Golf á Íslandi - 01.06.2016, Síða 77
Rafferty er enn viðloðandi golfið. Hann spilar á mótaröð eldri kylfinga,
lýsir golfi í sjónvarpi og útvarpi og ferðast víðs vegar um heiminn og
heldur fyrirlestra. Hann hélt einmitt einn slíkan hér á landi á dögunum. Þá
uppfræddi hann unga afrekskylfinga frá Íslandi í aðstöðu Golfklúbbsins
Keilis um hvað þarf til að komast í fremstu röð í íþróttinni. Golf á
Íslandi hlýddi á fyrirlesturinn sem haldinn var í Hraunkoti, glæsilegri
æfingaaðstöðu Keilismanna, og ræddi við hann að honum loknum.
„Þetta er enn golf, en þetta er ekki það golf
sem ég þekkti fyrir 30 árum,“ segir Rafferty
um golfíþróttina í dag. Hann sér gríðarlegar
breytingar á öllum sviðum leiksins. Ekki
hefur aðeins orðið bylting á þeim búnaði
sem kylfingar nota og gerir þeim kleift að slá
bæði lengra og af meiri nákvæmni, heldur
hafa sjálfir kylfingarnir tekið stakkaskiptum.
„Það er vinnan sem leikmenn leggja á sig
í dag, hvort sem það er í tækjasalnum eða
á æfingasvæðinu. Við æfðum aldrei. Við
slógum nokkra bolta áður en við fórum út
að spila en gerðum ekkert á eftir. Í dag eru
menn í ræktinni í tvo tíma áður en þeir
fara út, þeir slá 200 bolta áður en þeir fara
út að spila og svo fara þeir aftur í ræktina
þegar þeir koma inn. Á meðan við vorum
ekki að keppa á mótum tókum við okkur frí
en þessir kylfingar fara strax í að undirbúa
næsta mót. Þeir leikmenn sem ná árangri í
dag eru þeir sem helga sig alfarið leiknum.
Þetta er enn golf, en þetta er ekki það golf
sem ég þekkti fyrir 30 árum. Vinnan nú er
svo miklu meiri. Ferðalögin eru sömuleiðis
miklu meiri. Þessir kylfingar eru líkamlega
vel á sig komnir og slá boltann miklu lengra
en við gerðum nokkurn tímann.“
Í fyrirlestri sínum sagði Rafferty að þegar
hann var á mótaröðinni hafi hugarfarið
verið um það bil 20 prósent af leiknum.
Í dag sé hugarfarið jafn mikilvægt og tækni
leg geta. „Við unnum aldrei neitt í andlega
þættinum. Bestu kylfingarnir í dag eru með
heilt teymi á bak við sig sem aðstoðar þá
við allt. Þeir eru með íþróttasálfræðinga á
sínum snærum, sérstakan þjálfara fyrir stutta
spilið og annan fyrir langa spilið. Þeir eru
með einkaþjálfara, næringarfræðinga og svo
framvegis. Þetta snýst nefnilega ekki bara
um að slá boltann langa vegalengd. Þetta
snýst um að vera andlega tilbúinn til að
keppa á mótum, að halda einbeitingu allar
72 holurnar undir álagi. Þetta skilar árangri
því þegar upp er staðið getur aðeins eitt
högg skorið úr um hvort þú sigrar á risamóti
eða ekki.“
Rory bestur
en Tiger breytti leiknum
Það stóð ekki á svarinu þegar Rafferty var
spurður að því hver væri besti kylfingur
heims í dag, því varla var við öðru að búast
en að Norður-Írinn nefndi landa sinn, Rory
McIlroy. „Þegar Rory spilar vel er hann
ósigrandi. Hann er góður alhliða kylfingur
sem er á góðri leið með að verða hinn
fullkomni leikmaður. Það er hrein unun
að horfa á hann þegar hann slær vel af
teig.“ Að mati Raffertys á Tiger Woods þó
stóran þátt í velgengni Rorys. „Þegar Seve
[Ballesteros] og Nick [Faldo] voru að vinna
mót í Bandaríkjunum, þá hvatti það okkur
áfram. Það er það sama með Tiger. Hann
kom sem ferskur andblær inn í golfið. Hann
sló lengra en aðrir, sökkti öllum púttum og
Ingvar Andri Magnússon úr GR ætlar án
efa að komast í þessa aðstöðu seinna á
ferlinum að handleika Ryderbikarinn.
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgni
eftir
leikinn
fyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Skelltu þérí laugina
78 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Þetta er ekki það golf sem ég þekkti fyrir 30 árum