Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 41
Hver hefur ekki heyrt mýtur um kynlíf hinsegin fólks? Og
kannski sérstaklega kynlíf hinsegin kvenna og fólks með
píku? Stóra mýtan felur í sér þá hugmynd að allar hinsegin
konur séu með píku eða að öll með píku séu konur. Hér verða
mýtur skoðaðar sem tengjast fyrst og fremst kynlífi tveggja
einstaklinga með píku.
Mýturnar eru alls konar! Allt frá því að hinsegin konur og
fólk með píku stundi ekki kynlíf eða stundi bara munnmök
eða skærist aldrei eða séu stöðugt að skærast. Kíkjum nánar
á málið!
Hinsegin píku-unaður
Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi
Myndlýsingar eftir Öldu Lilju
Munnmök
Mýtan segir að hinsegin fólk með píku stundi eingöngu
munnmök.
Munngælur einskorðast sjaldnast eingöngu við píkuna heldur
er það skemmtilega við þær að allur líkaminn er leiksvæðið.
Munnmök geta verið lykilþáttur í kynlífinu en sum hafa
ekki áhuga á því að veita eða þiggja munnmök. Margt annað
getur verið stærri eða mikilvægari þáttur í kynlífi parsins/
leikfélaganna.
Skæra
Mýtan segir að hinsegin fólk með píku skærist aldrei eða séu
stöðugt að skærast!
Þegar talað er um að skæra þá er verið að lýsa því þegar tvö
með píku nudda píkum sínum saman. Til eru tæki sem geta
aukið enn við unaðinn þegar verið að skærast, t.d. sleipiefni,
titrarar og margt fleira. Sum pör hafa ekki áhuga á því að
skærast og stunda það sjaldan eða aldrei. Fyrir önnur pör/
leikfélaga er þetta lykilþáttur í þeirra kynlífi.
Strap-on
Mýtan segir að aðallega fólk með masc eða butch (karllæga)
kyntjáningu hafi áhuga á því að nota strap-on.
Strap-on eru kynlífstæki, titrarar eða dildóar, sem haldið
er uppi með ýmist buxum eða böndum og eru ætluð fyrir
innsetningu í leggöng eða endaþarm. Að hafa áhuga á því
að nota strap-on á maka eða leikfélaga hefur ekkert með
kyntjáningu að gera. Sum hafa ekki áhuga á því að nota strap-
on, hvorki til að veita unað né þiggja. Fyrir önnur er kynlíf
með strap-on heldur betur þeirra tebolli.
Rassaleikir
Mýtan segir að hinsegin fólk með píku hafi ekki áhuga á
rassaleikjum.
Endaþarmurinn er stútfullur af næmum taugaendum sem
hægt er að örva á marga ólíka vegu. Sum hafa engan áhuga á
rassaleikjum á meðan önnur hafa áhuga á því að örva, nudda
eða putta sinn eigin rass eða annarra. Áhugi á rassaleikjum
hefur ekkert með kyn, kynvitund eða kynhneigð að gera.
Cuntilicious Queer Sex
Aldís the psychologist and sex therapist goes over some
common myths when it comes to sex between queer women
and people with vaginas. There are no simple dos and don’ts
when it comes to vaginal pleasure. It is all up to personal
preference.