Skógræktarritið - 15.05.2006, Side 51

Skógræktarritið - 15.05.2006, Side 51
þessum tíma, en af öðrum gögnum má sjá að hann hefur verið haldinn á tilætluðum tfma. Á þeim fundi hefur félaginu verið sett reglugerð og markmið, vafalaust á mjög svipaðan máta og önnur ámóta félög höfðu sett sér, árgjöld til félagsins ákveðin og því valið nafnið Skógræktar- félag Heiðsynninga. í stjórn voru kosnir Þórður á Ölkeldu, for- maður, Gunnará Hjarðarfelli, gjaldkeri og Páll Pálsson á Borg, ritari. Er ekki að orðlengja það að Þórður var formaður félagsins til ársins 1985, en þá var það komið mjög að fótum fram og taldist varla starfandi. Gunnar á Hjarðarfelli sat í stjórn félagsins til ársins 1977. Auk þeirra rituðu nöfn sín sem meðstjórnendur frameftir árum sr. Þorsteinn L. lónsson, sóknarprestur í Söðuls- holti og Kristján Guðbjartsson, bóndi í Hólakoti, en miklu fleiri komu þar síðan við sögu en hér verði upp taldir. En án þess að nokkurri rýrð sé varpað á nokkurn þann er skipaði stjórn félagsins gegnum árin, má með fullum rétti segja að Þórður á Ölkeldu hafi þegar frá leið verið sá sem lengst af bar hitann og þungann af starfi félagsins. Hann var andlit þess, bæði „innávið og útávið" eins og sagt var í einhverri frægri bók. í hans hlut kom að sjá um dreifingu piantna á vorin og fá heimamenn á hverjum stað til liðs við sig við gróðursetningu þeirra, herútboð sem stundum gat verið sorglega erfitt að fá fólk til að gegna. Hann gekk ævinlega frá ársskýrslum félagsins, sat ársþing Skógræktarfélags íslands svo fremi þau væru ekki haldin á fjarlægustu landshornum og enn mætti fieira telja. Fulls stuðn- ings naut hann að sjálfsögðu frá Gunnari, frænda sfnum á Hjarðarfelli, bæði við skýrsluhald og verklegar framkvæmdir, en á Gunnar hlóðst áður en langt um leið fjöldi trúnaðarstarfa sem kölluðu á krafta hans og gerðu honum óhægara um að sinna skógræktarmálunum svo vel sem hann hefði annars kosið. Starfa hans naut þó oft og lengi. Fleiri voru og til þjónustu reiðubúnir. Geymst hefur meðal gagna félagsins svarbréf frá Hákoni Bjarnasyni til Þórðar á Ölkeldu, dags. 9. jan. 1952, svohljóðandi: Kæri Þórður. „Þakka þér hér með fyrir ágætt bréf og aðgerðir ykkar við stofnun hins nýja skógræktarfélags sunnan fjalls á Snæfellsnesi. Ekki kann ég vel við nafnið Heið- synningar, a.m.k. ekki ennþá. Því miður gat ég ekki komið því við að vera hjá ykkur á þessum tíma, þótt ég hefði feginn viljað. En koma tímar og koma ráð. Hið fyrsta sem þið eigið að gera nú er að æskja upptöku f Skógræktarfélag íslands, því að það er skilyrði fyrir því að þið getið orðið ríkisstyrks aðnjótandi. Til þess þurfið þið að tilkynna það sérstaklega til stjórnar félagsins hér. Annars var um félag ykkar rætt lítilsháttar á síðasta stjórnarfundi og þar talað um að æskilegra hefði verið að þið væruð í samlögum við þá í Hólminum. En úr því hefur sýnilega ekki orðið. Mér líst vel á að þið komið upp heimilisreitum ef þeir eru ekki of litlir við hvern stað. Þeir mega helst ekki vera minni en hektari. Plöntur og girðingarefni munuð þið fá eins og aðrir, en ekki get ég sagt neitt um verð á slíku eins og er. Hvorttveggja er ávalt látið til félagsmanna án nokkurs aukakostnaðar. Um Þórður á Ölkeldu var formaður félagsins um áratuga skeið. beina styrki er ekki að ræða nema styrk ríkisins og er honum skipt samkvæmt athöfnum hvers félags. Þó fá félög ávalt einhvern byrjunarstyrk. Með bréfi þessu fylgir með- limalisti sem Margrét Guðjóns- dóttir í Dalsmynni hafði smalað saman áður en félag ykkar var stofnað. Ef allir félagsmenn og konur hefðu svipaðan áhuga og sú kona, þá væruð þið vel á vegi stödd". Sjálfsagt hefur Hákon ekki verið einn um það að finnast nafn félagsins einkennilegt í fyrstu, og ekki sem viðfelldnast, en það vandist þó áður en langir tímar liðu. Nafnið er fyrst og fremst sótt í Eyrbyggja sögu þar sem segir af ferðum Björns Breið- víkingakappa norður um Kamb- skarð og Fróðárheiði til funda við Þurfði á Fróðá, og virðist í sög- unni einskorðað við íbúa Breiða- vfkurhrepps. í Orðabók Menn- ingarsjóðs segir einfaldlega að orðið heiðsynningar nái yfir það fólk sem býr sunnan heiða. Full rök voru því fyrir þessari nafngift. Hafi einhver orðræða orðið um sameiginlegt skógræktarfélag „með þeim í Hólminum”, eins og segir í bréfinu, þá hefur hún ekki SKÓGRÆKTARRITIÐ 2006 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.