Skógræktarritið - 15.05.2006, Qupperneq 100

Skógræktarritið - 15.05.2006, Qupperneq 100
„Já, það eru tveir menn hérna," heyrðist málmkennd kvenmannsrödd segja og forstjórinn sleppti hnappnum. „Sem sagt, þetta er þá allt saman klappað og klárt," sagði hann, „bara halda fólkinu góðu." Kristján ætlaði að mótmæla, en hugsaði svo með sér að betra væri að fara með löndum, sofa á þessu og vita hvort nóttin færði honum ekki einhverja góða lausn. Og nú sat hann þarna og glennti í sundur bréfaklemmu. Ekki hafði svefninn orðið honum að liði. Öðru nær. Hann var eiginlega enn ráðvilltari núna en í gær og hann misþyrmdi klemmunni og fann hvernig oddurinn stakkst f þumalfingurinn. Blóð spratt fram, fyrst hægt, en svo stækkaði blóðdropinn og hann sleikti blóðið og fann járn- bragð uppi í sér. Hvers vegna þurfti þetta leiðinda- verk endilega að lenda á honum, hugsaði hann, eins og honum þótti vænt um þetta tré. Hann spyrnti í gólfið og ók sér á stólnum út að glugganum. |á, honum þótti vænt um þetta tré og enn meir núna af því að hann vissi hvað til stóð. Þetta tré hafði gefið almanakinu líkt og aukna dýpt. Það sagði fyrir um komu vorsins og þegar sölnuð laufin feyktust ráðvillt til og frá um portið, þá vissi hann að vetur fór í hönd. Stofninn á trénu var gildur og núna voru blöðin iðgræn. Oft undraðist Kristján hvernig það hafði getað náð slíkum þroska hér í þessu umhverfi. Rætur þess hlutu að teygja sig um allt portið og langt undir þetta stóra hús. Djúpt ofan f moldina sótti það næringu sfna, óx og dafnaði, líkt og vildi það storka öllum heiminum. Á hverju vori kom þröstur og bjó sér hreiður í trénu, alltaf í sama krikanum ár eftir ár, og hann söng af jafn miklu skeytingarleysi og tréð óx, söng hátt og dillandi, eins og hann væri að reyna að segja fólkinu f þessu húsi frá einhverjum fögnuði. Þrösturinn söng um víðáttuna, mjúk flögrandi ský, dögg á strá og lyngi. En aðallega söng hann um frelsið og tónarnir ýfðu við einhverju innan f Kristjáni, líkt og kæmu þeir þar við kviku. Hve margan vetrardag hafði Kristján ekki horft út um þennan glugga, grandskoðað nærliggjandi hús, rannsakað hverja sementsörðu, eða horft á fólkið á gangstéttunum, oft sama fólkið dag eftir dag að velkjast um f einhverju tilbreytingarleysi. Stundum óskaði hann þess að eitthvað gerðist sem myndi umturna þessu einhæfa lífi hans, bara eitthvað, óeirðir, götubardagar, loftárás, sama hvað það var, bara að líf hans færi f gang á ný. Þannig leið veturinn, fullur af döprum, köldum hugsunum. En svo kom vorið og þrösturinn settist að í trénu. Söngur fyllti loftið, og bjöllukliður frá ritvélum og þessi söngur kölluðust á, og fólkið í húsinu varð glatt í bragði. Þrösturinn söng um lífið eins og Kristján mundi það frá því hann var lítill drengur. Handan við endalausa daga og nætur var smá ljósop, gluggi út í veröldina eins og hún hafði verið áður en fjórir glerveggir skrifstofunnar luktust um hann. Já, svona hafði þetta verið og nú átti hann að sjá um að eyðileggja þetta tré, deyða það eina sem gerði lífið f þessu húsi einhvers virði. Innanhússíminn tók að hringja og Kristján hrökk í kút. Kannski var það forstjórinn, hugsaði hann... Hvað myndi gerast ef hann neitaði að svara, ekki aðeins f þetta eina skipti, heldur alltaf, bryti sér leið út úr hringnum, út úr þessari pappírsveröld, þar sem ókennilegar tölur og stafir iðuðu líkt og maurar á þúfu? Ef hann neitaði að svara í símann og ekki eingöngu það, heldur neitaði að fara eftir fyrir- mælum forstjórans, neitaði að lúta öðrum kröfum en þeim sem samviskan í eigin brjósti bauð honum? í hugskoti sfnu sá hann fyrir sér nýjan heim. Þar voru ekki þessi yfirþyrmandi glerbákn, engar götur, engin umferðarljós. Heyra mátti trén vaxa og dýrahjarðir reikuðu um slétturnar og hann sjálfur var partur af náttúrunni, vissulega svangur, en engu að sfður frjáls maður. Hann myndi vakna til hungurs að morgni, endalaust hungur, og sofna út frá þvf á kvöldin. Ekki þó samskonar hungur og þjakaði hann núna. Stundum var engu lfkara en hann væri þakinn áli að innan, ekki aðeins maginn, heldur einnig brjóstholið, höfuðið, allt. Þakinn þessum steingráa málmi og verið að skrapa hann allan með skörðóttu dósaloki eða bitlausum hníf. Já, hvað myndi gerast ef hann neitaði að svara, neitaði að gera það sem honum var sagt? Skyldu þeirekki rífa hann á hol?...Þeir hverjir?..Þeir, bara þeir...ÞEIR. Fólkið...Þjóðfélagið. Rífa hann á hol,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.