Golf á Íslandi - 01.06.2016, Page 18

Golf á Íslandi - 01.06.2016, Page 18
Karl og dregur fram merkilega bók með fundargerðum frá árunum 1942-1950 þar sem árangur félagsmanna var skráður samviskusamlega niður í hinum ýmsum íþróttagreinum. Keppnisskapið hefur alltaf verið til staðar hjá Karli og hann náði að komast í landslið öldunga sem er merkilega góður árangur hjá kylfingi sem hóf ekki að leika golf fyrr en á sextugsaldri. „Ég var eiginlega bestur þegar ég var sjötugur. Þá var ég með 10 í forgjöf en í dag er ég með 15,6. Þegar ég hafði rétt til þess að keppa til landsliðs 70 ára og eldri var ég fyrstur til þess að tryggja mig inn í liðið. Ég er ekki mikið að spá í forgjöfina núna en ég vil leika undir aldri og það tekst nú oftast en högglengdin hefur minnkað mikið, ekki síst eftir lærbrotið í fyrra. Ég er vongóður um að þetta lagist á næsta ári.“ Karl er ekki í vafa að kunnátta hans frá því hann var ungur hafi nýst vel í golfinu og þar koma sveitastörfin við sögu. „Ég var mikið í því að slá með orfi og ljá og það þurfti að beita bolvindu við þá iðju. Golfsveiflan er ekkert ólík því sem maður beitti þegar þýfð tún voru slegin með orfi og ljá. Við þurftum að stýra ljánum og ég er viss um að þessi kunnátta nýttist mér þegar ég byrjaði í golfi,“ segir Karl. Þrívegis hefur Karl farið í landsliðsverkefni með öldungalandsliðinu og einu sinni endaði liðið í þriðja sæti. „Landsliðsferðirnar eru eftirminnilegar og gaman að fá að kynnast slíkum mótum og leika með kylfingum frá öðrum þjóðum. Ég hef notið þess að fá að fara til Spánar, Portúgals og Frakklands að keppa, það var ógleymanlegt. Ég hef gríðarlega gaman af því að keppa og Íslandsmót eldri kylfinga hafa verið fastir liðir hjá mér. Að vera í síðasta ráshóp á Urriðavelli á Íslandsmóti 70 ára og eldri var skemmtilegt.“ Karl segir það nánast ómögulegt að taka eina golfholu á Íslandi út fyrir sviga og útnefna hana sem eftirminnilegustu holu landsins eftir ferðalagið um Ísland. „Ég verð samt að nefna Bergvíkina á Hólmsvelli í Leiru, mér finnst gríðarlega gaman að standa á þeim teig og slá. Sömu sögu er að segja af 17. brautinni í Vestmannaeyjum.“ Fer daglega í golf með félögunum Karl fer nánast daglega í golf með þeim Helga Guðmundssyni, Pétri Skarphéðinssyni og Jónasi Ragnarssyni. „Það koma dagar hér á Selsvelli þar sem við heimamenn komumst varla að. Ég reyni að fara flesta daga með strákunum og veðrið skiptir engu máli. Við klæðum veðrið bara af okkur.“ Besti árangur Karls í höggleik er 75 högg á Strandarvelli á Hellu eða +5 á rauðum teigum. „Núna er ég hundfúll ef ég spila yfir aldri. Ég lék á 85 höggum um daginn og fékk eina sprengju, átta högg á 8. braut og missti tvö smápútt, það kostaði það að ég fór yfir aldurinn. Það verður alltaf erfiðara og erfiðara, höggin eru styttri en áður,“ segir Karl og er rokinn af 1. teig með golffélögum sínu á Selsvelli á Flúðum. SagaPro – minna mál með 18 holur www.sagamedica.isFæst í apótekum, heilsu- og matvöruverslunum Leikfélagarnir: Jónas Ragnarsson, Karl, Helgi Guðmundsson og Pétur Skarphéðinsson. Selsvöllur er skemmtilegur 18 holu völlur þar sem gróður og tré eru helstu einkenni vallarins. Stuðlabergið setur svip sinn á völlinn. 18 GOLF.IS - Golf á Íslandi „Keppnisskapið er enn til staðar“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.