Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 52

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 52
52 Það er áhugaverð tenging á milli heimalands míns, Serbíu, og Íslands, þar sem ég bý. Þetta eru einu löndin í heiminum þar sem forsætis­ ráðherra hefur opinberlega verið lesbía. Ana Brnabić var forsætisráðherra Serbíu frá 2017 til 2024. Hún gegndi embættinu í sjö ár, lengur en nokkur annar í sögu Serbíu og var fyrsta hinsegin manneskjan til að leiða ríkis­ stjórn á Balkanskaganum. Þó skipun hennar væri söguleg einkenndust viðbrögð hinsegin samfélagsins í Serbíu við skipun hennar, yfirlýsingum og embættisverkum af reiði og vonbrigðum. Þegar Brnabić tók við forystu ríkisstjórnar­ innar lýsti hún því yfir að réttindi hinsegin fólks væru ekki á meðal hennar helstu stefnumála, þar sem það væru ekki forgangs­ mál þjóðarinnar. Sú yfirlýsing mætti mikilli reiði hinsegin samfélagsins þar sem lagaleg staða hinsegin fólks í Serbíu er afar slæm og hinsegin fólk sætir enn daglegu ofbeldi. Gagnrýnin varð háværari eftir að hún og kærasta hennar eignuðust barn saman árið 2019 með aðstoð tæknifrjóvgunar erlendis, leið sem er óaðgengileg flestum konum í Serbíu. Þegar hún var gagnrýnd fyrir að beita sér ekki fyrir lagabreytingum þess efnis að tvær konur gætu verið skráðir for­ eldrar barns sagði hún: „Ég þarf engin lög til að segja mér að þetta sé barnið mitt.“ Þannig var réttindabarátta hinsegin foreldra í Serbíu kveðin niður og Brnabić beinlínis farin að beita sér gegn baráttu hinsegin fólks. Sjálf þarf hún eflaust að hafa litlar áhyggjur af takmörkuðum réttindum enda bæði rík og valdamikil. En eftir situr hinsegin sam­ félagið réttindalaust. Spurningar um hvert raunverulegt stuðnings­ fólk Brnabić sé hafa löngum verið háværar. Sérstaklega innan hinsegin samfélagsins sem sá engar framfarir í réttindabaráttu sinni í stjórnartíð hennar. Kenningar hafa verið uppi um að framgangur hennar í serbneskum stjórnmálum hafi verið strategísk ákvörðun popúlísks forseta landsins, Aleksandars Vučić. Með því að skipa Brnabić forsætis­ ráðherra gat hann sett fram ímynd framfara gagnvart Evrópuríkjum sem lengi hafa haft áhyggjur af stöðu mannréttinda í Serbíu og gagnrýnt hann fyrir ólýðræðislega tilburði, m.a. fyrir að skerða tjáningar- og fjölmiðla­ Ekki allar lesbíur Nikola Maljković Þýðandi Hjalti Vigfússonþurfa réttindi frelsi. Hinsegin samfélagið í Serbíu hefur einnig sakað hann og Brnabić um bleik­ þvott með því að nota Brnabić til að svara gagnrýni um hvernig ríkisstjórn hans hefur komið fram við hinsegin fólk og aðra jaðar­ setta hópa. Ímynd framsækni er búin til með því að skipa hinsegin manneskju forsætisráð­ herra en engar raunverulegar framfarir eiga sér þó stað í réttindabaráttu hinsegin fólks. Það er auðvelt að sjá andstæður milli stjórnartíðar Önu Brnabić og Jóhönnu Sig­ urðardóttur á Íslandi þar sem stórir sigrar unnust í réttindabaráttu hinsegin fólks, m.a. með lagasetningu sem lögleiddi samkynja hjónabönd. Serbía er enn langt frá því að lög­ leiða samkynja hjónabönd, staðfesta samvist, erfðarétt samkynja para eða réttindi hinsegin foreldra. Það sem hinsegin samfélagið í Serbíu hefur lært er það að hinsegin fólk í valdamiklum stöðum er engin ávísun á aukin réttindi. Þau geta jafnvel unnið réttindabaráttunni skaða með því að veita stjórnvöldum skjól frá gagnrýni, samtímis því að bleikþvo þjóðernissinnuð markmið. Hinsegin fólk á heimsvísu getur jafnframt dregið lærdóm af því. Brnabić ásamt Katrínu Jakbobsdóttur, Berlín 2018.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.