Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 34
34
Þýðir tónar frá sænskri lykilhörpu berast
úr fyrirlestrasalnum í Þjóðminjasafninu.
Á einum af fyrstu sólardögum vorsins var
haldið hinsegin þjóðbúningaþing og Fredy
Clue (þau/þeirra) var eitt fyrirlesara. Fredy
er sænskt þjóðlagatónlistarkvár en þau eru
líka frumkvöðlar á sviði þjóðbúninga. Þau
gripu salinn um leið með sinni ljúfu nær
veru, klædd í nýjan, sænskan þjóðbúning
sem þau hönnuðu, Bäckadräkten. Markmiðið
var að hanna kynhlutlausan búning svo öll
hafi frelsi til að finna rætur sínar í þjóðlegum
klæðnaði, einnig þau með óhefðbundna kyn
tjáningu. Fredy leiddi gesti í gegnum söguna
af tilurð Bäckadräkten og tókst á einhvern
undraverðan hátt að kveikja samtímis brenn
andi áhuga og veita djúpa kyrrð með einlægri
frásögn og frumsaminni þjóðlagatónlist á
lykilhörpuna.
„Áhugi minn á því að eignast þjóðbúning
kviknaði á þjóðháttahátíðinni Bingsjöstäm
man. Þar var samankominn ótrúlegur fjöldi
fólks í alls kyns þjóðbúningum og ég þráði
að vera hluti af hópnum, þó á eigin fors
endum. Það er lítil hefð fyrir þjóðbúningum
í minni fjölskyldu svo ég kom alveg ferskt inn
í senuna og til að byrja með leið mér smá eins
og ég væri að þröngva mér inn í menninguna.
En það var líka kostur út af fyrir sig, ég vissi
svo lítið um þjóðbúninga og þekkti engan sem
gat sagt mér til og því fannst mér svolítið eins
og ég gæti gert það sem ég vildi.“
Þjóðbúningar eru bundnir þeim samfélagslegu
viðmiðum sem eru ríkjandi á hverjum tíma,
flestir evrópskir þjóðbúningar þróuðust því
undir regluverki þar sem allt miðaðist við hin
gagnkynhneigðu kynjahlutverk sem smugu
inn í nær öll horn menningarinnar, þar með
talinn klæðnað. Það gildir jafnt um sænsku
og íslensku þjóðbúningana, við höfum skýrt
mótaða karl- og kvenbúninga og strangar
reglur um hver má nota hvaða búning og
hvernig. Þar með verður þessi menningar
arfur að vettvangi þar sem kynjatvíhyggjan
varðveitist. En Fredy fannst vera kominn tími
á þjóðlegan kynusla.
„Ég sá fyrir mér að steypa saman hinu kven
lega og karllega og lét mig dreyma um að
sauma einhvers konar buxnapils, eitthvað
sem var ekki til fyrir. Það var samt eitthvað
sem truflaði mig. Var þetta mögulegt? Er
hægt að búa til nýja hefð, eitthvað alveg nýtt í
þjóðlegu samhengi? Ég leitaði ráða hjá vinum
mínum sem öll hvöttu mig áfram og smátt
og smátt dofnaði efinn og verkefnið varð að
hálfgerðri þörf. Ég þurfti að borða, ég þurfti
að sofa og ég þurfti að búa til þjóðbúning!“
Fredy svaf á hugmyndinni í nokkur ár en
alltaf skaut hún upp kollinum aftur. Helsta
fyrirstaðan var kostnaður en sænski þjóð
búningurinn, eins og sá íslenski, er afar dýr.
Svo kunnu þau heldur ekki að sauma! Um
2018 fór boltinn að rúlla, þau sóttu um styrki
og hófu samstarf við textílsafn í Gautaborg
sem tengdi þau við fatahönnuðinn Idu Björs
sem saumaði mestallan búninginn.
Þjóðbúningar fyrir öll
Viðtal við Fredy Clue Guðrún Úlfarsdóttir
Myndir eftir Linneu Premmert
„Í hönnunarferlinu byrjaði ég að líta inn á við
og hlusta á allar litlu vísbendingarnar um
mig sjálft, mig langaði til að mála mig og mig
langaði að ganga í kjólum. Á meðan á hönn
unarvinnunni stóð fann ég sjálft mig sem
kynsegin og skyndilega passaði allt saman,
ég vildi sameina hið kvenlega og karllega
og búa til nýjan þjóðbúning, búning sem
passaði inn í arfleifðina en næði líka utan
um mína kynsegin sjálfsvitund. Þannig kom
búningurinn eiginlega á undan uppgötvu
ninni um að ég væri trans. Mitt innra sjálf
vinnur í gegnum hugmyndir og ég þurfti
bara að hlusta. Svo fékk ég aðra kynsegin
álitsgjafa í lið með mér og við leyfðum