Golf á Íslandi - 01.06.2016, Page 107

Golf á Íslandi - 01.06.2016, Page 107
Þú færð golfkortið og nestið hjá okkur á leiðinni á völlinn www.n1.is facebook.com/enneinn Hluti af góðri sveiflu Ekki aðeins ætlað betri kylfingum Það eru margir kylfingar sem telja að sérsmíðaðar kylfur séu aðeins ætlaðar betri kylfingum en það er langt frá því að vera rétt. Birgir Vestmar leggur áherslu á að byrjendur njóti þess mest að fá rétta útbúnaðinn frá upphafi. „Það er algengur misskilningur og „mýta“ að þeir sem teljast vera lakari í golfíþróttinni eigi ekkert erindi til okkar í þessu fagi. Þessu er í raun öfugt farið. Ég get hjálpað slakari kylfingunum miklu meira með sérsmíði. Þeir sem eru lengra komnir í golfi ná oft að bæta upp og laga sig að kylfunum sem henta þeim ekki á meðan byrjendur og háforgjafarkylfingar lenda í miklum vand­ ræðum sem þeim gengur illa að vinna úr. Sem dæmi má nefna að betri kylfingar ná oft að laga sig að kylfunni og fara að loka aðeins kylfuhaus sem er opinn. Það algengasta sem ég rekst á er að dræverarnir eru of langir og of léttir. Legan á kylfuhausnum í járnasettinu getur einnig verið óhentug fyrir kylfinginn. Sumir eru með járn sem virka eins og öll högg séu slegin þannig að boltinn sé fyrir ofan fætur. Það fer allt í sveig til vinstri eða hægri af því að kylfuhausinn er ekki réttur fyrir viðkomandi,“ segir Birgir. Bestu kylfingar heims með styttri dræver Hann bendir á tölfræði frá PGA og víðar þar sem fram kemur að bestu kylfingar heims noti flestir drævera sem er búið að stytta um eina tommu og þyngja sköftin. „Meðallengd á dræver út úr búð er 45,5 tommur en á PGA mótaröðinin er meðallengdin 44,5 tommur. Það fer ekki eftir því hvort þú ert hávaxinn eða lágvaxinn. Það sem skiptir máli er hvenær þú hittir boltann á miðjuna á kylfu hausnum. Bubba Watson frá Bandaríkunum er með 44,5 tommur, Sergio Garcia frá Spáni er með 43,75 tommur, Tiger Woods var árið 2001 með 43,5 tommu lengd á skaftinu.“ Birgir Vestmar segir að margir noti 3-tré í teighöggunum og ein skýringin er sú að sú kylfa er um 43 tommur að lengd. „Ég held að það hafi allir heyrt af kylfingum sem ráða ekki við dræverinn en nota 3-tréð í staðinn í teighöggin. Þrátt fyrir að dræverinn sé með mun stærri höggflöt. Þegar ég skoða dræverinn hjá þessum kylfingum er skaftið oftast of langt og alltof létt. Það verður til þess að vondu höggin verða alveg skelfileg en þessu er hægt að breyta með mælingum og réttum upplýsingum.“ Sem dæmi má nefna að kylfa sem er gerð 25 gr léttari skilar einni mílu í auknum sveifluhraða og sú aukning skilar tveimur metrum í högglengd. Birgir er á þeirri skoðun að þyngra og styttra skaft sé betri lausn fyrir flesta kylfinga, nákvæmnin verður mun meiri, vondu höggin verða mun betri og högglengdin verður jafnvel meiri. Þetta er undratækið Flight Scope sem gefur upplýsingar sem eru hárnákvæmar. Mynd/seth@golf Birgir gerir ýmsar mælingar á viðskiptavinum sínum og hér mælir hann handleggina á Pálma. Mynd/seth@golf.is Hér límir Birgir límmiða á kylfuhausinn og þá er hægt að sjá hvernig boltinn hittir á höggflötinn. Mynd/seth@golf.is Pálmi hitti bara alls ekki á rétta staðinn í þessu höggi og það sér greinilega. Mynd/seth@golf.is Birgir Vestmar notar nýjustu tækni til þess að ná fram réttu kylfunni fyrir viðskiptavini sína. Mynd/seth@golf.is 108 GOLF.IS - Golf á Íslandi „Skil ekki afhverju ég fór ekki fyrr“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.