Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 12

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 12
12 aftur að þessum miðpunkti í djammlífinu sem hann var fyrir faraldur, þrátt fyrir að við munum loka fyrr,“ segir Edda og bætir glott­ andi við: „Það gerist hvort sem er ekkert gott eftir þrjú.“ Hún segir að fastir liðir muni halda sér, eins og Kikioki á fimmtudagskvöldum og dragsýningin á föstudagskvöldum, en að fjöl­ breyttir viðburðir séu í pípunum. Dansar í vinnunni Það hefur margt breyst síðan Edda hóf störf við dyravörslu. „Ég vann í heil átta ár án þess að fara í stunguvesti,“ segir hún og lýsir því að atvikum hafi ekki endilega fjölgað, en alvarleiki þeirra hafi aukist. „Fólk er ekki að slást bara með hnefum, heldur hnífum,“ út­ skýrir Edda en þvertekur fyrir það að mið­ bærinn sé hættulegri: „Við sem stöndum í gæslunni þurfum bara að vera viðbúnari fjölbreyttari atvikum.“ Edda segist hafa séð ýmislegt í þessu starfi, bæði gott og vont. „Ég hef komið að stunguárás,“ segir hún og tekur fram að það hafi ekki verið á Kiki, „og það var ekki falleg sjón. En svo er svo fallegt að sjá fólk hjálpa öðru fólki sem er í vanda. Fólki er ekki sama um aðra.“ Edda segir þetta skemmtilegt vinnuumhverfi, þó það sé mjög krefjandi. „Sum kvöld eru erfiðari en önnur. En sum kvöld eru þannig að þú getur leyft þér að fara út á dansgólfið og taka snúning með vinum þínum. Það eru forréttindi.“ Mætir fólki með gæsku Það er fleira sem hefur breyst á umliðnum áratug en öryggismenningin. Vitundarvakn­ ing hefur orðið í samfélaginu varðandi ýmis hinsegin málefni og til að mynda eru komin kynhlutlaus klósett á Kiki, sem Edda segir hafa gengið snurðulaust fyrir sig. „Það átta sig samt ekki öll á því að þau séu á hinsegin stað,“ segir Edda og bætir við að stundum komi fólk út sem furði sig á því að hafa séð tvo menn að kyssast á dansgólfinu. Aðspurð hvort dyraverðir fari í sérstaka hinsegin­ þjálfun segir Edda að það gildi alveg önnur viðmið á Kiki en á öðrum stöðum og það þurfi að fara yfir það sérstaklega með nýju starfsfólki gæslunnar. „Kiki er til dæmis eini staðurinn þar sem öll mega dansa ber að ofan,“ útskýrir Edda og bætir við að viðmót gæslunnar sé líka mýkra á Kiki en á mörgum öðrum stöðum. „Það er svolítið macho fílingur í þessum geira, sem er óþarfur. Kill them við kindness er mitt leiðarljós,“ segir Edda og bætir við að allir dyraverðir ættu að horfa á myndina Roadhouse sem fjallar einmitt um dyraverði. Þar útskýrir Patrick Swayze í hlutverki heimspekings með svarta beltið í karate, sem tekur upp dyravörslu, hvernig best sé að koma fram við fólk í þessu starfi: Be nice. Until it’s time not to be nice. Finnur stuðning samfélagsins Edda lagði flöskuna á hilluna fyrir fjórum árum, en segir það ekki há henni að vinna starf þar sem áfengið flæðir um gólfin. „Fólk vill stundum bjóða mér skot og ég fæ mér þá bara skot af Red Bull,“ útskýrir Edda og segist kunna vel að meta það þegar fasta­ kúnnar sýna þakklæti sitt með þessum hætti. „Ég finn mikinn stuðning frá hinsegin sam­ félaginu í þessu starfi og það var gott að heyra það hversu mörg hafa spurt hvort ég verði áfram í hurðinni þó nýtt fólk sé tekið við. Það er staðfesting á því að ég hafi verið að vinna gott starf.“ Hún segir það reglulega gerast að fólk komi upp að henni og þakki henni fyrir aðstoð þegar þau lentu í einhverjum atvikum. „Það að fólk taki sér tíma og komi og þakki fyrir sig er svolítið gott í hjartað.“ Passar upp á okkur Oft eiga sér stað erfið atvik þar sem gæslan þarf að bregðast hratt við og þá sé mikil­ vægt að hafa ákveðnar vinnureglur til staðar. „Fólki verður á og þá þarf oft að taka ákvörðun á sekúndubroti. Þetta er bara vinnan okkar og við gerum okkar besta til að taka ákvarðanir út frá stöðunni og öryggi fólks. Þetta er ekkert persónulegt.“ Hún segir að stundum þurfi að grípa til harkalegra aðgerða þegar fólk bregst illa við fyrirmælum eða fer yfir mörk. „Oft fýkur í fólk, sem er í alls konar ástandi. En svo kemur þetta sama fólk til mín seinna og biðst afsökunar. Og það verður oft til þess að á milli okkar myndast vinskapur sem var ekki endilega til staðar áður. Það færir okkur nær hvert öðru.“ Hún segir að hún hefði ekki enst lengi í þessari vinnu ef hún tæki allt inn á sig sem upp kemur í þessum aðstæðum. „Auðvitað kemur fyrir að ég þurfi að tuska til vini eða kunningja,“ útskýrir Edda og lýsir því hversu lítið hinsegin samfélagið á Íslandi sé. „Þú ferð ekki yfir ákveðna línu, sama hver þú ert,“ staðhæfir Edda og segist enn hafa gaman af þessu starfi eftir öll þessi ár: „Það hafa verið góðir tímar og það hafa verið erfiðir tímar. En fyrst og fremst er ég að gæta hinsegin samfélagsins. Það er vinnan mín, en líka persónulegt. Ég er að passa upp á okkur.“ A Decade at the Door Edda Vigdís has been a staple figure in Reykjavík’s night life for a decade, having worked as a bouncer for Kiki and other venues for 10 years. Edda says that it’s an honour to get to work for the queer community in this way, ensuring the safety of LGBTQIA+ people in those queer spaces and supporting those who find themselves in situations where they need assistance. Edda admits that this means that she’s almost always in uniform at queer events, but sees this as a privilege too — to have the chance to dance along with friends from the community, even though she’s at work.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.