Skákritið - 01.07.1950, Síða 6

Skákritið - 01.07.1950, Síða 6
Skákþixig Norðurlanda í Reykjavík 27. júlí til 10. ágúst 1950. Þessa dagana stendur yfir í Keykjavík skákþing Norræna skák- sambandsins, hið 21. í röðinni, en hið fyrsta, sem haldið er á íslandi. Liðin voru 20 ár frá því að ísland gerðist þátttakandi í skáksambandi Norðurlanda, er ákveðið var, árið 1948, að þingið skyldi haldið hér á landi á þessu ári. Góðír árangrar íslenzkra skák- manna á Norðurlandamótum eftir styrjöldina urðu þess valdandi, að áhugi jókst beggja vegna Atlants- hafsins fyrir því, að auka með þess- um hætti þátttöku íslands í sam- starfi Norðurlandanna á skáksvið- inu, enda þótt fjarlægðin geri báð- um aðilum erfitt um vik kostnaðar vegna. Einnig var nokkurt hik af Islendinga hálfu við að færast þetta í fang, þar eð ekki varð séð fyrir um, að þátttaka frá hinum lönd- unum yrði viðunandi, og hefði þá verið verr af stað farið en heima setið, ef á það hefði skort. — Nú er sýnt, að ekki þarf að kvíða þessu. Þátttaka í skákþinginu er að vísu í minna lagi, en þó engan veginn með lakasta móti. Svo sem kunnugt er, öðlast sigur- vegari í landsliðsflokki réttindi til þátttöku, af Norðurlandanna hálfu, í næstu keppni til að ákvarða hver megi þreyta einvígi við heimsmeist- arann um „kórónu“ hans. Er aug- ljóst af þátttakendaskránni, að baráttan um þetta sæti verður mjög jöfn, og erfitt að gera upp á milli keppendanna um sigurlíkurnar. Ef ég ætti að reyna að spá um frammi- stöðu útlendinganna, mundi ég helzt nefna til A. Vestöl frá Noregi, sém hefur verið jafnsterkasti skákmað- ur Norðmanna undanfarin 3—4 ár. Storm Herseth er gamalkunnur hættulegur árásarskákmaður, en ekki eins jafn. Julius Nielsen er einn traustasti og lærðasti skák- maður Dana, en „friðsamur að eðl- isfari“ og fær því stundum ekki eins góðan árangur og efni standa ' til. Palle Nielsen er ein nýjasta stjarna Dana, um tvítugt, og á eftir að fá verulega eldvígslu, en er efni- legur skákmaður. Svíinn Kinmark er þrautreyndur kappi, sem hefur yfir 30 ára reynslu að ráða í skák- inni og er eftir því hættulegur, en er „stemnings" skákmaður og því nokkuð mislagðar hendur. Sundberg ér einn allra bezti skákmaður Stokkhólms og hraðskákmeistari Svía. — Um íslenzku keppendurna eins og reyndar þá erlendu má segja almennt, að þeir eru traustir full- trúar fyrir landsliðsflokkana á Norðurlöndum. í meistaraflokki er fyrirsjáanlegt að mjög hörð keppni verður og mun ég að óreyndu ætla, að Lárus John- sen og Friðrik Ólafsson muni verða fremstir, en af útlendingunum muni Lethinen frá Finnlandi verða þeim erfiðastur. 2 SKÁKRITIÐ

x

Skákritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skákritið
https://timarit.is/publication/2005

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.