Golf á Íslandi - 01.12.2008, Side 50

Golf á Íslandi - 01.12.2008, Side 50
50 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is Fimm Norðurlandabúar, fjórir Svíar og einn Norðmað- ur, voru meðal þeirra 32 kylfinga sem tryggðu sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni 2009 á úrtöku- mótinu á PGA Golf de Catalunia á Spáni í nóvember. Svíinn Oskar Henningsson, sem er aðeins 23 ára, lék best allra í mótinu. Hann lék 108 holur á samtals 21 höggi undir pari (66-66-65-74-69-69) og var fjórum höggum á undan Spánverjanum Carlos Del Moral, sem varð annar. Oskar fékk 18.595 evrur í verðlauna- fé. Hinir þrír Svíarnir sem komust inn á mótaröðina eru Joakim Haeggman, Åke Nilsson og Henrik Nyström. Norðmaðurinn Eirik Tage Johansen hafnaði í 7. sæti og náði inn á mótaröðina eins og hann gerði reyndar líka í fyrra. Oskar varð fyrsti kylfingurinn í sögu úrtökumótanna sem fer í gegnum öll þrjú stigin og stendur uppi sem G O L F fréttir LÆRISVEINN STAFFANS VANN ÚRTÖKUMÓTIÐ Fimm Norðurlandabúar komust inn á Evrópumótaröðina Oskar Henningsson sigurvegari á lokamótinu. „Þetta er frábært. Ég er búinn að æfa mjög vel og undirbúa mig undanfarin tvö ár með það markmið í huga að ná inn á mótaröð- ina núna. Ég var með mikið sjálfstraust allan tímann og fann ekki fyrir neinni taugaspennu. Ég bjóst þó aldrei við því að vinna lokamótið - kom hingað fyrst og fremst til að tryggja mér þátttökurétt á Evrópu- mótaröðinni á næsta ári,“ sagði Oskar. Þess má geta að þjálfari hans er Staffan Johansson, landsliðsþjálfari Íslands. Joakim Haeggman, sem er fertugur og lék m.a. í Ryder liðinu 1993, komst aftur inn á mótaröðina aftur eftir hafa átt við meiðsli að stríða síðustu ár. Hann hafnaði í fimmta sæti. Åke Nilsson, sem er 26 ára frá Kristian- stad, komst einnig inn á Evrópumótaröðina. Hann spilaði aðallega á sænsku mótaröðinni í ár og vann m.a. sænska meistaramótið í holukeppni. Fjórði Svíinn sem komst inn er Henrik Nyström, sem er 39 ára frá Ullna. Hann hefur verið atvinnukylfingur í 14 ár. Einn þeirra sem náði inn á Evrópumótaröðina var enski táningurinn Chris Wood, sem lék best áhuga- manna á Opna breska meistaramótinu í sumar. Hann deildi 5. sæti með Heaggman á samtals 15 höggum undir pari. Yfir 900 kylfingar reyndu fyrir sér á úrtökumótinu að þessu sinni. 156 þeirra komust inn á lokamótið á Spáni og eftir sex erfiða daga þar stóðu 32 upp með kort inn á mótaröðina 2009. Sex íslenskir kylfingar reyndu fyrir sér á fyrsta stigi úrtökumótsins og komst enginn þeirra áfram. Sigurður Garðarsson var kjörinn formaður Golfklúbbs Suðurnesja á aðalfundi klúbbsins í byrjun des. Hann tek- ur við starfinu af Gunnari Þórarinssyni sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir sex ára formennsku. Heildartekjur klúbbsins á starfsárinu námu 58 milljónum króna og tap ársins var upp á rúmar 1,4 milljónir króna. Ársreikningar og skýrsla stjórnar voru samþykktir einróma á fundinum. Eftir kaffihlé voru tillög- ur stjórnar um árgjöld fyrir árið 2009 lagðar fram, en í þeim eru sömu gjöld og fyrir árið 2008. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 var lögð fram og endurspeglar hún ástandið í þjóðfélaginu, tekjur dragast saman og einnig er töluverður samdráttur í útgjöldum. Báðar þessar tillögur voru samþykktar. Sigurður Garðarsson sagði í stuttu ávarpi eftir kosn- inguljóst að mikið starf væri framundan á erfiðum tímum en mörg góð tækifæri væru einnig í spilunum. Áherslurnar framundan væru þríþættar. Í fyrsta lagi að styrkja félagsstarfið, endurskoða allan reksturinn og síðast en ekki síst að reyna af fremsta megni að halda uppi gæðum og þjónustu á Hólmsvelli sem allir væru sammála um að væri meðal bestu golfvalla á landinu. „Það er ljóst að við þurfum að reiða okkur á félagana í kreppunni. Við þurfum að sýna ráðdeild og útsjónar- semi og ég er bjartsýnn á að það takist því í hópi fimm- hundruð félaga er mikill mannauður,“ sagði Sigurður. Gylfi Kristinsson sem verið hefur framkvæmdastjóri GS undanfarin átta ár hefur tekið við starfi umboðsmanns VÍS á Suðurnesjum og lauk starfi sínu hjá klúbbnum á aðalfundinum sem framkvæmdastjóri. Hann gaf þó kost á sér til stjórnarstarfa GS. Á aðalfundinum þakkaði fráfarandi formaður, Gunnar Þórarinsson Gylfa og Þórði Karlssyni sem setið hefur í stjórn samfleytt síðustu sextán ár. Það hefur enginn annar gert nema Hörður Guðmundsson, fyrrverandi formaður GS en hann lést fyrr á árinu. Fengu þeir Gylfi og Þórður afhentar fallega loftmynd af Hólmsvelli eftir Oddgeir Karlsson. Töluverð endurnýjun var á stjórn GS. Uppstillingarnefnd lagði fram tillögu að stjórn Golfklúbbs Suðurnesja og var hún samþykkt. Þar eru m.a. þau Einar Einarsson, körfuboltaþjálfari og Anna María Sveinsdóttir, ein besta körfuboltakona Íslandssögunnar en þau ætla að kom að unglingastarfi klúbbsins. Stjórn GS fyrir næsta starfsár skipa eftirtaldir: Formaður: Sigurður Garðarsson Aðalstjórn: Helga Sveinsdóttir, Jón Ólafur Jónsson, Kjartan Már Kjartansson, Þröstur Ástþórsson, Björn Víkingur Skúlason og Páll Hilmar Ketilsson. Varamenn í stjórn: Gylfi Kristinsson, Einar Guðberg Einarsson og Anna María Sveinsdóttir. Sigurður er nýr formaður GS Þórður Karlsson, Gunnar Þórarinsson og Gylfi Kristinsson, allir á tímamótum hjá GS.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.