Golf á Íslandi - 01.12.2008, Qupperneq 88
88 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
„Tréjárnið“
„Ég átti heima á Akureyri, skammt frá gamla golfvell-
inum við Þórunnarstræti. Einhvern veginn álpaðist
ég út á golfvöll 8 ára gamall ásamt félögum mínum.
Við fylgdumst með tilburðum karlanna á vellinum,
fórum að vera caddiar hjá þeim og vorum þar nánast
daglegir gestir. Ég var lengi caddie hjá Hafliða heitn-
um Guðmundssyni og dró fyrir hann alveg þar til ég
var fjórtán eða fimmtán ára gamall. Einn félagi minn,
Þengill Valdimarsson, átti kylfu sem hafði verið sett á
tréskaft. Við kölluðum þessa kylfu alltaf tréjárnið. Við
bjuggum til tveggja holu völl á túninu ofan við heima-
vist menntaskólans og þar spiluðum við fram og til
baka. Holurnar sem við gerðum voru frekar vinalegar,
í stærri kantinum enda notuðum við Macintosh dollur
fyrir holur. Við vorum þarna mikið, ég Gunnar Þórðar-
son, Þengill og Árni Kjartansson. Ég var líklega með
mestan áhuga því ég laumaðist oft heim til Þengils og
fékk lánaða kylfuna hjá mömmu hans og fór einn út á
völl að slá. Þessi kylfa var notuð í allt, jafnt teighögg
sem pútt. Þetta er kylfa sem er líklega á bilinu 3-4 járn
í dag. Ég tók strax nokkuð rétt grip á meðan Þengill
vinur minn var alltaf með krosshent grip, með vinstri
höndina fyrir neðan þá hægri.“
„Níu ára gamall fór ég í golfkennslu hjá Magnúsi Guð-
mundssyni, sem hafði verið Íslandsmeistari á þessum
tíma. Þá var aðstaða í lögreglustöðinni sem var í bygg-
ingu í Þórunnarstræti. Þar voru sett upp net og æft og
slegið. Ég fékk mikinn áhuga á þessari íþrótt. Ég var
reyndar líka í fótbolta á þessum árum og síðar í hand-
bolta og körfubolta. Nánast í öllum íþróttum nema
lyftingum og róðri. Það var alltaf mitt fyrsta verk þeg-
ar fór að vora, að fara suður á golfvöll og þar var ég
meira og minna öll sumur. Ég eignaðist fljótlega tré-
kylfu og pútter og síðan fékk ég fyrsta golfsettið mitt.
Það var Pam Higgins kvennasett, sem í var 3, 5 og 7
járn, pútter og „Brassi“ sem telst vera 2-tré í dag. Þetta
sett notaði ég þar til ég var 14 ára, reyndar bættist við
eitt fleygjárn í pokann á þessum tíma.“
Mætti í vaðstígvélum
Fyrsta unglingamótið hjá Golfklúbbi Akureyrar var
haldið 10. apríl 1964, en þá var Björgvin á ellefta ári.
„Ég man að ég vann þetta fyrsta mót sem ég tók þátt
í, spilaði á 55 höggum (9 holur). Þetta var 7-8 manna
mót og Viðar bróðir minn varð í öðru sæti. Þetta
sumar var fyrsta Íslandsmót unglinga haldið í Vest-
mannaeyjum og var það haldið samhliða Íslandsmóti
fullorðinna eins og var síðan gert í nokkurn tíma. Við
fórum þrír ungir drengir frá Akureyri, þeir gömlu tóku
okkur með. Þetta var mikið ferðalag. Farið á tveimur
Land Rover bílum til Reykjavíkur og gist á Hjálpræð-
ishernum. Síðan var flogið til Vestmannaeyja og var
það jafnframt fyrsta flugferðin mín. Í Vestmanna-
eyjum var gist í verbúð Ársæls Sveinssonar. Þetta var
í júlí 1964 og ég þá 11 ára gamall. Þetta var gríðarlegt
ævintýri. Við spiluðum 36 holur á fjórum dögum, 9
holur á dag. Í mótinu tóku aðeins sjö keppendur þátt.
Eyjólfur Jóhannsson vann mótið, en ég hafnaði í öðru
sæti og Viðar bróðir í þriðja. Hinir sem tóku þátt voru
Jón Haukur Guðlaugsson, Hans Isebarn, Haraldur
Ringsted og Elías Kárason, sem lék á „vaðstígvélum“
allan tímann. Við venjulegir menn vorum á striga-
skóm nema Jón Haukur sem var á golfskóm og naut
verulegrar aðdáunar og öfundar annarra unglinga. Ég
var yngstur í þessum hópi.“
Íslandsmeistari í fyrstu tilraun
Árið 1970 varð Björgvin í fyrsta sinn Íslandsmeistari
unglinga, þá 17 ára gamall og var þá keppt bæði í Leir-
unni og á Hvaleyrinni, 36 holur á hvorum velli. Árið
eftir varð hann gjaldgengur í Íslandsmót fullorðinna
og var mótið þá haldið að Jaðri og vann hann mót-
ið á sínum heimavelli. „Það var hörkukeppni og það
þurfti umspil milli mín og Björgvins Hólm um titilinn.
Hann átti fjögur högg á mig þegar fimm holur voru
eftir og ég náði að jafna með rúmlega tveggja metra
pútti á lokaholunni. Svo tæpt var það að boltinn hékk
á barminum í nokkrar sekúndur áður en hún datt í hol-
una. Ég hafði síðan betur á síðustu holu í þriggja holu
umspili,“ sagði Björgvin um fyrsta Íslandsmeistaratitil
sinn í fullorðinsflokki.
Á þessum tíma urðu kynslóðaskipti í golfinu. Þá voru
að koma fram á sjónarsviðið kylfingar eins og Loftur
Ólafsson, Ragnar Ólafsson, Geir Svansson, Sigurður
Thorarensen og síðan Sigurður Pétursson. Loftur
vann Íslandsmótið 1972 og var þá 18 ára eins og Björg-
vin hafði verið árið áður. „Ég var í öðru sæti á eftir Lofti
í þessu móti, aðeins tveimur höggum á eftir, en vann
síðan titilinn fimm næstu ár á eftir, síðast 1977“.
Um eftirminnilegasta Íslandsmótið sagði Björgvin:
„Það er auðvitað fyrsta mótið sem ég vann stóra tit-
ilinn 1971. Þá voru tvö Íslandsmót í Grafarholtinu þar
sem ég var í hörkukeppni við Ragnar Ólafsson. Ég
byrjaði síðan að berjast um titilinn aftur 1996, var þá
í 3.-4. sæti. Það var fyrsta mótið sem Birgir Leifur Haf-
þórsson vann og fór fram í Vestmannaeyjum. Ég var
í lokahollinu tvo síðustu hringina. Þá var Birgir Leifur
að koma nýr inn. Ég sá þá strax að hann hafði mikla
hæfileika til að ná langt, við vorum ekkert mjög líkir
spilarar.“
Björgvin var með fast sæti í landsliðinu frá 1971 til
1985 og fór síðan aftur inn í landsliðið 1996 og spilaði
m.a. í Evrópumóti landsliða 1997 og 1999 og Norður-
landamótum á þessu tímabili. Ég spilað m.a. við Sví-
ann Henrik Stenson á Ítalska opna áhugamannamót-
Björgvin Þorsteinsson
Starfsheiti: Hæstaréttarlögmaður.
Fæddur: 27. apríl 1953.
Eiginkona: Jóna Dóra Kristinsdóttir ljósmóðir .
Barn: Steina Rósa, fædd 6. nóvember 1976.
Fóstursonur: Kristinn Geir Guðmundsson, fæddur
20. maí 1980.
Barnabörn: Sindri Þór Jónsson, Kolbrá Sól Jónsdótt-
ir, Styrmir Jökull Einarsson og Katla Nótt Einarsdótt-
ir
Forgjöf: 3,2
Uppáhalds völlur á Íslandi: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds völlur erlendis: Cypress Point í Kaliforníu.
Golfpokinn: Taylor Made dræver og 3-tré,
Adams 7-tré, Hogan járn-kylfur.
Ping (long) pútter. Golfbolti: Titleist Pro V1.
Helsti árangur: Sexfaldur Íslandsmeistari 1971,
1973, 1974, 1975, 1976 og 1977. Vann fyrsta titilinn
18 ára gamall og er enn á fullu sem keppnismaður
í íslensku golfi. Klúbbmeistari GA 9 sinnum, 1971,
1972, 1974, 1976, 1977, 1978, 1979, 1987 og 1991.
Varð m.a. Íslandsmeistari í sveitakeppni öldunga
með GA síðasta sumar.
Hola í höggi (7 sinnum):
1. 1975: Jaðarsvöllur (6. hola)
2. 1980: Höfn í Hornafirði (4. hola)
3. 1981: EM í Esbjerg í Danmörku (13. hola)
4. 1993: Jaðarsvöllur (18. hola)
5. 1986: Grafarholtsvöllur (2. hola)
6. 1999: EM á Ítalíu (13. hola)
7. 2008: Grafarholtsvöllur (2. hola)
„Þetta var mikið ferðalag. Farið á tveimur Land
Rover bílum til Reykjavíkur og gist á Hjálpræðis-
hernum. Síðan var flogið til Vestmannaeyja og
var það jafnframt fyrsta flugferðin mín. Í Vest-
manneyjum var gist í verbúð Ársæls Sveinsson-
ar. Þetta var í júlí 1964 og ég þá 11 ára gamall.
Þetta var gríðarlegt ævintýri...“
V I Ð TA L Björgvin Þorsteinsson, sexfaldur Íslandsmeistari, í viðtali við Golf á Íslandi: