Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Blaðsíða 2
2 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
3
Vegagerð, viðgerðir og
varnargarðar
Jarðskjálftar og eldgos á Reykjanesskaga hafa
sett mikinn svip á starfsemi Vegagerðarinnar
undanfarna mánuði. Frá því að jarðhræringar
hófust í Grindavík í nóvember 2023 hefur
Vegagerðin sinnt margvíslegum verkefnum í og
við bæinn.
Vegagerðin hefur staðið vaktina í Grindavík vegna
jarðskjálfta og eldgosa síðustu mánuðina. Í kjölfar
öflugrar jarðskjálftahrinu þann 10. nóvember á síðasta
ári urðu miklar skemmdir á vegum í og við Grindavík.
Í þeim hamförum fór Grindavíkurvegur í sundur með
þeim afleiðingum að hann varð ófær um stund en strax
sama kvöld var ráðist í viðgerðir á veginum, enda um
að ræða afar mikilvæga leið milli Reykjanesbrautar
og Grindavíkur. Nesvegur, vestan Grindavíkur til móts
við golfvöllinn, fór einnig í sundur en sprunga liggur
↑
Þrisvar sinum hefur hraun
runnið yfir Grindavíkurveg.
þvert í gegnum veginn. Um leið og leyfi fékkst frá
Almannavörnum var ráðist í viðgerðir á Nesvegi svo
hægt væri að halda honum opnum fyrir umferð.
Vegagerðin hefur í samvinnu við verktaka einnig komið
að viðgerðum á götum innan Grindavíkur sem margar
voru afar illa leiknar eftir jarðhræringarnar. Á meðal
verkefna var að brúa Austurveg til bráðabirgða með
tveimur samsíða gámafletum en sprunga liggur í
gegnum veginn.