Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Blaðsíða 17
16 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
17
500 Sérreglumerki
Tekinn er upp nýr flokkur 500 Sérreglumerki en þau
mæla með bindandi hætti fyrir um sérstakar reglur eða
takmarkanir fyrir umferð á tilteknum stað, afmörkuðu
svæði eða á ákveðnum akreinum, aðrar en þær sem
gefnar eru til kynna með bannmerki, boðmerki eða
forgangsmerki. Flest þessara merkja voru í eldri
reglugerð en eru nú tekin saman í þennan flokk sem í
Vínarsáttmálanum ber heitið „Special regulation signs“.
Breytt merki eru 508 Hópbifreiðar í almenningsakstri
og 512 Biðstöð hópbifreiða í almenningsakstri. Gular
bifreiðar tákna þarna almenningsakstur og greina sig
frá hvítum hópbifreiðum sem eru fyrir afmarkaða hópa
en slíkt tákn má sjá á merki 553.1 Bifreiðastæði ætlað
hópbifreiðum.
Gerð er breyting á útliti merkisins 516 Gangbraut, sem
fær hvítan bakgrunn í stað guls og merkið verður til
með báðum stefnum þannig að táknmynd gangandi
vegfaranda stefnir alltaf í átt að viðkomandi gangbraut.
Nýtt merki er 521 Hjólarein. Merki þetta gefur til kynna
akrein sem er eingöngu ætluð umferð reiðhjóla og
léttra bifhjóla í flokki I. Fyrirmynd þess er norsk.
Boðmerki: Akbrautarmerki
405 Akbrautarmerki. Í nýju reglugerðinni er nú
áréttað að merkið skuli nota til að gefa til kynna
að heimilt sé að aka hvoru megin merkisins sem
er og að akbrautir komi aftur saman. Áður var
merkið stundum notað þar sem akbrautir greinast
og koma ekki aftur saman í beinu framhaldi, en
þeirri notkun er nú breytt. Við slíkar aðstæður skal
Nr. 250 5. janúar 2024
906.11 906.12
Mkv. 1:40
906.21 906.22
Mkv. 1:40
906 Gátskjöldur.
Gátskjöldur, með svörtum og gulum skástrikum sem vísa niður að
vegi, gefur til kynna þrengingu á akbraut.
908 Hindrunarslá.
Hindrunarslá gefur til kynna að vegur sé lokaður fyrir umferð.
Þar sem merkið er hengt yfir veg, vekur það athygli á hæðartakmörkunum
sem gefnar eru til kynna með sérstöku umferðarmerki.
908.1
Mkv. 1:40
908.2
Mkv. 1:40
912.1 912.2
Mkv. 1:40
912 Gátskjöldur á veggreiningu.
Gátskildir á veggreiningu, með svörtum og gulum skástrikum sem
vísa niður frá miðju skjaldarins, vekja athygli vegfarenda á veggreiningu.
913
913 Gátstaur.
Gátstaurar beggja vegna akbrautar gefa til kynna að á akbraut sé
hraðahindrun.
←
405 Akbrautarmerki,
akbraut greinist í
tvennt en kemur
saman aftur.
→
912 Gátskjöldur
á veggreiningu,
akbraut greinist í
tvennt og kemur
ekki saman aftur.
nota merki 912 Gátskjöldur á veggreiningu. Óheimilt
er að nota merkið til að beina umferð á akrein þar sem
vænta má umferðar úr gagnstæðri átt.
Tvö ný merki afmarka göngugötur.
548 Göngugata. Merki þetta gefur til kynna að komið
sé inn á svæði þar sem ákvæði umferðarlaga um
göngugötur gilda. Nánari lýsing á reglum sem gilda
innan svæðisins getur komið fram á merkinu.
550 Göngugata endar. Merki þetta gefur til kynna að
farið sé út af svæði þar sem ákvæði umferðarlaga um
göngugötur gilda.
Ýmsar útgáfur eru af P merki sem táknar bifreiðastæði,
s.s. tegund ökutækja, gjaldskylda o.fl.
552.1
Bifreiðastæði
552.2
Bílastæðahús
552.3
Bifreiðastæði
með
gjaldskyldu
553.1
Bifreiðastæði
ætlað
hópbifreiðum
553.2
Bifreiðastæði
ætlað
vörubifreiðum
554.1
Bifreiðastæði
fyrir hreyfi-
hamlað fólk
554.3
Bifreiðastæði
fyrir hreyfi-
hamlað fólk
554.2
Bifreiðastæði fyrir
hreyfihamlað fólk
553.6
Bifreiðastæði
ætlað lögreglu-
og sjúkrabílum
553.7
Stæði ætlað
reiðhjólum
553.8
Stæði ætlað
bifhjólum
553.8
Stæði ætlað
rafskútum
553.3
Bifreiðastæði
ætlað
fólksbifreiðum
553.4
Bifreiðastæði
ætlað bifreiðum
til rafhleðslu
553.5
Bifreiðastæði
ætlað
húsbílum