Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Blaðsíða 22
22 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
23
Vegurinn um Mjóafjarðarheiði var opnaður föstudaginn
10. maí og hafði þá verið lokaður frá því í fyrrahaust.
Hinrik Þór Oliversson, yfirverkstjóri á þjónustudeild
Vegagerðarinnar á Reyðarfirði, sagði meiri snjó á
Mjóafjarðarheiðinni í ár miðað sama tíma í fyrra.
„Við vorum örlítið seinna á ferðinni með að opna heiðina
í ár miðað við í fyrra en það munaði ekki mörgum
dögum. Það var tiltölulega auðvelt að eiga við snjóinn,
hann var vissulega þungur en þó ekki grjóthart stál
eins og stundum vill verða,“ sagði Hinrik Þór, en nota
þurfti bæði ýtu og blásara til að fjarlægja snjó af
veginum.
Mjóafjarðarheiði opnuð
Við opnun vegarins var hann fyrst um sinn fær vel
útbúnum, fjórhjóladrifnum bílum. Stungið var í gegnum
skaflana sem margir hverjir voru allt að fjögurra metra
háir. Þó vegurinn hafi verið opnaður var áfram krapi
og klaki á veginum enda mikill snjór enn á heiðinni.
Dagana eftir opnun var unnið áfram að því að breikka
leiðina og gera útskot svo bílar gætu mæst með góðu
móti.
↑
Búið er að stinga í gegn og
heiðin fær vel búnum bílum.
↓
Snjóblásari að störfum.
↙
Mjóafjarðarheiði í maí.