Skákritið - 01.07.1950, Side 17
Úrslit þessi eru vel viðunandi
fyrir báða aðila. Síðustu skákunum
lauk eigi fyrr en á 5. tímanum eftir
hádegi, en matarhlé var klukkan 12.
Skák þeirra Guðm. S. og Jóhanns
Snorrasonar stóð lengst.
Er kappskákunum var lokið, var
enn setzt að borðum og kaffi og
mjólk drukkin. Þá voru og borð-
ræður fluttar. Af Akureyringa
hálfu töluðu þeir Jón Ingimarsson
fararstjóri Norðanmanna, og Björn
Halldórsson, en af Reykvíkinga
hálfu Guðm. S. Guðmundsson og
Eggert Gilfer. Jón Ingimarsson bað
reykvísku skákmennina að flytja
stjórnendum Skáksambands Islands.
egg-junarorð um, að veita taflfélög-
um úti um landsbyggðina meiri upp-
örvun og stuðning, m. a. með því
að senda skákmenn úr Reykjavik
til leiðbeiningar og þjálfunar tíðar
en verið hefur. Þá þakkaði hann
reykvísku skákmönnunum fyrir
harða og drengilega keppni og ósk-
aði þeim góðrar heimferðar og þess,
að þeir mættu heilir til keppni næsta
sumar. Guðm. S. Guðmundsson, far-
arstjóri sunnanmanna, endurgalt
þakkir og árnaðarorð Jóns og óskaði
Norðanmönnum góðrar heimferðar
og framtíðar. Kvöddust menn síðan
og héldu hvorir til síns heima. Var
þá klukkan um 6 e. h.
Við sunnanmenn höfðum enga
viðdvöl á suðurleiðinni, nema snædd-
ur var kvöldverður að Hvítárbakka.
Var komið um tólf leytið til Reykja-
víkur. Þótti öllum förin hafa orðið
hin ánægjulegasta. Slíkar skákferð-
ir milli landshluta eru einkar vel til
þess fallnar að glæða skákáhuga
landsmanna og koma á eðlilegu sam-
starfi milli hinna ýmsu félaga, en
það virðist því miður hafa verið
vanrækt af- stjórn Skáksambands
SKÁKRITIÐ
Ritstjórar og útgefendur:
Sveinn Kristinsson og Þórir
Ólafsson
A byrg ðarmaður:
Guðmundur S. Guðmundsson
SKÁKRITIÐ kemur út mán-
aðarlega, 16 síður í hvert sinn.
Áskriftagjald blaðsins er kr.
50.oo árgangurinn, og er gjald-
dagi 1. janúar.
Einstök blöð kr. 5.oo
Utanáskrift blaðsins er: Skák-
ritið, Njálsgötu 15, Reykjavík.
Afgreiðslu annast Þórir Ólafs-
son, Njálsgötu 15, Reykjavík.
Sími 7549.
18. Hf7f og vinnur. b) 14. — f5;
15. g4!, fxg; 16. Re4 eða Be2 og
hvítur vinnur.
15. Bc4—e2 g7—g6
16. RcS—ej/ Bc5xe3
17. f2xe3 Hc8—c2
18. Rb5—d6 Ha8—f8
Ef 18. — Hxe2, þá 19. Hxf7f,
Kd8; 20. Hf8f og síðan Hxa8.
19. Be2xa6 b7xa6
20. g2—gí Rh5—g7
21. Rei—/67 Bd7—c6
22. Hfl—cl Gefið.
Svartur er algjörlega varnarlaus
og stórkostlegt liðstap er fyrirsjáan-
legt. Ef 22. — Hxcl, þá 23. Hxel,
Bxa4; 24. Hc7f, Kd8; 25. Hxa7 o.
s. frv.
íslands, en þess hlutverk ætti slíkt
að sjálfsögðu að vera.
Sveinn, Kristinsson
SKÁKRITIÐ
13