Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 49

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 49
49 Trans fólk og kynjuð rými Að sjálfsögðu hefur trans fólk alla tíð notað kynjuð rými á borð við sundklefa og bún­ ingsklefa eins og annað fólk – en mörg veigra sér þó við að nýta þau af ótta við for­ dóma og áreiti, enda full ástæða til. Réttur okkar til að nýta rými í samræmi við kyn­ skráningu og kynvitund var færður í lög árið 2012, þegar lög um réttindi einstaklinga með kynáttunarvanda, eins og þau voru og hétu, tóku gildi. Ekki hafa komið upp nein vandamál í tengslum við inngildingu trans fólks í kynjuðum rýmum. Þrátt fyrir að engin fordæmi séu til staðar hafa reglulega komið upp fordómafullar gagnrýnisraddir sem telja trans konur vera ógn við aðrar konur, eða að sís karlar þykist vera konur til að gera innrás í rýmin. Ekki hafa komið upp nein dæmi þar sem sískynja karlmaður hefur þóst vera kona og gert innrás í kvennarými í þeim tilgangi að áreita konur, hvorki hér á landi né annars staðar. Einu dæmin sem við vitum um þar sem fólk hefur gert einhvers konar innrás í kynjuð rými sem þau eiga ekki erindi í er frá Banda­ ríkjunum. Þar reyndu nokkrir karlkyns repúblikanar að „sanna“ hvað það væri í raun auðvelt að labba inn í hvaða rými sem er með því að fara inn á kvennaklósett. Það er aug­ ljóst að ef þú þarft að búa til dæmi sjálft til að styðja mál þitt þá er það á veikum grunni byggt. Í raun hafa þessir karlar eingöngu grafið undan eigin málstað, en þetta sýnir einmitt svart á hvítu að það getur hver sem er gengið inn í kynjuð rými ef þau ætla sér það. Slíkt er því hægt burtséð frá inngildingu trans fólks og rennir stoðum undir það að inngilding trans fólks sé ekki vandamálið. Karlar hafa aldrei þurft að þykjast vera konur til að áreita þær. Kannanir sýna að lang­ flestar konur eru áreittar af karlmönnum sem þær þekkja. Slíkt gerist nær oftast á heimili fólks, frekar en í handahófskenndum árásum á klósettum eða í búningsklefum. Þess má geta að Kvenréttindafélag Íslands, Kvennaathvarfið, Bjarkarhlíð, Stígamót og önnur helstu samtök kvennahreyfingarinnar studdu lög um kynrænt sjálfræði og inn­ gildingu trans fólks og eiga í góðu samstarfi við hagsmunafélög hinsegin fólks. Sama má segja um Fangelsismálastofnun, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og aðrar við­ eigandi stofnanir og félög. Þessar stofnanir og félög telja ekki ástæðu til að óttast trans fólk og inngildingu þeirra. Trans fólk og íþróttir Trans fólk hefur tekið þátt í íþróttum alla tíð og fyrsta trans konan keppti opinberlega í kvennaflokki árið 1977 þegar Renée Richards keppti í kvennaflokki í tennis. Þar komst hún hæst í 20. sæti í alþjóðasamanburði áður en hún lagði skóna á hilluna 1981. Síðan þá hafa nokkrar trans manneskjur náð árangri á sviði afreksíþrótta og má þar helst nefna Laurel Hubbard sem keppti á Ólympíu­ leikunum 2020 í kraftlyftingum, þar sem hún lenti í neðsta sæti í sínum flokki. Sömu­ leiðis má nefna sundkonuna Liu Thomas, en hún keppti á háskólamóti NCCA í sundi árið 2022. Þar vann hún 500 metra sund með frjálsri aðferð, lenti í 5. sæti í 200 metra sundi og 8. sæti í 100 metra sundi. Þrátt fyrir að hafa staðið sig vel, sló hún engin met. Á sama móti sló sundkonan Kate Douglass hins vegar 18 hraðamet. Hún er ekki trans kona. Þrátt fyrir að hægt sé að telja á fingrum ann­ arar handar þær trans konur og annað trans fólk sem hefur keppt í afreksíþróttum hafa ýmis íþróttasambönd bannað trans konum að keppa í kvennaflokki. Svo mikil er hræðslan að Alþjóðlega skáksambandið (FIDE) bann­ aði trans konum að keppa í kvennaflokki í skák – en ekki hefur enn fengist á hreint ná­ kvæmlega hvaða yfirburði trans konur eiga að hafa fram yfir aðrar konur þegar það kemur að þessari vinsælu hugaríþrótt. Nýverið var breskri trans konu einnig bannað að keppa með öðrum konum í pílukasti, en rök þeirrar ákvörðunar eru einnig mjög óskýr þar sem íþróttin snýst um tækni frekar en líkamlegan styrk. Bönn sem snúa að þátttöku trans kvenna hafa víða verið gagnrýnd fyrir að byggja ekki á nægilega sterkum grunni, en rannsóknir hafa ekki sýnt fram á með afgerandi hætti að trans konur hafi einhverja yfirburði fram yfir aðrar konur eftir að þær hafa verið á hormónum í tiltekinn tíma. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu Canadian Centre for Ethics in Sport sem kom út árið 2022. Reglur Alþjóða Ólympíunefndarinnar frá 2004 kveða sömu­ leiðis á um að trans konur megi keppa að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem mörg önnur sambönd styðjast við, m.a. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Þessi hræðsla virðist því oftar en ekki eiga rætur sínar að rekja til mjög einfeldingslegs hugsunarháttar sem er litaður af kvenfyrir­ litningu, þ.e. að allir karlar séu betri en allar konur í íþróttum, og þar sem trans konur fengu úthlutað karlkyni við fæðingu þá hljóti þær að hafa sömu yfirburði. Slíkt tekur auð­ vitað ekki tillit til áhrifa hormónagjafar á líkama trans kvenna, en mikilvægt er að trans konur fái að njóta vafans og að frekari rannsóknir séu gerðar. Rannsóknir benda til þess að trans konur hafi ekki mælanlega yfirburði yfir aðrar konur, enda krefjast mismunandi íþróttir mismun­ andi þátta til að ná árangri. Heildstæð bönn eru því ekki nein lausn á flóknu viðfangsefni og eingöngu til þess fallin að ýta undir for­ dóma og útilokun trans fólks úr grasrótar­ íþróttastarfi, sem hefur neikvæð áhrif á lýð­ heilsu trans fólks. Heilbrigðisþjónusta fyrir trans fólk Heilbrigðisþjónusta fyrir trans fólk er lífs­ nauðsynleg og eykur velferð trans fólks til muna. Þó svo að Íslandi standi framar mörgum öðrum löndum á ýmsum sviðum, megum við ekki gera lítið úr þeim fordómum og ofbeldi sem trans fólk upplifir enn í ís­ lensku samfélagi. Þó að kynstaðfestandi ferli hjálpi fólki að líða vel í eigin skinni hafa for­ dómar og ofbeldi enn mjög neikvæð áhrif á geðheilsu og öryggi trans fólks. Trans ungmenni Hjá transteymi BUGL er ungmennum og fjölskyldum þeirra veitt sú þjónusta sem þau þurfa. Ungmennin sem þangað koma fara í gegnum greiningarferli ef talin er þörf á. Það er gert í samræmi við fremstu alþjóðlegu verklagsreglur og sjá sérfræðingar á þessu sviði um greiningarnar. Þjónustan felur í sér viðtöl þar sem farið er yfir þarfir ungmennis­ ins og á fyrstu stigum er fyrst og fremst um stuðning og viðurkenningu að ræða, og að hlustað sé t.d. á óskir barns um að nota nýtt fornafn og kenninafn. Þegar ungmenni eru komin á ákveðið stig kynþroska og hafa verið í þjónustu teymisins í ákveðinn tíma, geta þau fengið aðgang að hormónablokkerum. Hormónablokkerar setja áhrif kynþroska á pásu, sem gefur ungmenn­ um svigrúm til að taka ákvarðanir síðar meir um hvort þau vilji halda áfram í meðferð og fá krosshormóna þegar þau hafa aldur til. Hormónablokkerar eru lyf sem hafa verið notuð í meira en þrjá áratugi og hafa reynst vel, en lyfin voru upprunalega framleidd til að hægja á kynþroska fyrir bráðþroska börn. Mikilvægt er að vita að hormónablokkerar hafa engin óafturkræf áhrif á líkama ung­ menna. Eins og með öll önnur lyf þá geta hormónablokkerar haft aukaverkanir í ein­ staka tilfellum og þess vegna er fylgst vel með heilsu og velferð ungmenna í kjölfar lyfja­ gjafar. En að öllu eðlilegu virka hormóna­ blokkerar vel og eru góð lausn til að koma í veg fyrir líkamlegar breytingar sem valda þeim djúpstæðri vanlíðan og ama. Lyfin eru því í raun gefin til að varðveita geðheilsu og velferð ungmenna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.