Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Síða 25
25
Legends and Lattes — Travis Baldree
It was like drinking the feeling of being peaceful.
Being peaceful in your mind. Well, not if you have
too much, then it’s something else.
Þið hélduð kannski að Helga Haraldsdóttir,
formaður Hinsegin daga, væri mesta butch
sem hægt væri að finna. En nei, elsku börn,
við þurfum að hryggja ykkur með því að það
er hún Viv. Viv er nefnilega orki, hávaxin
og herðabreið, grænleit og brúnaþung, með
vígtennur fyrir allan peninginn. Eftir að hafa
fengið nóg af ævistarfinu sem hausaveiðari
og skrímslamorðingi, ákveður Viv að slíðra
sverðið sitt, Náttbana, í síðasta skipti og
opna kaffihús. Er eitthvað krúttlegra en butch
orki að hella upp á kaffi? Hvað þá þegar ástin
bankar upp á og biður um einn bolla. Fortíðin
á það þó til að flækja málin og ekki er allt
sem sýnist þegar aldagamlir töfrar eiga í hlut.
Ekki missa af þessum lattelepjandi orka og
leit hennar að hinum fullkomna kaffibolla og
hinu friðsæla lífi!
You Made a Fool of Death with Your
Beauty — Akwaeke Emezi
To hell with what trouble this would bring,
she was alive.
Feyi Adekola er nígerísk-bandarísk
myndlistarkona sem er enn í sorgarferli
eftir sviplegt andlát eiginmanns síns. Hún
er ekki tilbúin til að finna ástina á ný en er
þó að stíga lítil skref í þá áttina. Þegar hún
fær tækifæri til að sýna list sína á ónefndri
karabískri eyju kynnist hún Alim. Bókin er
ástarsaga tvíkynhneigðrar konu og tvíkyn
hneigðs karls, þar sem 19 ára aldursmunur,
sameiginleg reynsla af því að missa maka og
siðferðileg álitaefni (Alim er faðir næstum-
því-kærasta Feyi, jæks) leika lykilhlutverk.
Úr verður þessi óvenjulega hinsegin ástarsaga
sem er bæði átakanleg og falleg.
One Last Stop — Casey McQuiston
Jane is spun sugar. A switchblade girl with a cotton-
candy heart.
Það eru til margir rómantískari staðir en
neðanjarðarlestir New York-borgar en eins
og svo oft áður spyr ástin hvorki um stað né
stund. Hinni 23 ára gömlu August Landry
finnst ástin vera til trafala og gefur ennþá
minna fyrir hið yfirnáttúrulega. Svo hittir
hún Jane Su. Jane á leðurjakka, Jane er fyndin,
Jane er lesbía. Jane er með öðrum orðum allt
það sem hin tvíkynhneigða August þarf í líf
sitt. En þegar August kemst að því að Jane
hefur verið föst í sömu neðanjarðarlestinni
frá því á áttunda áratugnum eru góð ráð dýr.
Stórskemmtileg og seiðandi ástarsaga með
yfirnáttúrulegu ívafi, stútfull af fjölbreyttum
hinsegin persónum og hinsegin menningu.
Við mælum líka með Red, White & Royal Blue og
The Pairing (sem kemur út 4. ágúst) frá sama
höfundi!
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
fjallkonan fjallkonan.rvk fjallkona.is
Já, við lesum alveg eftir annað fólk