Golf á Íslandi - 01.06.2016, Qupperneq 81
innanhússaðstöðu þar sem þeir geta slegið,
púttað og vippað. Það er mikilvægt því til
að ná árangri verða kylfingar að geta æft allt
árið um kring. Ég bý í Skotlandi og það er
ekkert svona til þar. Það er augljóslega verið
að leggja mikið á sig til að þetta gangi upp.“
Það er ekki aðeins aðstaða fyrir afreks
kylfinga sem heillar Rafferty, heldur eru
íslenskir áhugakylfingar öfundsverðir,
samanber fjölda golfvalla á Íslandi miðað
við fólksfjölda. „Ég hefði haldið að vellirnir
væru 15 eða 16 talsins, ekki 65. Það er
líka mjög jákvætt að hér eru margir níu
holu golfvellir því það eru kröfur um að
golf gangi hraðar fyrir sig. Tíminn er mjög
stór þáttur í þessu. Sú staðreynd að hér
eru 65 golfvellir og fólk getur í flestum
tilfellum bara mætt og spilað er algjörlega
frábært. Aðstaðan er til staðar nánast úti í
vegarkanti, það þarf ekki að leita hana uppi.
Það þarf bara að mæta, spila níu holur sem
tekur um það bil einn og hálfan tíma.“
Seve Ballesteros er eftirminnilegasti kylfingurinn
sem Rafferty hefur leikið með. Mynd/Golfsupport
Rafferty segist hafa notið þeirrar blessunar að
hafa spilað með mörgum af helstu goðsögnum
golfsins. Hann var fljótur til svars þegar hann
var spurður hver var sá eftirminnilegasti og ekki
laust við að það kæmi blik í augu hans. „Því miður
er Seve ekki lengur á meðal vor. Ungir kylfingar í
dag gætu lært svo mikið af honum en þekkja hann
kannski bara á myndum. Hann var algjörlega
stórkostlegur og hafði gríðarlegt
ímyndunarafl á vellinum. Það var
tignarlegt að horfa á hann spila
þegar hann var upp á sitt besta.
Hann hafði reisn, hann sló
frábær högg og ég man þegar
hann sigraði á Opna breska
á Lytham öðru sinni, þá sló
hann 65 högg á lokahringnum
og lét það líta út fyrir að vera auðvelt. Seve upp
á sitt besta er trúlega með því magnaðasta sem
maður sér í golfi.“
Seve
var tignarlegur
Ekki hægt að búa sig undir
upphafshöggið í Ryder-bikarnum
„Ryder-bikarinn er algjörlega einstakur,“ svarar Rafferty þegar hann
er spurður út í hápunkt ferilsins. Hann komst í Evrópuliðið eftir frábæra
frammistöðu á Evrópumótaröðinni 1989 og spilaði með goðsögnum á borð
við Seve Ballesteros, Nick Faldo, José Maria Olazábal og Bernhard Langer.
Keppnin, sem fór fram á Belfry, var æsispennandi og endaði 14:14 en Evrópu
liðið hélt titlinum þar sem það hafði unnið keppnina áður. „Maður nýtur þess
kannski ekki á meðan á leik stendur því keppnin tekur verulega á taugarnar.
Þetta er ekki eins og á venjulegu golfmóti þar sem kylfingar eru dreifðir um
allan völl og athyglin víða. Það eru kannski fjórir leikir í gangi á vellinum og 55
þúsund manns sem elta mann á röndum. Það er ekki hægt að búa sig undir að
slá upphafshöggið á fyrsta teig. Maður stendur yfir boltanum, verður að hitta
brautina og veit að það eru milljónir manna í 147 löndum sem fylgjast með öllu
sem maður gerir. Ég hef verið mjög heppinn á ferlinum, unnið mörg mót og
verið í forystu á Opna breska þegar níu holur voru eftir, en það jafnast ekkert á
við Ryder-bikarinn.“
ALICANTE GOLF
HAUSTFERÐIR GOLFSKÁLANS TIL
Golfskálinn býður upp á fjölmargar og
fjölbreytilegar golfferðir til Alicante Golf
á Spáni sem fjöldi íslendinga þekkir, enda
verið vinsæll golf áfangastaður íslendinga
á Alicante svæðinu undanfarin ár.
Meðal golfferða sem við bjóðum upp á til Alicante Golf fyrir utan
þessar almennu golfferðir eru ferðir fyrir heldri kylfinga (65 ára og
eldri), golfskóli fyrir byrjendur og lengra komna og Golfgleðin sem
hefur notið vinsælda undanfarin ár, (áður kölluð Golfskálaferð).
Við bendum sérstaklega á 4 og 5 nátta ferðirnar okkar sem er
nýbreytni í skipulögðum golfferðum til Spánar, (verð frá 129.900 kr.).
Þetta eru ferðir sem henta þeim sem vilja taka langa golfhelgi á góðu
verði. Fjögurra nátta ferð gefur möguleika á allt að 7-8 golfhringjum
og fimm nátta ferð gefur möguleika á allt að 9-10 golfhringjum, (í sól
og stuttbuxum).
Við viljum þó ítreka að ef uppsettar dagsetningar og lengd ferða
henta ekki þá erum við alltaf tilbúnir að sérsníða ferðir eftir þörfum
hvers og eins.
Nánari upplýsingar og bókanir í ferðirnar okkar á golfskalinn.is
82 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Þetta er ekki það golf sem ég þekkti fyrir 30 árum