Skógræktarritið - 15.05.2006, Blaðsíða 94
Að skógarhöggi loknu er timbrinu ekið á flutningabílum til pappírsverksmiðjanna eða
sögunarmyllanna. Mynd: JGP.
Skógarhögg og viðarvinnsla hafa tekið miklum breytingum. Á
myndinni til vinstri sést gömul sögunaraðstaða, sem kallast á
ensku pit-sawing og gæti útlagst „gryfjusögun". Þá var notuð
stórviðarsög til að fletta trjábolnum og þurfti til þess tvo menn.
Annar stóð í gryfjunni og hélt í neðri enda stórviðarsagarinnar en
hinn stóð uppi á búkkanum. Síðan toguðust þeir á og söguðu
trjábolina niður. Á myndinni til hægri standa þeir Sæmundur
Þorvaldsson og Njörður Geirdal á skógarhöggsfleti, þar sem
vélvæðingin hefur tekið yfir og timburbunkarnir bfða þess að verða
hífðir á flutningabíla. Myndir: JGP.
Á undanförnum áratugum hefur
orðið mikil áherslubreyting í
skógræktarstarfi Nýfundna-
lendinga. Má segja að með
lagasetningu árið 1975 (Forest
Land Management and Taxation
Act), hafi verið innleiddar reglur
um grisjun og endurnýjun
skóganna, enda þá víða farið að
ganga ótæpilega á skóga
eyjarinnar.
Skógræktarlög sem voru innleidd
árið 1990 festa enn frekar í sessi
áherslur úr lögunum frá 1975.
Þar er fest f sessi grundvallar-
breyting á viðhorfi til skógar-
auðlindarinnar. Horfið er frá þvf
grundvallarviðhorfi að litið sé á
skóginn sem „standandi timbur-
forða", sem skógstjórnin eigi að
snúast um að vernda með
einhliða hagsmuni timbur-
framleiðslu að leiðarljósi. Tekin
er upp sú stefna að lfta á skógana
sem endurnýtanlega náttúru-
auðlind, sem þurfi áfram að
vernda, en ekki síður að rækta, til
að hægt sé að nýta afurðir þeirra
á sjálfbæran hátt um ókomna
framtíð. Staðreyndin er sú að
nýting skóga var lengst af flokkuð
með námagreftri, þ.e. það form
nýtingar náttúruauðlinda sem
einungis er tekið af en ekki
endurnýjað.
Hafist var handa við byggingu
fyrstu skógarplöntustöðvarinnar,
íWooddale skammt utan við
bæinn Grand Falls, í kjölfar
lagasetningarinnar 1975. Sandy
Robertson leiðsögumaður okkar
var fyrsti forstöðumaður stöðvar-
innar og var fyrsta uppskeran
afhent árið 1978. Heimsóttum
við hana, en stöðin framleiðir nú
um 15 milljónir skógarplantna og
er eina umtalsverða stöðin á
eynni. Þessar plöntur eru
gróðursettar á lönd ríkisins f
kjölfar skógarhöggs til þess að
92
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2006