Golf á Íslandi - 01.06.2016, Blaðsíða 8
Í flestum golfkúbbum landsins tíðkast að kylfingar,
sem náð hafa vissum aldri, fái afslátt af árgjaldi sínu.
Nemur afslátturinn í mörgum tilvikum 20-25% af fullu
gjaldi. Slík afsláttarkjör eru góðra gjalda verð og skýrast
m.a. annars af því að golfkúbbar vilja verðlauna þá
félagsmenn sem lengi hafa verið hluti af klúbbnum.
En með hækkandi meðalaldri er hætt við því að tekjur
golfklúbba dragist saman í framtíðinni, að öðru óbreyttu,
þar sem fullborgandi félagsmönnum fer fækkandi.
Við þeirri þróun er mikilvægt að bregðast.
Eðlilegast er að byrja á hinum endanum, þ.e. hjá yngstu kylfing
unum. Golfklúbbar landsins hafa undanfarin ár stundað öflugt
barna- og unglingastarf sem hefur skilað sér í töluverðri aukningu
kylfinga yngri en 16 ára. Árið 2008 voru 1.372 kylfingar undir
16 ára skráðir í golfklúbba á meðan fjöldinn var kominn í 1.727
árið 2015. Þetta gerir 26% fjölgun kylfinga í aldurshópnum á
aðeins sjö árum! Það verður að teljast góður árangur og markmið
golfhreyfingarinnar hlýtur að felast í því að halda áfram á sömu
braut og ekki síður að halda í þá ungu kylfinga sem þegar eru
skráðir. Mikið brottfall unglinga á menntaskólaaldri er staðreynd
í íslensku golfi og það sama á við um aðrar íþróttagreinar. Það er
að mörgu leyti skiljanlegt þar sem alls konar ný viðfangsefni taka
við hjá þessum aldurshópi. Það jákvæða er hins vegar að margir
eiga afturkvæmt á golfvöllinn síðar á lífsleiðinni og þar stendur
golfíþróttin öðrum íþróttum ef til vill framar.
Kylfingar framtíðarinnar eru þeir sem enn eru ekki farnir að leika
golf ásamt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref. Golfíþróttin
á mikið undir því að börn og unglingar hrífist af íþróttinni og
gildum hennar. Þess vegna langar mig til þess að hvetja ykkur,
lesendur góðir, til að taka sérstaklega vel á móti þessum kylfingum
á golfvöllum landsins. Þeim kunna að fylgja aðeins meiri læti en þið
eigið að venjast og þeir hafa enn ekki lært allar reglurnar og siðina
en það gerir ekkert til. Golf á að vera skemmtilegt og börn verða að
fá að vera börn – hvort sem það er á golfvellinum eða annars staðar.
Virðingarfyllst,
Haukur Örn Birgisson
Forseti Golfsambands Íslands
Íslenska þjóðin er að eldast.
Á síðustu 20 árum hefur meðal
aldur Íslendinga hækkað um
fjögur ár og á sama tíma fjölgar
þeim sem lifa lengi. Þótt það sé
vissulega jákvætt að lífsgæði
Íslendinga aukist og lífaldur
hækki þá má golfhreyfingin vera
á varðbergi gagnvart hækkun
meðalaldurs, enda má heimfæra
þróunina yfir á íslenska kylfinga.
Hvað ungur nemur, gamall temur
8 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Forseti Golfsambands Íslands