Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 5

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 5
5 Stolt er styrkur Pride Is Power Ávarp formanns Hinsegin daga Árið 1999 söfnuðust 1.500 manns saman á Ingólfstorgi til að minnast þess að 30 ár voru liðinn frá Stonewall-uppþotunum. Í ár eru Hinsegin dagar því 25 ára og sömuleiðis er þetta í 25. sinn sem að Gleðiganga er gengin. Í þetta skiptið gerum við ráð fyrir að hópurinn verði nokkuð stærri en hann var á Ingólfstorgi fyrir kvartöld en síðustu ár hafa um hundrað þúsund manns fylgst með og tekið þátt í Gleðigöngunni. Upprunalega átti Gleðigangan hvorki að vera skrúðganga né mótmælaganga heldur var lögð áhersla á gleði og er nafnið augljós tilvísun í þann tilgang. Gangan hefur þróast og breyst með tímanum og er í dag mögulega allt í senn: gleðiganga, mótmælaganga og kröfu­ ganga. Hátíð sem endurspeglar samfélagið eins og það er hverju sinni. Hinsegin samfélagið fer stöðugt stækkandi — við erum bæði að eldast og yngjast. Við erum ólík og alls konar. Til þess að framþróun eigi sér stað í samfélagi okkar þurfum við að sýna samstöðu. En sam­ staðan þurrkar ekki út ólíkan bakgrunn okkar og áskoranir, þar sem mismunandi hópar innan hinsegin samfélagsins mæta mismunandi og misalvarlegri mismunun og mótlæti. Rithöfundurinn og trans aktívistinn Leslie Feinberg, sem er ein af mínum helstu fyrirmyndum, komst þannig eitt sinn að orði: „Við þurfum að finna leiðir til að tjá samstöðu, án þess að grafa niður þá staðreynd að einstaklingar innan þessa samfélags eru að fást við mismunandi byrðir og eru kúguð á mismunandi máta. Því betur sem við áttum okkur á þeirri staðreynd, því betur getum við stutt hvert annað, frætt okkur sjálf um hvert annað og fundið leiðir til að byggja bandalag sem mætir öllum okkar kröfum.“ Jafnt í samstöðu og fjölbreytileika getum við fundið styrk til að berjast gegn jaðarsetningunni sem við upplifum öll á mismunandi máta en sú samstaða verður að grundvallast á því að við séum tilbúin að mæta hvert öðru með opnum huga og af virðingu. Hreyfingin okkar er ekki fyrir sum. Hún er fyrir okkur öll. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er Stolt er styrkur og megináhersla í dag­ skrárgerð er hinsegin menning. Sem samfélag megum við vera stolt yfir menningunni okkar sem er ríkuleg, fjölbreytt og róttæk — menning sem hefur rými fyrir okkur öll. Hátíðin er að langmestu leyti skipulögð og framkvæmd af sjálfboðaliðum, sem leggja nótt við nýtan dag til að búa til fjölbreytta hátíð fyrir okkur öll. En hún má aldrei afmarkast af heimsmynd þeirra sem standa í stafni. Þetta er hátíðin okkar allra og það er á ábyrgð okkar allra að dagskráin endur­ spegli fjölbreytileika samfélagsins okkar. Grasrót hinsegin sam­ félagsins hefur verið öflug í því að koma með hugmyndir að dagskrár­ liðum, skipuleggja viðburði og leggja sitt af mörkum til hátíðarinnar. Því að Hinsegin dagar eru bara rammi og innan hans málum við öll í sameiningu með regnbogans litum. Stolt er styrkur: Verum stolt saman. Verum sterk saman. Gleðilega Hinsegin daga! Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga Reykjavík Pride’s President’s Address In 1999, 1500 people gathered at Ingólfstorg to commemorate the 30th anniversary of the Stonewall riots. This year we celebrate 25 years of Reykjavík Pride, which also means that this will be the 25th time we march in the Reykjavík Pride Parade. We, however, expect a some­ what greater number of attendees this year than at Ingólfstorg a quarter of a century ago, as up to and over a hundred thousand people have participated in, or cheered on, the Pride Parade these last few years. Originally, the Icelandic Pride Parade was not supposed to be a protest march or parade per se, but rather its emphasis was on joy, as its name, Gleðigangan, the Walk or March of Joy, clearly references. Over time, the parade has evolved and changed, and today one might say it’s all of these things: a march of joy, a protest march and a demonstration. A festival which reflects the community at any given moment. The queer community is constantly growing — we are both getting older and younger. We are different and of all sorts. In order for our community to progress we need to be united. But being united does not erase our diverse backgrounds or challenges, as the discrimi­ nation and adversity, which each group within the queer community faces, varies. One of my main role models, writer and trans activist Leslie Feinberg, put it this way: “There’s got to be a way to express unity, that says we don’t have to bury the fact that people in this move­ ment are shouldering and bearing different burdens and different ways of oppression. And that the more we recognize that, the more we support each other, self-educate about each other’s oppression, find ways to build a coalition that bring in all our demands.” We can find strength in both our unity and diversity, in order to fight the marginalisation that we all experience in some way or another, but we must base our solidarity on a readiness to accept each other with an open mind and respect. Our movement is not just for some. It is for all of us. This year, our theme is Pride Is Power, with queer culture being the programme’s main focus. As a community, we can pride ourselves on contributing to a rich, diverse and radical culture — a culture that provides space for everyone. The festival is largely planned and brought forward by volunteers who work around the clock to create a diverse Pride for us all. Indeed, the festival must never be confined by the worldview of those in charge. This festival belongs to all of us and it is on all of us to make sure that the programme reflects the diversity of our community. The grassroots of the queer community have vigorously put forward ideas for the programme, organised events and contributed to the festival. Because Reykjavík Pride is just a frame within which we all paint with our rainbow colours, together. Pride is power: Let’s be proud together. Let’s be powerful together. Happy Reykjavík Pride! Helga Haraldsdóttir, President of Reykjavík Pride
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.