Skákritið - 01.07.1950, Page 5

Skákritið - 01.07.1950, Page 5
SKAKRITIÐ 1. árgangur. Júlí 1950. 1. tbl. Ávarp ±il íslenzkra skákmanna Skákblað það, sem hér er hleypt af stokkunum, er að vísu engu glæsilegra né búiö betra veganesti en þau mörgu skákblöö, sem hafið hafa göngu sína hér á landi undanfarin 50 ár, en log.nazt út af í blóma lífsins. Mönnum er því vorkunn, þótt þeir taki þessu nýja skákblaði með nokkurri tortryggni, og geri sér engar gyllivonir um fram- tíð þess. Vlestum mun þó þykja eðlilegt, að í landi, þar sem skák er jafnmikið stunduð og á Islandi, hljóti að því að reka, að gefið verði út skákblað, sem unnað verði langra lífdaga. Og því skyldi það ekki geta orðið þetta skákblað? Tæpast mun skákáhugi nokkru sinni hafa verið meiri né almennari á Islandi en nú. Það er og tæpast vansalaust, að um það leyti, er erlendir skák- jöfrar heimsækja land vort í þeim tilg.angi að gera tilraun til að ná æðsta skáktitii Norðurlanda úr íslendingshöndum, skuli ekki bærast líf með skákblaði á Islandi. Viðvíkjandi framtið blaðsins viljum við, sem að útgáfu.þess stöndum, benda á, að ef því verður vel tekið og nægilegur áskrif- endafjöldi fæst, sjáum við engin tormerki á því, að það eigi glæsilega framtíð fyrir höndum. ■ Að endingu færum við öllum íslenzkum skákmönnum okkar beztu kveðjur. SKÁKRITIÐ Sveinn Kristinsson Þórir Ólafsson LANDSBÓKASAFN JVl : 8 1012 ""'ÍSLA.VnS

x

Skákritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skákritið
https://timarit.is/publication/2005

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.