Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Síða 62
62
fig. 4
fig. 5
Verkamannaflokkurinn komst til valda í
Bretlandi 1997 bjuggust mörg við því að
Section 28 yrði snarlega felld úr gildi. Þótt
fyrr hefði verið. Það leið þó og beið með það,
meðal annars vegna harðrar andstöðu aldur
hniginna íhaldsmanna og -kvenna í lávarða
deild breska þingsins sem enn vildu sem
minnst heyra á samkynhneigð minnst. Nýtt
skoskt þjóðþing reið loks á vaðið og felldi
lögin úr gildi Skotlandsmegin árið 2000 en
breska þinginu í Westminster tókst ekki að
fylgja fordæmi þess fyrr en loks í september
2003.
Haustið 2023 gat breskt hinsegin fólk því
haldið upp á það að tuttugu ár voru liðin
frá því að lögin alræmdu voru felld úr gildi.
Mörgum þótti þó ekki endilega mikil ástæða
til að fagna. Sagan endurtekur sig vissulega
og auðvelt er að sjá líkindin með siðfárinu
sem leiddi af sér Section 28 á níunda áratug
síðustu aldar og þeirrar hatursfullu fjölmiðla-
og þjóðfélagsumræðu í garð hinsegin fólks,
sér í lagi trans fólks, sem sjá má í Bretlandi
í dag. Í Rússlandi og fleiri löndum eru svo
lög við lýði sem banna „hinsegin áróður“
og ríma á vissan hátt við Section 28 — og í
Bandaríkjunum eru yfirvöld í óða önn að
banna ótal bækur um hinseginleikann,
undir því yfirskini að það þurfi að „vernda
börnin“, og samþykkja lög sem setja miklar
hömlur á hvers konar hinsegin fræðslu í
skólakerfinu, alls ekki ósvipuð Section 28
í Bretlandi. En sagan af Section 28 kennir
okkur líka að hægt er að taka höndum saman,
streitast á móti og kveða slíka vitleysu
í kútinn.
Myndir
1. Ian McKellen var 49 ára þegar Section 28 tók gildi
1988 og löngu orðinn þekktur leikari í leikhúsi og á
hvíta tjaldinu. Hann ræddi áhrif Section 28 á breskan
listaheim í útvarpsþætti á BBC í ársbyrjun 1988 og
í viðtalinu minntist hann á það að hann væri sjálfur
hommi. Það rann upp fyrir honum að viðtali loknu
að þarna hafði hann greint opinberlega frá kynhneigð
sinni í fyrsta sinn á ferlinum. Ian McKellen varð svo
með ötulustu baráttumönnum gegn Section 28 og einn
af stofnendum Stonewall-samtakanna 1989.
2. Skjáskot úr bók
3. Skjáskot úr bók
5. Lesbíur á BBC : https://ichef.bbci.co.uk/images/
ic/1200x675/p067w8r7.jpg
4. Lítil bók um kynfræðslu fyrir krakka, The Playbook
for Kids about Sex, gefin út í Bandaríkjunum 1980,
varð einnig alræmd í Bretlandi í siðfárinu um miðbik
níunda áratugarins. Þingkona Íhaldsflokksins lýsti
bókinni sem „hræðilegu áróðursriti“ sem kenndi
börnum „allt um samkynhneigð og hvernig ætti að
iðka hana“. Í bókinni eru í raun bara sakleysislegar
teikningar af fullklæddum pörum, tvíkynhneigðum
sportistum, lesbíum með flugdreka og hommum að
bardúsa með pottaplöntur (vissulega mjög hinsegin
athæfi).
6. Samstarf hinsegin baráttufólks og
verkalýðshreyfingarinnar var annað horn í
síðu breska Íhaldsflokksins. Fræg var til dæmis
fjársöfnun homma og lesbía í Lundúnum í
verkfallssjóð námuverkamanna í Wales 1984.
Námumenn launuðu greiðann og fjölmenntu í
Pride-gönguna í Lundúnum 1985, verkalýðsfélög
námumanna urðu öflugur bakhjarl hinsegin
fólks innan Verkamannaflokksins og lögðu líka
baráttunni gegn Section 28 lið. Stórskemmtileg
kvikmynd Pride frá 2014 fjallar um þetta merkilega
bandalag.
Section 28 and Moral Panic
Who would have thought a Danish children’s
book about same sex parents would result
in moral panic in the UK in 1986, five years
after being published. But that is exactly
what happened with Susanne Bösche’s
book, Jenny Lives with Eric and Martin, as
Thatcher’s conservative party used the book
as a fearmongering tool to introduce Section
28, the legislation that prohibited “the
promotion of homosexuality”, which was in
effect from 1988 to 2003.