Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 27
27
Eirómantík: Að laðast lítið eða ekkert að öðrum
á rómantískan hátt.
Eikynhneigð: Að laðast lítið eða ekkert að
öðrum á kynferðislegan hátt.
Kynvöt, hrifning og kynlöngun eru þrjú hugtök
sem haldast ekkert alltaf í hendur. Ást birtist í
mörgum myndum og þarf ekki að vera kynferðisleg
eða rómantísk til að skipta máli.
Í Samtökunum ‘78 hittist lítill hópur einu
sinni í mánuði og smjattar á köku. Þetta er
viðburður á vegum félagsins Ása á Íslandi
(Félags eikynhneigðra og eirómantískra,
sem í daglegu tali eru oft kallaðir ásar og
óróar). Það fer almennt lítið fyrir okkur og
þar sem það er mikil skörun við aðra hópa
undir regnhlífinni eiga félagar okkar það til
að tvístrast á Hinsegin dögum og hópurinn
virðist mun minni en hann er. En við erum
samt hér og okkur vantar smá athygli.
Þegar ég tók við stöðu formanns Ása á
Íslandi 2022 var það ekki vegna brennandi
áhuga á málefninu, heldur frekar tilkomið
vegna þess að ég mætti á fund, nennti að
vera í stjórn og hafði tíma til að taka þetta
að mér. Ég grínaðist með það að félag fyrir
fólk sem tekur ekki þátt í rómantískum og
kynferðislegum hefðum samfélagsins væri
svolítið eins og fótboltaklúbbur fyrir fólk
sem hefur ekki áhuga á fótbolta — pínu til
gangslaus en samt skemmtilegur vettvangur
til að hitta fólk sem er á svipuðu róli. Eftir að
ég gerðist formaður þurfti ég að endurskoða
þetta viðhorf mitt því að mér fóru að berast
sögur frá fólki, bæði hér heima og erlendis,
sem sýndu mér hversu mikilvægt félagið
okkar er í raun. Það kom mér algjörlega
í opna skjöldu hversu miklum fordómum
eikynhneigðir verða fyrir erlendis því að
þrátt fyrir að eikynhneigð og eirómantík
sé mjög ósýnileg á Íslandi er hinsegin sam
félagið mjög opið og yndislegt. Ósýnileiki
okkar kristallast helst í því að mörg sem ég
hef rætt við, sem fundu Ása á Íslandi af ein
skærri slysni, áttuðu sig í fyrsta sinn á ævinni
á því að það amaði kannski ekkert að þeim.
Þessi ósýnileiki veldur ekki eingöngu óvissu
og einangrun eikynhneigðs fólks heldur ýtir
hann einnig undir fordóma í samfélaginu.
Íslendingar eru almennt víðsýnir en það eru
enn ýmsar væntingar í samfélaginu sem við
eigum öll að standa undir og enn er mikill
misskilningur tengdur eikynhneigð. Heil
brigðisstarfsmenn eru oft fljótir til að sjúk
dómsvæða eikynhneigð og benda á hormóna
gjafir og sálfræðimeðferðir. Þá skiptir litlu
máli hvort manneskjan er hamingjusöm með
sína eikynhneigð eða ekki. Eikynhneigð er
oft tekið sem lélegum brandara, athyglissýki,
minnihlutahópablæti eða tilraun til þátt
töku í því sem stundum er kallað kúgunar
ólympíuleikar.
Kaldhæðni fordómanna
Pride-gangan í London var í fyrsta sinn leidd
af eikynhneigðri manneskju nú í ár, ungri og
hugrakkri konu að nafni Yasmin Benoit. Um
ræðan um hana á samfélagsmiðlum var mjög
fordómafull og staðhæfði fólk t.a.m. að eikyn
hneigðir yrðu ekki fyrir fordómum — sem er
ákveðin kaldhæðni. Þá var mikið talað um
hvað hún var klædd í kynæsandi föt og dró
fólk þá ályktun að klæðaburður hennar væri
til marks um að hún væri að ljúga til um að vera
eikynhneigð. Konur sem lýstu sér sem femín
istum töluðu um að hún klæddi sig í ögrandi
föt til að ganga í augun á karlmönnum og
virtust ekki sjá tvískinnunginn í því. Margir
kölluðu hana geðveika, aðrir sökuðu hana
um aðför að samkynhneigðum konum og enn
aðrir náðu að blanda inn í málið umræðu um
trans fólk og „skelfileg áhrif“ kynleiðréttandi
meðferða sem yllu þessari afskræmingu
á mannlegu eðli.
Eikynhneigðir verða fyrir sömu
áhrifum af gagnkynhneigðar
hyggjunni og aðrir hinsegin
einstaklingar. Samfélagið segir
að þau sem upplifa kynhneigð á
annan hátt [en gagnkynhneigð] séu
veik, úrkynjuð og þurfi að leita sér
hjálpar. — Yasmin Benoit, 2024.
Þið eruð ekki ein
Við lifum öll í heimi sem er sniðinn fyrir
gagnkynhneigt fólk. Það eru reglur í gildi
sem óæskilegt er að beygja og mjög illa séð
að þær séu brotnar. Kynlífsbyltingin var frá
bær að mörgu leyti en í kjölfarið er eins og
allir eigi að vera kynæsandi og duglegir að
stunda kynlíf. Yasmin Benoit lenti í mjög
ákveðinni gerð af fordómum þar sem hún er
kynþokkafull, ung kona. Ef hún hefði ekki
verið það hefðu ummælin eflaust verið önnur,
en örugglega ekki af hinu góða.
Huldufólk samtímans
Pistill formanns Ása á Íslandi Ellý Hönnu Sigurðar
Það er erfitt að skrifa stutta grein um eikyn
hneigð því að hún tengist öðrum veigamiklum
málum svo sem kynjamisrétti, kynþátta
fordómum, fötlunarfordómum, gagnkyn
hneigðarhyggju, tilætlunarsemi forréttinda
hópa um hegðun annarra, fegurðarstöðlum,
femínisma og, furðulegt nokk, transfóbíu.
Viðhorf til eikynhneigðra innan hinsegin
samfélagsins er mjög jákvætt á Íslandi og
það væri óskandi að svo væri víðar. Við
erum fullviss um að með aukinni fræðslu og
sýnileika muni þetta viðhorf einnig skila sér
út í allt þjóðfélagið og inn í heilbrigðiskerfið.
Við þurfum bara að ná til allra þeirra eikyn
hneigðu einstaklinga sem eru þarna úti, fólks
sem heldur að eitthvað sé að því, fólks sem er að
bugast undan oki tilætlunarsemi samfélagsins
og hreinlega veit ekki að það getur kíkt í
Samtökin ‘78 og fengið hughreystingu og
köku — eða bara kíkt á heimasíðuna okkar
og haft samband við okkur í gegnum vefsíðu
okkar asaraislandi.is
Present-Day Hidden People
Even though aro and ace people are included
and accepted within the Icelandic queer
community, there is a lot of prejudice against
aro and ace people around the world, both
within and outside the LGBTQ+ community.
The Chairman of Aro & Ace Iceland calls for
more visibility and attention to the group.
Verum stolt af fjölbreytileikanum
og höldum áfram baráttunni fyrir
opnara samfélagi. Gleðilega hátíð!