Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 61

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 61
61 Susanne Bösche. Jenny, fimm ára, birtist lesendum sem hraust og glöð stúlka. Með feðrum sínum borðar hún morgunmat og setur í þvottavél, þau gera við reiðhjól og setja niður kartöflur og spila á spil fyrir svefninn. Tekið er sérstaklega fram að móðir Jennyar, Karen, búi ekki langt frá og komi reglulega í heimsókn. En bara það að stúlkan ætti tvo pabba þótti siðapostulum slúðursnepilsins The Sun næg ástæða til að kynda mikið haturs­ bál yfir þessari einu bók. Í framhaldinu höfðu götublöðin, hvert á fætur öðru, uppi á ýmsum bókum og bæklingum á bókasöfnum þar sem fjallað var um samkynhneigð og hinseginleika á hátt sem þótti ekki nægilega neikvæður og fordæmandi. Áköll íhalds­ manna og umvandara um að grípa yrði til aðgerða til að vernda börnin fyrir innrætingu og óeðli urðu sífellt háværari. „Verið er að kenna börnum að þau hafi óafsalanlegan rétt á að vera samkynhneigð,“ sagði sjálf Margaret Thatcher hneyksluð í ræðu á landsþingi íhaldsmanna í október 1987 og uppskar standandi lófatak flokkssystkina. Eitthvað varð til bragðs að taka. Í árslok 1987 lögðu þingmenn Íhaldsflokksins því fram tillögu til breytingar á lögum um sveitarstjórnir sem bannaði þeim að „hampa samkynhneigð“ (e. promote homosexuality) eins og það var orðað, bannaði útgáfu á efni sem hefði það að markmiði að hampa fig. 2 fig. 3 samkynhneigð og kennslu í skólum um að samkynhneigð væri ásættanlegt fjölskyldu­ form (e. acceptability of homosexuality as a pre­ tended family relationship). Hvað þýddi þetta eiginlega? Þingmenn ræddu orðalag tillögunnar lengi, fram og aftur og með orðabækur við hönd. Svona varð lokaniðurstaðan en þó er alls ekki víst að nokkur viðstaddur hafi í raun og veru náð utan um það hvað þetta átti að þýða, hvernig ætti að framfylgja tillögunni og nákvæmlega hvar. En samþykkt var hún þó og varð form­ lega að lögum í maí 1988 sem liður nr. 28 í lögum um sveitarstjórnir, æ síðan þekkt sem Section 28. Sönn tímamót því þetta voru fyrstu nýju lögin gegn réttindum hinsegin fólks í Bretlandi í meira en öld. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi verið sóttur til saka á grundvelli Section 28 þau fimmtán ár sem lögin voru svo við lýði. En þau höfðu víðtæk áhrif mjög fljótlega. Alls kyns samtök og félög hinsegin fólks lögðu til dæmis upp laupana í stað þess að hætta á að verða fyrir barðinu á nýju lögunum. Hinsegin félög sem byrjuð voru að dúkka upp í skólum og félagsmiðstöðvum heyrðu snarlega sögunni til. Bæjar- og sveitarstjórnir drógu til baka alla styrki til hinsegin-tengdra málefna og menningarstarfs. Hinsegin leik­ hópar leystust upp, hætt var við listasýn­ ingar og viðburði, bóka- og blaðaútgáfu hinsegin fólks. Kennarar þorðu ekki lengur að anda orði um kynhneigð sína í vinnunni og enn síður að reyna að tala máli hinsegin nemenda í sífellt hatursfyllra umhverfi skólakerfisins, af ótta við að það teldist að „hampa samkynhneigð“ og þar með lögbrot. Heil kynslóð Breta fékk þannig litla sem enga fræðslu um hinseginleikann og ætla má að ansi mörg hafi hörfað dýpra inn í skápinn Lög sem varla voru notuð en höfðu mikil áhrif En þrátt fyrir allt þetta varð Section 28 líka vitundarvakning sem styrkti mjög hinsegin baráttu í Bretlandi. Aktívistar sem áður höfðu verið tvístraðir — í alls kyns félögum með alls kyns áherslur, hommarnir kannski í einu horni og lesbíurnar í öðru — öll tóku nú höndum saman með það sameiginlega markmið að kollvarpa Section 28. Tuttugu þúsund manns mótmæltu lögunum á götum Manchester 20. febrúar 1988, fjölmennasti fjöldafundur hinsegin fólks í sögu Bretlands til þessa. Kvöldið áður en Section 28 tók formlega gildi, 23. maí 1988, réðust lesb­ ískir aðgerðasinnar inn í sjónvarpsstúdíó BBC í miðjum kvöldfréttatíma klukkan sex og hrópuðu slagorð gegn lögunum þar til þær voru fluttar burt af lögreglu. Breskur almenningur skyldi ekki fá að hunsa þær. Hópur baráttufólks stofnaði svo samtökin Stonewall til að berjast gegn Section 28 vorið 1989. Stonewall færðu síðar út kvíarnar og eru í dag stærstu baráttusamtök hinsegin fólks ekki bara í Bretlandi heldur í allri Evrópu. Fleiri bresk samtök sem starfa enn í dag rekja ættir sínar til baráttunnar gegn Section 28. Hreyfing hinsegin fólks í Bretlandi efldist bara og efldist mikið næstu árin og þegar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.