Golf á Íslandi - 01.12.2008, Síða 33
33GOLF Á ÍSLANDI • DESEMBER 2008
okkar miðla og öll liðveisla verður stirðari og erfiðari.
En það þýðir ekki að það eigi að leggja árar í bát,
heldur þurfum við að endurskipuleggja okkur, sýna
ráðdeildarsemi og vera útsjónarsöm. Fjárhagsáætlun
okkar ber vott af samdrætti og varkárni, því satt best
að segja vitum við ekki hvort eða hvenær botninum
er náð og hvenær fótfesta og viðspyrna verður raun-
hæf. En lífið heldur áfram, grasið mun spretta áfram
á golfvöllunum. Golfið er jú lífstíll eða eins og Danir
segja “Golf er en sport for livet“. Við missum því ekki
móðinn heldur höldum ótrauð áfram,“ sagði forseti
GSÍ á formannafundinum.
GR fjölmennasti klúbburinn með 2.927 félagsmenn
Klúbbmeðlimir á Íslandi eru 14.741 og koma þeir úr 61
golfklúbbi, samkvæmt upplýsingum sem fram komu
í ársskýrslu Golfsambands Íslands sem lögð var fram
á formannafundinum í nóvember. Þar kemur fram að
unglingar 15 ára og yngri eru innan við 10% af þess-
um fjölda, eða 1.452.
Fjölmennasti klúbburinn á Íslandi er Golfklúbbur
Reykjavíkur með 2.927 meðlimi og þar af 208
unglinga sem eru 15 ára og yngri. Síðan kemur Golf-
klúbbur Kópavogs og Garðabæjar með 1.616 meðlimi,
þar af 194 sem eru 15 ára og yngri. Minnsti klúbburinn
er hins vegar Golfklúbbur Húsafells með aðeins tvo
meðlimi.
Í mörgum klúbbum, sérstaklega á Austurlandi eru
mjög fáir unglingar sem stunda golf ef marka má
þessar tölur. Einungis 22 meðlimir 15 ára og yngri eru
skáðir í klúbb á Austurlandi og eru þeir allir í sama
klúbbnum. Golfklúbbur Vestmannaeyja er með öflug-
asta unglingastarfið ef marka má tölurnar, þar sem
þriðjungur klúbbmeðlima er 15 ára og yngri.
Golf Iceland með nýja heimasíðu
Golfsambandið stóð fyrir stofnun samtaka, Golf
Iceland, til eflingar á heimsóknum erlendra kylfinga á
íslenska golfvelli á síðasta
ári. Flestir golfklúbbar með
18 holu velli voru meðal
stofnenda ásamt hótelum,
bílaleigum og Icelandair.
Kosin var stjórn samtak-
anna á stofnfundinum
Golfklúbbur Reykjavíkur 208 - 2.719 = 2.927
Golfklúbbur Kópav. og Garðab. 194 - 1.422 = 1.616
Golfklúbburinn Keilir 128 - 1.234 = 1.362
Golfklúbburinn Oddur 42 - 1.211 = 1.253
Golfklúbburinn Nesklúbburinn 48 - 564 = 612
Golfklúbburinn Kjölur 67 - 509 = 576
Golfklúbbur Suðurnesja 77 - 473 = 550
Golfklúbbur Akureyrar 59 - 457 = 516
Golfklúbburinn Leynir 86 - 325 = 411
Golfklúbburinn Þorlákshöfn 4 - 377 = 381
Golfklúbbur Vestmannaeyja 110 - 231 = 341
Golfklúbbur Bakkakots 27 - 299 = 326
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar 16 - 246 = 262
Golfklúbburinn Hveragerði 28 - 213 = 241
Golfklúbbur Sandgerðis 29 - 149 = 178
Golfklúbbur Borgarness 26 - 144 = 170
Golfklúbbur Grindavíkur 21- 145 = 166
Golfklúbbur Selfoss 14 - 139 = 153
Golfklúbburinn Hellu 23 - 129 = 152
Golfklúbbur Ísafjarðar 7 - 138 = 145
Golfklúbburinn Mostri 20 - 113 = 133
Golfklúbburinn Öndverðarnesi 12 - 121 = 133
Golfklúbburinn Flúðir 13 - 118 = 131
Golfklúbbur Húsavíkur 22 - 108 = 130
Golfklúbburinn Kiðjaberg 7 - 120 = 127
Golfklúbbur Álftaness 21 - 98 = 119
Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 22 - 93 = 115
Golfklúbbur Sauðárkróks 20 - 91 = 111
Golfklúbbur Ólafsfjarðar 28 - 65 = 93
Golfklúbbur Bolungarvíkur 8 - 75 = 83
Golfklúbbur Norðfjarðar 0 - 83 = 83
Golfklúbburinn Hamar 15 - 67 = 82
Golfklúbburinn Vestarr 4 - 76 = 80
Golfklúbburinn Hvammur 12 - 58 = 70
Golfklúbburinn Dalbúi 4 - 61 = 65
Golfklúbburinn Úthlíð 1 - 63 = 64
Golfklúbbur Hornafjarðar 0 - 62 = 62
Golfklúbbur Ásatúns 2 - 59 = 61
Golfklúbburinn Vík 0 - 60 = 60
Golfklúbburinn Glanni 1 - 54 = 55
Golfklúbbur Patreksfjarðar 1- 51 = 52
Golfklúbbur Siglufjarðar 8 - 41 = 49
Golfklúbburinn Gláma 6 - 38 = 44
Golfklúbburinn Jökull 0 - 43 = 43
Golfklúbburinn Ós 4 - 38 = 42
Golfklúbburinn Þverá 0 - 40 = 40
Golfklúbburinn Setberg 1 - 34 = 35
Golfklúbbur Fjarðarbyggðar 0 - 34 = 34
Golfklúbbur Skagastrandar 4 - 29 = 33
Golfklúbbur Seyðisfjarðar 0 - 29 = 29
Golfklúbbur Eskifjarðar 0 - 27 = 27
Golfklúbbur Bíldudals 1 - 25 = 26
Golfklúbbur Staðarsveitar 1 - 20 = 21
Golfklúbburinn Gljúfri 0 - 16 = 16
Golfklúbbur Djúpavogs 0 - 15 = 15
Golfklúbburinn Laki 0 - 14 = 14
Golfklúbbur Hólmavíkur 0 - 12 = 12
Golfklúbbur Mývatnssveitar 0 - 12 = 12
Golfklúbbur Húsafells 0 - 2 = 2
Samtals: 1.452 - 13.289 = 14.741
Hér má sjá fjölda klúbbmeðlima á Íslandi 2008:
(Klúbbur, 15 ára og yngri - 16 ára og eldri, samanlagt)
og hefur hún skipt með sér verkum og er Magnús
Oddsson formaður nefndarinnar. Heimasíða samtak-
anna hefur nú litið dagsins ljós og verið er að vinna
að því að fá stuðningsaðila til eflingar á markaðsstarfi
samtakanna.
Ætlunin er að fara á ferðaráðstefnur með kynningar-
efni og taka á móti blaðamönnum frá erlendum golf-
tímaritum í vor og hugmyndir eru um að bjóða upp á
alls konar golfpakka. Ráðinn hefur verið tímabundinn
starfsmaður í hlutastarf til að fylgja málum eftir en
það er Eggert Ágúst Sverrisson. Vonast er til að þetta
efli ferðaþjónustu í tengslum við golfíþróttina.
GR og GK stigameistarar golfklúbba
Á formannafundi GSÍ voru afhentir stigameistarabikar-
ar golfklúbba í karla– og kvennaflokki fyrir árið 2008.
Stigameistari golfklúbbana í karlaflokki er Golfklúbb-
ur Reykjavíkur með 36.400 stig, en 32 kylfingar unnu
stig fyrir klúbbinn á árinu. Stigameistari golfklúbba í
kvennaflokki er Golfklúbburinn Keilir með 26.508 stig,
en 13 kylfingar unnu stig fyrir klúbbinn á árinu.
Samkvæmt ákvörðun golfþings um stigamót er
nú einnig teknar saman upplýsingar um heildar
stigafjölda golfklúbbana að loknu keppnistímabilinu.
Stigameistari golfklúbba er sá klúbbur sem hlýtur
flest sameiginleg stig úr öllum stigamótum ársins á
Kaupþingsmótaröðinni. Með sameiginlegum stigum
er átt við öll stig klúbbfélaga á árinu óháð fjölda
þeirra sem keppa á hverju móti.
Ólafur Þór Ágústsson flutti ávarp um SÍGÍ.