Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Page 12
12 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
13
Góð reynsla í notkun búnaðarins
Starfsfólk Vegagerðarinnar hefur lært mikið á
undanförnum mánuðum. „Við vorum fremur nýlega búin
að festa kaup á bæði drónanum og jarðsjánni þegar
jarðhræringarnar hófust síðasta haust. Við vorum því
ekki komin með mikla þjálfun í notkun þeirra. Þetta
hefur verið mjög lærdómsríkt ferli fyrir okkur og við
erum komin á stað núna sem við höfðum ætlað okkur
að vera á eftir tvö ár,“ segir Friðrik.
Starfsfólkið fékk til dæmis mikla þjálfun í
drónaflugi sem mun nýtast vel í næstu verkefnum
Vegagerðarinnar. Sem dæmi verður dróninn notaður í
jarðsjármælingum fyrir Sundabraut á næstunni. Einnig
hefur fengist mikil þjálfun og reynsla í túlkun gagna úr
jarðsjánni sem er afar dýrmætt.
Öll gögn sem verða til í þessari vinnu er hægt að flytja
inn í hönnunarforrit Vegagerðarinnar og munu því nýtast
hönnuðum við að taka tillit til mismunandi jarðtæknilegra
aðstæðna í þeim veglínum sem til skoðunar eru. Með
þessu sparast bæði tími og peningar.
↑
Mikil aflögun hefur orðið víða í bænum.
↗
Myndin sýnir stóra sprungu sem liggur í
gegnum bæinn og undir nokkur hús.
→
Svæði þar sem búið er að fylla í sprungu og búa
til „brú“ yfir skemmdina.
↓
Magnús Halldórsson, starfsmaður stoðdeildar,
athugar með gögn í jarðsjánni.