okkar góða bæjarfélagi.
Lögbundin þjónusta og kostnaður við
hana hefur aukist jafn og þétt undanfarin ár
og sú þróun heldur áfram og er það áskor-
un í rekstri sveitarfélaga. Fulltrúar D-lista í
bæjarstjórn benda annað árið í röð við gerð
fjárhagsáætlunar á að það eru gul og jafnvel
rauð blikkandi ljós í fjármálum bæjarins
sem þarf að gefa gaum og bregðast við að
okkar mati.
Aukin lántaka og hækkun
á sköttum og álögum
Það sem einkennir fjárhagsáætlun ársins
2025 er stór og víðtæk framkvæmdaáætlun
og miklar fjárfestingar sem kalla á háar
lántökur sem hækka skuldahlutfall sveit-
arfélagsins enn meira í efnahagsumhverfi
sem er mjög óhagstætt.
Á næsta ári mun Mosfellsbær taka hæsta
lán sem bærinn hefur tekið á einu ári og er
það mjög dýrt fyrir skattgreiðendur í Mos-
fellsbæ í því vaxtaumhverfi sem nú ríkir.
Þetta gerist á sama tíma og tekjur bæjar-
ins hafa aukist mikið m.a. vegna hækkunar
útsvars og skatta og álaga á íbúa, auk þess
sem tekjur af lóðasölu og byggingarréttar-
gjöldum hafa numið 1.700 milljónum frá
því nýr meirihluti tók við rekstri
bæjarins.
Auk aukinnar lántöku til að
mæta auknum útgjöldum munu
skattar og álögur á bæjarbúa halda
áfram að hækka.
Má þar nefna að skattprósenta
fasteignaskatta mun hækka í 0,20
% og er sú prósenta mun hærri
en þekkist í öðrum sveitarfélögum á höf-
uðborgarsvæðinu sem hafa verið að lækka
sína fasteignaskattsprósentu fyrir utan
Reykjavík. Þessi hækkun skattprósentu
kemur ofan í miklar hækkanir á fasteigna-
sköttum undanfarin tvö ár sem allir fast-
eignaeigendur og rekstraraðilar fyrirtækja
í Mosfellsbæ hafa rækilega fundið fyrir.
Rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs
fyrir árið 2025 samkvæmt áætlun er mín-
us 41 milljón þegar búið er að taka frá
einskiptistekjur sem koma frá lóðasölu
og byggingaréttargjöldum. Það er ekki
ásættanleg niðurstaða og sýnir að rekstur
bæjarins er ósjálbær.
Endurskoða þarf áætlanir
og minka þarf kostnað
Fulltrúum meirihlutans er tíðrætt um
erfitt efnahagsástand og að fjárhagsstaða
Mosfellsbæjar sé erfið, en þrátt fyrir það
eru engar tillögur í fjárhagsáætlun bæjar-
ins fyrir árið 2025 um aðhald eða sparn-
að. Til að allrar sanngirni sé gætt þá skal
tekið fram að það er erfitt að hægja á eða
hætta við framkvæmdir sem eru í miðjum
klíðum, svo sem byggingu leikskóla og
íþróttahúss í Helgafelli, framkvæmdir við
uppbyggingu við íþróttasvæðið að Varmá
o.fl. framkvæmdir.
Það er samt nauðsynlegt miðað við að
vaxtastig og verðbólga hafa verið mun
hærri og langvinnari en gert var ráð fyrir og
staða og þróun efnahagsmála er enn mjög
óljós að skoða gaumgæfilega fyrri áætlanir
og rýna hvar hægt er að draga saman og
minka útgjöld.
Það er að okkar mati fulltrúa D-lista í
bæjarstjórn ekki hægt keyra áfram fyrri
áætlanir m.a. kostnaðarsamar breytingar
í stjórnkerfi bæjarins sem eru meðan að-
stæður í efnhagsmálum eru eins erfiðar og
raun ber vitni.
Það þarf að sýna mikla ábyrgð í fjármála-
stjórnun og rekstri, forgangsraða rétt og
gera raunhæfar áætlanir bæði á tekju- og
útgjaldahliðum í þessu umhverfi.
Í rekstri ört stækkandi sveitarfélags eins
og Mosfellbæjar, þarf öflugan samheldinn
og ábyrgan meirihluta, sem er vel inni í
málum og þorir að taka erfiðar pólitískar
ákvarðanir og standa með þeim.
Bæjarfulltrúar D-lista í Mosfellsbæ munu
áfram styðja tillögur meirihlutans sem við
teljum skynsamlegar og góðar, og halda
áfram að koma okkar tillögum og stefnu-
málum á framfæri og leggja þannig okkar
af mörkum til að áfram verði best að búa
í Mosfellbæ.
Ég sendi Mosfellingum öllum bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Ásgeir Sveinsson
Bæjarfulltrúi
Oddviti D-lista
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2025
Þegar núverandi meiri-
hluti í Mosfellsbæ tók
við árið 2022 var fljótlega
ákveðið að ráðast í úttekt
á stjórnsýslu og rekstri
með það fyrir augum að
bæta þjónustu við íbúa
og gera reksturinn skil-
virkari.
Strategía, ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir
sig í úttektum og umbótum, framkvæmdi
úttektina.
Þar var lagður grunnur að nýju skipulagi
þar sem horft var á verkefnin út frá áhersl-
um sveitarfélagsins um að efla þjónustu við
bæjarbúa í stækkandi sveitarfélagi. Með
nýju skipulagi gafst aukið svigrúm til að
skerpa á áherslum varðandi stjórnarhætti,
efla áhættu- og árangursmat, samhæfa
verkefni á milli sviða og deilda, fylgja eftir
umbótum og nýta betur þá tækniþróun
sem hefur orðið í samfé-
laginu.
Nýtt svið, menningar-,
íþrótta- og lýðheilsusvið,
var sett á laggirnar auk
skrifstofu umbóta og
þróunar en þjónustu- og
samskiptadeild var lögð
niður.
Undir skrifstofu umbóta og þróunar falla
verkefni tengd stafrænni umbreytingu,
upplýsingatækni, upplýsingamiðlun,
tölfræði og greiningu, sem og innleiðing
helstu umbótatillagna sem voru lagðar til
í áðurnefndri rekstrarúttekt.
Alls komu fram yfir 70 umbótatillögur
í rekstrarúttekt Strategíu sem verið er að
innleiða eða verða innleiddar.
Ein af umbótatillögunum var um úttekt á
rekstri upplýsingatæknimála Mosfellsbæjar
en hún leiddi í ljós að þörf var á talsverð-
um endurbótum á því sviði. Meðal annars
sameining rekstrarumhverfis upplýsinga-
tæknimál í eitt en þau eru fjögur í dag.
Þá hefur verið farið í umfangsmikla
vinnu við innleiðingu á stafrænum lausn-
um en frá ársbyrjun 2023 hafa 33 stafrænar
lausnir verið innleiddar, þar af er 27 verk-
efnum að fullu lokið.
Þessi vinna heldur áfram því hún hef-
ur sýnt að umbóta er þörf. Vinnan fer að
mestu leyti fram á bak við tjöldin, vinna
sem sést kannski ekki en bætir þjónustuna
við bæjarbúa og sparar kostnað til lengri
tíma.
Í þessum skipulagsbreytingum hefur ver-
ið lögð áhersla á að fjölga ekki stöðugildum
að óþörfu. Markmiðið er skilvirkari stjórn-
sýsla og betri þjónusta við Mosfellinga.
Lovísa Jónsdóttir
Valdimar Birgisson
Nútíma stjórnsýsla
Kæru Mosfellingar
„Hamingjan er hér og nú“ þetta er setn-
ing sem við eigum að endurtaka á hverjum
degi. Augnablikið kemur aldrei aftur. Því
eigum við ekki að fresta því að njóta til-
verunnar hér og nú. Ók. höf.
Okkur í Framsókn langar að óska ykkur,
kæru sveitungar, gleðilegra jóla, hamingju
og góðrar heilsu á nýju ári.
Hver dagur er sem gjöf til okkar og
tíminn flýgur áfram. Hvað sem þú ætlar
að gera, gerðu það. Gerðu það núna, ekki
bíða. Fyllum daginn okkar af gleði, sam-
veru, umhyggjusemi og vöndum ávallt
framkomu okkar.
Njótum þess sem lífið hefur upp á að
bjóða og drögum fram það jákvæða og
fallega í kringum okkur.
Gjöf jólanna er hógværð, mildi og mann-
úð.
Með jólakveðju, Framsókn í Mosfellsbæ
Jólakveðja