Golf á Íslandi - 01.12.2008, Síða 67
67GOLF Á ÍSLANDI • DESEMBER 2008
komnir niður á þrjú svæði sem koma til greina. Það
er í fyrsta lagi svæðið hér við Svarfhól upp með ánni,
austan megin við núverandi golfvöll. Ef við fengjum
þetta svæði gætum við hugsanlega nýtt hluta af
núverandi velli. Við höfum aðeins verið að þreifa á því
við landeiganda sem er ábúandi á jörðinni.
Annar valkostur er á landssvæði sem liggur á milli
Eyrarbakka og Stokkseyri. Það svæði er að mestu í
eigu Árborgar. Þriðji valkosturinn er síðan austur í
Bitru. Þar er búið að bjóða okkur ókeypis land undir
18 holu golfvöll. Okkur finnst þessi tvö síðarnefndu
svæði vera nokkuð langt frá Selfossi. Við viljum helst
hafa völlinn nær okkur, sérstaklega fyrir krakkana.
Þess vegna viljum við reyna fyrst að fá þetta svæði
hér austan við núverandi golfvöll og það er fyrsti
valkostur hjá okkur. Þá gætum við mögulega nýtt eitt-
hvað af þessum fjárfestingum sem eru fyrir. Þetta er
líka mjög skemmtilegt svæði. Við höfum hér ánna og
hún spilar skemmtilega inn í völlinn og hann er stutt
frá bænum,“ sagði Bárður.
Vilja byggja 18 holu völl
Svarfhólsvöllurinn er á fallegum og góðum stað, á
bakka Ölfusár rétt austan við Selfoss. Völlurinn er
nú allur í Flóahreppi, en var áður að hluta til inn í
Árborg. Samningurinn við Kaupfélag Árnesinga var
gerður fyrir 22 árum og gilti til þrjátíu ára sem Bárður
segir að hafi þótt nokkuð langur tími á sínum tíma.
Í honum voru þó uppsagnarákvæði sem núverandi
landeigandi, byggingarfélagið Ferjuholt, hefur nýtt
sér. Uppsagnarfrestur er tvö ár og átti klúbburinn því
að missa landið að óbreyttu eftir eitt ár. Landeigand-
inn tók þó fram í uppsagnarbréfi að hugsanlegt væri
að framlengja samninginn, en þá aðeins til árs í senn.
Bárður segir að vegna efnahagsástandsins í þjóðfél-
aginu gæti alveg eins farið svo að klúbburinn fengi
að halda landinu næstu 5 til 10 árin, en þeir hafi hins
vegar hærri markmið og vilji byggja 18 holu golfvöll.
„Meðan við höfum þennan níu holu golfvöll, sem
okkur finnst alveg þokkalegur, viljum við nýta tímann
og byggja upp 18 holu golfvöll. Okkur finnst lag núna
í krepputíð að fara í þessar framkvæmdir sem fyrst.
Nú er hægt að fá ódýrar vinnuvélar og annað í upp-
byggingu á nýjum golfvelli hvar svo sem hann kemur
til með að verða. Sveitafélagið Árborg er búið að gefa
út viljayfirlýsingu um að vera með okkur í þessari upp-
byggingu. Við þurfum væntanlega þennan vetur til
að ganga frá samningum um endanlegt landssvæði
undir 18 holu golfvöll. Síðan fer einhver tími í að
hanna og teikna og ég vonast til að við getum hafið
framkvæmdir við nýjan 18 holu völl seinni hluta árs
2009,“ segir Bárður sem hefur verið stjórnarmaður í
Golfklúbbi Selfoss í 12 ár og þar af formaður síðustu
þrjú ár.
Þrír vellir á 35 árum
Leigusamningurinn um núverandi vallarsvæði rennur
út næsta haust, „en við höfum fengið vilyrði fyrir því
að framlengja um ár í senn. Það er reyndar ekki búið
að skrifa undir neitt í sambandi við það. Við vonumst
til að geta verið á núverandi svæði þar til við erum
búnir að koma okkur upp varanlegum 18 holu velli og
flutt okkur beint yfir á hann,“ sagði formaðurinn.
Golfklúbbur Selfoss hefur gert þrjá velli í liðlega 35
ára sögu sinni. Sá fyrsti var við Engjaveg í þéttbýlinu
á Selfossi. Þá var gerður völlur í Alviðru í Grímsnesi
en eftir að klúbbnum var vísað þaðan var hann land-
laus um tíma en fékk síðan land í Laugardælum með
samningum við Kaupfélag Árnesinga og hefur unnið
að uppbyggingu Svarfhólsvallar síðustu tuttugu
árin. Bárður segir að búið sé að leggja mikla fjármuni
í Svarfhólsvöll, bæði í beinhörðum peningum og
ómældri sjálfboðaliðsvinnu. „Því væri besti kosturinn
ef hægt væri að nýta hluta af vellinum í uppbygg-
ingu á 18 holu velli og að því stefnum við.“
„Við erum búnir að skoða staði undir 18 holu framtíðar golfvöll
og erum komnir niður á þrjú svæði sem koma til greina.“
Teiggerð á nýju 3. brautinni sem verður par 3. Bárður Guðmundsson til vinstri.
Gamla þriðja flötin mun stækka og verður par 3. Fjórða flötin á neðri myndinni.