Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Qupperneq 9

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Qupperneq 9
8 Framkvæmdafréttir nr. 730 2. tbl. 32. árg. Framkvæmdafréttir nr. 730 2. tbl. 32. árg. 9 Stálbitarnir sem voru notaðir í brúna voru smíðaðir í Póllandi. Þeir voru síðan settir saman af starfsmönnum brúarflokksins þannig að til varð 43 metra langur stálbiti sem vóg 27 tonn. „Það var nokkur áskorun að setja stálbitana saman uppi á vegi því það var mjög kalt á þessum tíma. Við byggðum okkur því skýli sem við gátum sett yfir bitana meðan við unnum,“ lýsir Vilhjálmur. Töluverð aðgerð var að hífa stálbitann á stöpla brúarinnar. „Við vorum með þrjár stórar beltagröfur sem tóku þetta á milli sín, tvær uppi á vegi og eina ofan í ánni. Þetta tók um sex tíma og gekk nokkuð vel enda var búið að bora áður fyrir öllum festingum.“ Næsta verk var að setja timburgólf ofan á stálbitana, en timbureiningar voru fengnar úr bráðabirgðabrú sem notuð var yfir Steinavötn meðan á byggingu brúar stóð þar. Að lokum voru sett vegrið á brúna og fyllt upp að endum hennar. Verkinu lauk í mars á þessu ári. Brúin er nú mun öruggari og þó hún sé enn einbreið er hún þó hálfum metri breiðari en áður, eða 3,60 metrar að breidd. Vilhjálmur segir íbúa hafa verið mjög þolinmóða en þeir þurftu að aka hjáleið til Hóla. „Fólk var mjög jákvætt og glatt að fá betri og aðeins breiðari brú.“ ↑ Brúarflokkurinn byggði skýli yfir stálbitana meðan unnið var að samsetningu þeirra. ↑ Þrjár beltagröfur voru notaðar til að hífa stálbitann á sinn stað en hann var 43 metrar á lengd og vóg 27 tonn. ↑ Gamla brúin var það illa farin að ákveðið var að byggja upp burðarbita hennar og setja í staðinn stálbrú með timburgólfi. ↓ Brúin nærri tilbúin. Aðeins á eftir að moka að endum hennar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.